Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2026 11:41 María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, sakar Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um fordóma vegna áforma um að afnema dvalarleyfi fyrir au pair frá ríkjum utan EES. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, gagnrýnir harðlega áform Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að afnema dvalarleyfi fyrir au pair frá ríkjum utan EES. Hún segir tillöguna fordómafulla og að hún lykti af „hvítri forréttindablindu“.
María Björk fjallar um málið í færslu á Facebook eftir að hafa hlustað á viðtal við ráðherrann í Morgunútvarpinu 14. október. Hún tekur fram að ráðherrann hafi gert margt gott í útlendingamálum og styðji heilshugar breytingar sem styrki stöðu þolenda mansals og misneytingar á vinnumarkaði. „En ég get ekki setið hjá þegar fella á niður dvalarleyfi fyrir au pair utan EES. Ég hlustaði á viðtal við ráðherra í Morgunútvarpinu 14. október og mér blöskruðu þeir fordómar sem þar skinu í gegn. Mig langar að svara þeim af eigin reynslu.“ „Hún er ekki fórnarlamb“ María Björk segir fjölskyldu sína hafa tekið á móti au pair frá Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Argentínu, Brasilíu og Filippseyjum. Allar hafi komið til að kynnast nýrri menningu og orðið hluti af fjölskyldunni. Sambandinu hafi verið haldið við þær allar og margar komið aftur í heimsókn. Unga konan frá Filippseyjum sem búi nú hjá fjölskyldunni skeri sig ekki úr hópnum. Hún hafi ferðast um landið, elt norðurljósin og farið á tónleika Kaleo á Þingvöllum með vinum sínum. Hún keppi í badminton, hafi hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu og sé komin með fín tök á íslensku. „Hún er ekki fórnarlamb. Hún er ung kona að skoða heiminn.“ María Björk gagnrýnir að ráðherra hafi ítrekað talað um vistfjölskyldur sem atvinnurekendur. Hún segir au pair snúast um menningarskipti þar sem ungmennin aðstoði við heimilishald og barnagæslu gegn fæði, húsnæði og vasapeningum. „Þau eru hluti af heimilinu, ekki starfsfólk þess.“ Spyr hvers vegna loka eigi á konur frá Filippseyjum Á árunum 2017 til 2024 voru veitt 766 ný vistráðningarleyfi hér á landi, þar af 78 prósent til ríkisborgara Filippseyja. Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður vistráðning fólks frá EES-ríkjum áfram möguleg og gert er ráð fyrir að fækkuninni verði mætt með fólki þaðan. María Björk segir ríka hefð meðal ungs fólks á Filippseyjum fyrir því að nýta au pair-fyrirkomulagið til að ferðast og kynnast heiminum. Íslensk ungmenni geti farið í heimsreisur án þess að hugsa sig tvisvar um en sama frelsi sé ekki öllum gefið. Hún bendir á að ungmenni frá Þýskalandi, Frakklandi og Ítalíu geti áfram búið á sömu heimilum og við sömu aðstæður. „Ef fyrirkomulagið sjálft væri hættulegt ætti það jafnt við um alla. Eini munurinn er uppruni ungmennanna.“ Hún segir það fordómafullt að loka á ungt fólk vegna uppruna þess. „Það lyktar af hvítri forréttindablindu og af hvíta bjargvættinum (e. white saviour complex): við ákveðum hvað er þeim fyrir bestu, án þess að spyrja þau sjálf, og verndin felst í því að taka af þeim tækifæri sem við teljum sjálfsögð fyrir okkar eigin börn.“ Ráðuneytið rökstyður tillöguna með hættu á hagnýtingu og því að dvalarréttur vistráðinna sé tengdur einni fjölskyldu án hefðbundinna atvinnuréttinda. Í greinargerðinni er aðstöðumunur fólks frá EES sagður minni þar sem það hafi dvalarheimild óháð vistráðningarsamningi og geti ráðið sig til annarra starfa. Vill útiloka fjölskyldur sem brjóta af sér María Björk gagnrýnir að ekki hafi verið haft samráð við vistráðna sjálfa eða samtök Filippseyinga og innflytjenda við undirbúning tillögunnar. „Það er rætt um þær, en ekki við þær.“ Hún gerir ekki lítið úr því að fjölskyldur hafi brotið á ungmennum. Slíkt sé grafalvarlegt en svarið eigi að vera betri úrræði. Ungmennin þurfi að geta kvartað án þess að missa dvalarleyfið og skipt um fjölskyldu. Fjölskyldur sem brjóti af sér eigi að útiloka. Hún hafnar jafnframt því að eftirlit þurfi að byggjast á fyrirvaralausum heimsóknum á heimili. Nota megi reglubundna spurningalista sem ungmennin svari sjálfstætt, hjálparsíma allan sólarhringinn og regluleg fjarviðtöl. Hún telur slíkar leiðir ódýrar og gagnrýnir að gögn um umfang brota hérlendis séu ekki lögð fram í greinargerðinni. Vísir fjallaði fyrr í vikunni um sameiginlega umsögn 87 foreldra sem mótmæla afnáminu og bjóðast til að greiða fyrir eftirlit. Edda Björk Ragnarsdóttir sendi umsögnina fyrir hönd hópsins. María Björk og Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona eru meðal undirritaðra. Í Facebook-færslunni merkir María Björk þær Eddu og Gretu Salóme ásamt dómsmálaráðherra. „Spurningin er ekki hvers vegna stúlkur frá Filippseyjum vilja koma hingað. Spurningin er hvers vegna við viljum loka á þær.“
Innflytjendamál Au-pair Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjölskyldumál Hús og heimili Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira