Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar 18. október 2026 09:00 Halldór heiti ég frá Heiðarbýli í Mosfellssveit. Heiðarbýli er við Varmá rétt ofan við Reykjalund. Sá sem hér skrifar og rétt orðinn fimmtíu kall að aldri er alinn upp við að horfa á fólk í endurhæfingu á Reykjalundi (RL) að rísa upp frá því að geta ekki beitt sér eðlilega, starfað eða sinnt öðrum lífsins hlutverkum (sem geta verið fjölmörg og hverju öðru betra ). Mamma og pabbi unnu bæði á Reykjalundi. Mamma mestan starfsaldur sinn og pabbi um langt skeið síns starfsaldurs. Reykjalundur var á mínum uppeldisárum framarlega sem endurhæfingarmiðstöð með fjölbreytt endurhæfingarsvið á skandinavískan mælikvarða og mamma sagði mér gjarnan að mikill metnaður væri sifellt fyrir að byggja frekar upp á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð sem gæti áfram verið í fararbroddi hér á landi og á skandinavískum kvarða við að endurhæfa og styrkja fólk eftir stærri heilsubresti, slys og sjúkdóma af ýmsum toga. Ég sannreyndi orð hennar ágætlega þegar ég fór í mitt næstsíðasta verknám í sjúkraþjálfunarnámi HÍ árið 2000 og sá á sænskum Reykjalundi í tveggja mánaða starfsnámi í Svíþjóð að þverfagleg endurhæfing var síst lakari á heimaslóðum í Mosfellsbæ miðað við þar. Þessi reynsla í mínu uppeldi þar sem ég bjó í þarnæsta húsi við Reykjalund með báða foreldra við vinnu þar gerði að verkum að ég sá uppbyggingu einstaklinga í endurhæfingu viku frá viku, mánuði til mánuðar þar sem ég hoppaði oft úr skólarútunni á RL á leið heim úr skólanum. Ég fékk kaffi/möndlu- og marmarakökur úr matsalnum og horfði á þróun mála. Ég þarf alls ekki að færa í stílinn þegar ég hugsa til minnar barnslegu upplifunar að mér fannst fólk rísa upp frá dauðum milli mánaða sem áhorfandi á Reykjalundi eftirmiðdaga að loknum skóla. Það snerti mig svo sterkt að mér fannst áhugavert að geta orðið partur af því í lífsstarfi að efla heilsu fólks sem lenti í veikindum og slysum. Bróðir mömmu var líka læknir í hlutastarfi þar og spurði ég hann þegar ég fór að þrengja áhugahringinn í menntun við sjúkraþjálfun nálægt tvítugu hvort sjúkraþjálfari væri menntunarinnar og starfsins virði að hans mati. Klárt mál fyrir Dóra frænda að hans mati. Mér fannst þá eðlilegt og sé aldrei eftir að ég hallaði mér meira að hugmyndinni að reyna að gera öðrum gagn við stoðkerfisvandamál, stærri og minni. Ég eins og fleiri landsmenn fylgdist með og tók þátt í landssöfnun fyrir skemmstu sem fékk viðeigandi nafn í ljósi þrotstöðunnar sem þar ríkir, – Endurhæfum Reykjalund - . Ef ég gæti sett tjákn merki hér til að undirstrika hvað mér fannst um framkvæmd söfnunarinnar væru nokkur eldrauð hjörtu og lófar saman með þakklætis þýðingu og háar fimmur í leiðinni. Það var sérstaklega vel að henni staðið í þröngri stöðu og erfitt verkefni að spila fram neyðarþörf við starfsaðstæður sem eru í raun á barmi þess að standast eðlilegar heilbrigðiskröfur varðandi ástand húsnæðiskostsins þar. Húsakostur sem er gríðarstór og í grunninn að mörgu leyti barn síns tíma að svo mörgu leyti. Það sem mátti sjá sem rauðan þráð í frásögnum þeirra sem sögðu endurhæfingar sögur sínar af Reykjalundi voru að mínu áliti þrír meginþættir. 1) Virði mannauðsins á Reykjalundi í framúrskarandi starfsfólki með mjög sérhæfða þekkingu. 2) Áhersla endurhæfingarferlisins á ábyrgð þess endurhæfða á eigin heilsu í uppbyggingu og áfram í lífinu eftir endurhæfiningu. 3) endurhæfingarumhverfi sem er óviðjafnanlegt. Það má ljóst vera að enginn af þessum þáttum fellur af himnum ofan né verður til á stuttum tíma. Reykjalundur sinnir allt öðrum hópum og meira krefjandi svo að segja en ég og mítt samstarfsfólk gerir á starfsstofum sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara í nærumhverfi landsmanna um allt land. Ég hef einbeitt mér á mínum starfsferli að þekkingaröflun og þjálfun í sértækari stoðkerfisvandamálum sem eiga heima best til úrlausnar hjá einum endurhæfingaraðila eins og sjúkraþjálfara á starfsstofum okkar um allt land. Tæplega 600 sjúkraþjálfarar á Íslandi hjálpa þar 70-80.000 ungum, eldri og elstu landsmönnum á Íslandi árlega við minni og viðameiri stoðkerfisvandamál og margsskonar líkamskerfavandamál sem krefjast endurhæfingar og nauðsynlegs viðhalds á ástandi. Einstaklingar sem þurfa á meira heildrænni nálgun að halda með öflugri teymisvinnu í sínu endurhæfingarferli þurfa breiðbasa þjónustu líkt og Reykjalundur veitir og hefur veitt af miklu afli hér á landi frá miðri síðustu öld eftir að Oddur Ólafsson læknir og félagar komu honum á stofn á berklafaraldurs tíma síðustu aldar. Það er rauður þráður áfram til dagsins í dag í starfsemi Reykjalundar að hann sinnir áberandi og krefjandi hópi fólks í heilbrigðiskerfinu sem þarfnast nauðsynlega þverfaglegrar nálgunar til uppbyggingar. Oftast frá grunni með viðspyrnu til betri heilsu með heildrænni teymisvinnu heilbrigðisstétta eins og sjúkraþjálfara, sálfræðinga, lækna, iðjuþjálfa, næringarfræðinga, hjúkrunarfræðinga, talmeinafræðinga o.fl. í nauðsynlegri starfsheild sem hefur verið megin slagkraftur starfseminnar á Reykjalundi til tuga ára. Þessum fjölbreytta hópi með oftast langvarandi og einnig oft víðtæk vandamál verður ekki sinnt nægilega vel annarsstaðar en á RL eða viðlíka stöðum sem eru annars vandfundnir á Íslandi. Á annað þúsund manns hafa fengið þjónustu árlega á Reykjalundi sl. ár og mun fleiri þurfa en fá. Það er þyngra en tárum taki að heyra af ennfrekari þróun mála til verri vegar af starfsemi Reykjalundur nú undanfarna daga. Formaður félags minnar stéttar hefur rakið þá þróun ágætlega og er það ekki síst ástæða minna skrifa hér. Ástandið kristallar grafalvarlega botnstöðu Reykjalundar sem getur ekki haldist sem slík ef stjórnvöld hafa raunverulega innsýn í alvarleika málsins sem Gunnlaugur rekur þar í stóru samhengi. Eins og ég lýsi hér að ofan var ég snortinn af vel heppnaðri landssöfnun um daginn og þakklátur fyrir hönd Reykjalundar að sjá tiltakanlegt fjármagn safnast frá góðhjörtuðum landsmönnum, þakklátum notendum þjónustu hans og fyrirtækjum landsins. Ég er einn af þeim sem sá söfnunina sem fyrst og fremst táknræna sem kraftmikinn meðbyr lítillar og samheldnar þjóðar og viðurkenningu á mikilvægi starfseminnar umfram það sem endanlega safnaðist í krónum talið. Sá hver sem hefur stigið inn í risavaxið húsnæði Reykjalundur gerir sér grein fyrir því að fjármagnið sem fór vel yfir hundrað milljónir króna mun einungis marka viðspyrnu og markeringu sem eitt af a.m.k. margra tuga jafnstórra fjármagnsskrefa frá algjörum botni í húsakosti sem er að svo mörgu leyti barn síns tíma í langdvalar- og síðan sólarhringsþjónustu, með dvöl notanda á Reykjalundi til vikna og mánaða hér áður fyrr. Reykjalundur 2.0 kemur upp í hugann með nýju húsnæði á stað þess eldra, eins stórt skref og það er augljóslega. Ég get ekki lagt næga áherslu á hvað ég tel mikilvægt að heilbrigðisyfirvöld leggi styrka stoð við uppbyggingu Reykjalundar nú þegar. Sem ég sit hér og skrifa þessa grein get ég lofað því að saga heilbrigðiskerfis Íslands verður skrifuð til lengri tíma með því hvernig núverandi stjórnvöld á Íslandi taka ákvörðun um stuðning eður ei við rekstrar- og innviðaforsendur og þar með framtíð Reykjalundar nú næstu vikur og mánuði. Einnig er vert að minnast á að ráðdeild í rekstri Reykjalundar er þörf. Það get ég sagt sem rekstraraðili endurhæfingarþjónustu til tuttugu ára. Hinsvegar er alls ekki hægt að hafa Excel puritana aðila þar við stýrið í svo viðkvæmri þjónustu sem endurhæfing er. Það er klárt og flæming verðmæts mannauðs í reynslumiklum sjúkraþjálfurum á RL nú m.a. til marks um það. Það er ekki ólíklegt að ég muni rifja upp þessi skrif innan 5 – 10 ára með handhafa heilbrigðisstjórnvalda af hálfu Samfylkingar árið 2026 í botnsstöðu Reykjalundar á þessum tíma í huga. Fjárlög ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra eru sett fyrir næsta misseri. Í því samhengi er ágætt að minnast á að 40% fjölgun landsmanna á endurhæfingarlífeyri árið 2025 er klárt dæmi um auknar kröfur til endurhæfingar árið 2025 og sannarlega núverandi árs 2026 einnig. Þar má segja að leki út fjármagn íslenska ríkisins ef viðkomandi einstaklingar fá ekki viðeigandi endurhæfingarþjónustu. Nýjustu tölur um biðlista á starfsstofum sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara eru 9.000 landsmenn á biðlista miðað við í kringum 7.000 fyrir c.a. ári síðan. Reykjalundur er að missa 50% af sínum sjúkraþjálfurum samkvæmt nýjustu fregnum. Þar er veigamikill eftirspurnarhópur eftir þverfaglegri endurhæfingu einungis og alfarið til staðar. Ég er talnaglöggur maður en hvað segið þið um horfur endurhæfingarþjónustu á Íslandi í dag miðað við ofangreint !? Einstaklingar á endurhæfingarlífeyri eru bæði með fjölþætt langvarandi vandamál sem krefjast þverfaglegrar endurhæfingar en einnig er hluti þeirra sem á heima í t.d. Virk ásamt göngudeildarendurhæfingu á starfsstofum sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara með öðrum úrræðum. Þungi og þörf endurhæfingar verður þróunarlega samkvæmt rannsóknarspám einungis til meiri þyngdar í heilbrigðiskerfi Íslands. Horfur sem allir sem hafa vit áættu að vita á hæstu stigum stjórnsýslu landsins okkar Íslands. Lífsstílsjúkdómar okkar í vestrænum samfélögum með endalausum vafningsáhrifum frekari vandamála eru og verða stigvaxandi áfram veginn næstu ár og áratugi ef við verðum ekki snarlega endurforrituð með betri heilsuvitund og ábyrgð á eigin heilsu. Viðsnúningur með meiri formfastri líkamlegri virkni, betri næringu og svefni eru hornsteinar sem virðast eftir sannreyndum vísindum mikilvægastir í þessu samhengi. Verðmæti í þessum einstaklingum tapast þegar fólk er ekki gripið nægilega snemma í heilbrigðiskerfinu til viðeigandi greiningar og endurhæfingar. Núverandi heilbrigðisráðherra ber með sér yfirborðslega áherslur og innsýn í mikilvægi lýðheilsu að vissu marki. Boð og bönn í málefnum sem snúa að áhættuþáttum sjúkdóma og heilsubrests eru þar áberandi umfram annað. Í ljósi sannarlegs rannsóknaflaums í þá átt er það gott og gilt og virðingarvert. Það getur hinsvegar alls ekki takmarkast við þá þætti í lýðheilsumálum af hálfu hæstu stjórnenda heilbrigðiskerfis lands okkar. Forvarnir á öllum stigum 1. -3. Stigs eru öll stig sem mín stétt tæplega 900 sjúkraþjálfara vinnur eftir og heilbrigðis stjórnvöld skildu hafa sterklega öll stigin jafnt til áherslu í raun. Ég hvet lesendur til að leyfa AI að spreyta sig þegar slegið er inn á google leit – Merking á 1.- 3. stigs forvörnum - . Ágætis túlkun þar á ferð sem allir skilja. Árangur til sjálfbærni allra þeirra sem byggja Ísland í dag með sem mestri þjóðarframleiðslu til sem mestra verðmæta þjóðar í rekstri á sér sjálfri áfram veginn til framtíðar. Höfundur er sjúkraþjálfari og sérfræðingur í greiningu og meðhöndlun stoðkerfis MT Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun