Skoðun

Vill fólk að allir leikir skipti máli?

Jón Fannar Árnason skrifar

Að undanförnu hefur mikil umræða verið um mótafyrirkomulagið í Bestu deild karla. Margir eru ósáttir við skiptingu deildarinnar eftir 22 umferðir og finnst of margir leikir skipta engu máli.

Sumir vilja 14 liða deild með tvöfaldri umferð og án skiptingar. Í því fyrirkomulagi gerist þó það sama: of margir leikir skipta engu máli. Það má samt ekki gleyma því að í ensku úrvalsdeildinni eru sum lið ekki með neitt sérstakt að keppa um þegar nokkrar umferðir eru eftir.

Undirritaður hefur hugmynd að mótafyrirkomulagi þar sem nánast allir leikir hafa vægi. Hugmyndin er að taka upp sama fyrirkomulag og í hand- og körfubolta: 12 liða deild með tvöfaldri umferð, þar sem átta efstu liðin komast í úrslitakeppni. Liðið sem stendur uppi sem sigurvegari eftir 22 umferðir verður deildarmeistari.

Í úrslitakeppninni yrði byrjað á átta liða úrslitum þar sem eftirfarandi lið mætast heima og að heiman:

1–8

2–7

3–6

4–5

Liðin fjögur sem vinna þessi einvígi fara í undanúrslit. Þar mætir efsta liðið úr deildarkeppninni því liði sem hafnaði neðst af þeim fjórum sem eftir eru, líkt og gert er í körfubolta. Hin tvö liðin mætast í hinu einvíginu. Leikið yrði heima og að heiman og liðið sem hafnaði ofar í deildarkeppninni fengi að leika síðari leikinn á heimavelli.

Liðin sem vinna undanúrslitaeinvígin mætast síðan í einum úrslitaleik á heimavelli þess liðs sem hafnaði ofar í deildarkeppninni. Sigurvegari leiksins verður Íslandsmeistari.

Undirritaður gerir sér grein fyrir því að þetta mótafyrirkomulag verður líklega ekki að veruleika. Með þessu fyrirkomulagi skipta þó nánast allir leikir máli.

Höfundur er tómstunda- og félagsmálafræðingur




Skoðun

Sjá meira


×