Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2026 10:45 Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla með greiðsluþátttöku ríkisins fyrir áramót. Klíníkin Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla í nóvember og desember með greiðsluþátttöku ríkisins. Samkomulag hefur náðst við Sjúkratryggingar Íslands um framkvæmd aðgerðanna, en sjúklingar þurfa að uppfylla skilyrði stofnunarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klíníkinni. Samkomulagið er niðurstaða viðræðna undanfarinna mánaða og byggist á þjónustusamningi frá árinu 2025. Það nær til tímabilsins frá 1. nóvember til 31. desember á þessu ári. Efnaskiptaaðgerðir eru skurðaðgerðir sem beitt er við meðferð offitu, meðal annars magaermi og magahjáveita. Hafa sótt aðgerðir til Svíþjóðar Í tilkynningunni segir að sjúklingar hafi frá árinu 2022 sótt þjónustuna til Svíþjóðar á vegum ríkisins. Efnaskiptaaðgerðir hafa jafnframt verið framkvæmdar á Landspítala með opinberri greiðsluþátttöku, eins og fram kemur í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi. Aðgerðirnar hefjast í nóvember og þurfa sjúklingar að uppfylla skilyrði Sjúkratrygginga Íslands fyrir greiðsluþátttöku.Klíníkin Klíníkin hefur samkvæmt tilkynningunni framkvæmt efnaskiptaaðgerðir í um áratug. Að meðferðinni kemur teymi heilbrigðisstarfsfólks úr ólíkum fagstéttum og áhersla er lögð á skipulagða eftirfylgd. „Við fögnum því að þessi mikilvæga þjónusta verði nú aðgengileg fleiri sjúklingum hér á landi. Efnaskiptaaðgerðir eru gott dæmi um heilbrigðisþjónustu sem við höfum bæði þekkingu og aðstöðu til að veita á Íslandi,“ segir Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Ármúla, í tilkynningunni. Vilja horfa til ferðakostnaðar og skatttekna Klíníkin telur að aðgerðir hér á landi geti dregið úr álagi á sjúklinga og aðstandendur með því að fækka utanlandsferðum. Þá geti verið auðveldara að tryggja samfellda þjónustu frá undirbúningi að eftirfylgd. Félagið leggur jafnframt áherslu á að við samanburð á kostnaði við aðgerðir hér og erlendis þurfi að taka tillit til ferðakostnaðar, atvinnusköpunar og skatttekna af innlendri starfsemi.
Heilsa Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira