Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar 17. október 2026 08:17 Á Íslandi er sterkur réttur til skaðabóta ef saklaus maður er handtekinn eða beittur öðrum lögregluaðgerðum. Nánar tiltekið á maður almennt séð rétt á skaðabótum frá íslenska ríkinu ef maður er beittur t.d. handtöku, líkamsleit, líkamsrannsókn, húsleit, leit í bíl eða símhlustun, en lögreglumálið síðan fellt niður eða maður sýknaður, og ekki er sýnt fram á að maður hafi sjálfur valdið aðgerðinni. Þröskuldurinn til að sækja bætur samkvæmt þessum reglum er lægri heldur en í venjulegum skaðabótamálum því bótarétturinn er ekki háður því að sýnt sé fram á sök einhvers. Maður þarf þannig ekki að sanna að lögreglumenn, sem komu að aðgerðinni, hafi gert neitt rangt í sjálfu sér. Þeir kunna að hafa gert það sem þeir töldu réttast miðað við aðstæður. Samt á maður rétt á bótum frá ríkinu, svo lengi sem skilyrði sakamálalaga eru uppfyllt, þ.e. þá aðallega að málið hafi verið fellt niður eða maður fundinn saklaus og að maður hafi ekki valdið aðgerðinni sjálfur. Annað mikilvægt í þessu sambandi er að um þessi bótamál gildir lögbundin gjafsókn sem þýðir að yfirleitt þarf einstaklingurinn ekki að borga lögfræðikostnað af málinu. Reyndar hefur dómsmálaráðuneytið því miður haft til skoðunar að afnema þennan mikilvæga rétt til gjafsóknar en hann er þó enn til staðar. Fjöldi svona mála fer heldur aldrei fyrir dóm, heldur ná tjónþolar með aðstoð lögmanna oftar en ekki sátt við ríkið sem í framhaldinu greiðir skaðabætur og málskostnað. Fjöldi einstaklinga eignast skaðabótarétt með þessum hætti á hverju ári, enda gerist það oft að aðgerðir lögreglu leiða ekki til saksóknar og mál eru felld niður. Merkilegt er hins vegar að þó þessar bótareglur hafi verið með núverandi sniði í lögum í næstum 20 ár, þá hefur íslenska ríkið gert mjög lítið til að kynna þær fyrir almenningi. Það má því ætla að margir eigi eða hafi átt bótarétt án þess að vita nokkuð um það. Á vefsíðunni island.is eru t.d. litlar sem engar upplýsingar um þessar bótareglur. Þar er síða sem nefnd er Upplýsingar fyrir sakborninga og aðrar síður nefndar t.d. Handtaka og Málalok, en hvergi er þar þó minnst á að ríkið beri þessa sterku bótaábyrgð gagnvart þeim sem saklausir lenda í aðgerðum lögreglu. Það er ánægjulegt að löggjafinn hafi tryggt þennan sterka bótarétt í lögum, en á hinn bóginn er dapurlegt að íslenska ríkið hafi gert sáralítið til að upplýsa borgaranna um að þessi bótaréttur sé til. Lögregla hefur ríkar heimildir til að skerða frelsi fólks og ganga á stjórnarskrárvarin réttindi þess og nú um stundir fara stjórnmálamenn jafnvel fram á enn ríkari heimildir í því sambandi. Hin hliðin á þeim peningi er að borgararnir eiga tryggðan í lögum bótarétt á hendur ríkinu þegar þeir eru beittir aðgerðum að ósekju. Í réttarríki eiga upplýsingar um slíkt að vera aðgengilegar og skýrar og því vert að skora á framkvæmdavaldið að upplýsa betur um þennan bótarétt á opinberum vettvangi. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lögreglan Dómsmál Stjórnarskrá Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun