Veður

Gæti komið til lokana með stuttum fyrir­vara

Freyja Þórisdóttir skrifar
Hvassast verður á norðanverðu Snæfellsnesi.
Hvassast verður á norðanverðu Snæfellsnesi. Vísir/Vilhelm

Vegagerðin vekur athygli á því að vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar á norðanverðu Snæfellsnesi upp úr hádegi gæti komið til lokana á vegum með stuttum fyrirvara. Búast má við hviðum allt að 45 metrum á sekúndu á svæðinu.

Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Vegagerðarinnar en gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag vegna hvassviðris með talsverðri rigningu. Eru ökumenn hvattir til að fylgjast með færð en varasamar aðstæður geta skapast á svæðinu þar sem hviðurnar verða mestar. i. Lausamunir fjúka líklega og möguleiki er á staðbundnu foktjóni á Snæfellsnesi.

Síðdegis og í kvöld einnig staðbundnir og varasamir sviptivindar í Skagafirði, s.s. milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, í Fljótum og Eyjafirði, m.a. í Hörgárdal og á Molhaugnahálsi. Á sunnudag verður aftur mjög hvasst og byljóttur vindur á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×