„Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Smári Jökull Jónsson skrifar 16. október 2026 10:47 Ýmsir hafa tjáð sig um þá ákvörðun Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Vísir Ýmsir hafa lagt orð í belg á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Ákvörðunin er sögð áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu Viðreisnar á meðan einhverjir vilja meina að augljóst sé að Jón sé ekki hópíþróttamaður og að hann eigi eftir að bregðast ríkisstjórninni og sínum fyrrverandi flokki.
Ákvörðun þingmannsins Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar kom mörgum í opna skjöldu. Í viðtali við Vísi í gær sagðist hann hafa íhugað að segja sig úr þingflokknum síðan í sumar og að ákvörðunin tengist ekki neinum embættum. „Það hefur verið pólitískur ágreiningur við forystu þingflokksins um pólitískar áherslur. Ég hefði viljað sjá meiri áherslu á frelsi og einstaklingsfrelsi og síðan kannski líka málefni barna í alvarlegum vanda sem er bara mál sem ég hef brunnið fyrir og reynt að beita mér fyrir. Það hefur vissulega margt áunnist í þeim málaflokki en ég hef stundum kvartað yfir því að ég hafi ekki alveg verið að fá backup í þeim málum. Þetta er svolítið sitt lítið af hvoru,“ sagði Jón í gær. Jón mun áfram styðja ríkisstjórnina og samkvæmt Pawel Bartoszek, þingflokksformanni Viðreisnar, liggur fyrir samkomulag sem felur í sér að Jón mun halda sínum nefndarsætum og geta fengið stoðþjónustu frá flokknum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar sagði að henni fyndist ofboðslega vænt um Jón Gnarr og að það breyttist ekki þó að hann hefði ákveðið að starfa utan þingflokks Viðreisnar. „Ég hefði auðvitað kosið að hafa Jón áfram í þingflokknum en ég virði ákvörðun hans og mér þykir vænt um að hann ætli áfram að styðja ríkisstjórnina og þau verkefni sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Mér þykir líka vænt um að hann haldi áfram í Viðreisn og hann er að sjálfsögðu alltaf velkominn aftur í þingflokkinn okkar.“ „Áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu“ Margir hafa brugðist við fregnum af úrsögn Jóns á samfélagsmiðlum og sýnist sitt hverjum. Össur Skarphéðinsson, fyrrum ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir ákvörðun hans áfall fyrir Viðreisn. „Þetta er líka áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu sem virðast ekki hafa verið í nægilegum tengslum við þingflokkinn til að skilja vanlíðan þingmanna,“ skrifar Össur og bætir við að málin sem Jón hafi nefnt séu fjarri því að vera fallin til pólitísks ágreinings. Jafnframt gerir Össur orð Jóns, um að þingflokkur Viðreisnar sé í áfalli eftir tapið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í sumar, að umfjöllunarefni. „Mörgum finnst nefnilega þeir þurfa skýringar, lyktir, á framkvæmd baráttunnar sem felast í öðru en því að andstæðingar ESB hafi verið svo duglegir að ljúga. Það skýrir vitaskuld ekki hvernig tókst að snúa yfirburðafylgi upp í tap á tæpu sumri.“ „Hvernig túlkum við það?“ Annar fyrrverandi þingmaður, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, er líka á ESB-nótum en hún skrifar svar við færslu Össurar. „Hans helsti bandamaður stýrði ESB baráttunni. Hvernig túlkum við það?“ spyr Sigríður Ingibjörg og er þar væntanlega að vísa í Heiðu Kristínu Helgadóttur sem fór fyrir baráttu Já-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Jón og Heiða Kristín unnu saman fyrir Besta flokkinn í borgarstjórn á sínum tíma. Hagfræðingurinn Erna Bjarnadóttir hafði sig mikið í frammi í tengslum við áðurnefnda þjóðaratkvæðagreiðslu og hún setur ákvörðun Jóns í samhengi við niðurstöðu hennar og viðbrögð Þorgerðar Katrínar í kjölfarið. Erna hefur kallað eftir afsögn utanríkisráðherra síðan niðurstaða atkvæðagreiðslunnar varð ljós. „Þorgerður Katrín hefur þess í stað kosið að sitja sem fastast og gera andstæðingum sínum upp skoðanir. Í ræðu sinni um bókun 35 gekk hún svo langt að gera andstöðu við frumvarp sitt að andstöðu við EES-samninginn. Á meðan sitja flokksfélagar hennar eftir án þess uppgjörs sem þarf til að marka leiðina fram á við á grundvelli niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar,“ skrifar Erna. Eins og að fá stangastökkvara í fótboltalið Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrum alþingismaður, segir að þingstörf séu hópíþrótt og að það sé alltaf hættuspil fyrir flokka að freistast til að fá til liðs við einstaklinga sem hafa aflað sér vinsælda á öðrum vettvangi en í stjórnmálum. „Soldið eins og fá afburða snjallan stangastökkvara í fótboltalið. Hætt við að hann bara hangi frammi í leikjum og reyni að finna leiðir til að stökkva yfir markið. Og verði frústreraður þegar það er ekki í boði,“ skrifar Guðmundur Andri. Guðmundur Andri var kjörinn á Alþingi fyrir Samfylkinguna í alþingiskosningunum árið 2017 en náði ekki endurkjöri í kosningunum að fjórum árum liðnum.Vísir/Vilhelm „Jón Gnarr er góður þingmaður sýnist mér, sem nenni þó lítið að fylgjast með pólitíkinni, þó augljóslega sé hann ekki hópíþróttamaður,“ skrifar Guðmundur Andri enn fremur. Stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson segist hafa skrifað pistil um brotthvarf Jóns úr Viðreisn byggðan á fréttum dagsins en hann hafi síðan tekið hann út eftir viðtal Jóns í Kastljósi þar sem hann hafi gefið allt aðrar skýringar en áður hafi komið fram. „Pistill minn fjallaði um hvað mótdrægt það geti verið að vera stjórnarþingmaður og þurfa að einhverju marki að lúta aga (forgangsröðun, stuðningi/andstöðu við mál) þingsflokksformannsins/þingflokksins. Slíkt hefur alltaf tekið á einstaklingshyggjumenn,“ skrifar Haukur en bætir við að allt annað hafi komið fram í viðtali hans í Kastljósi. „Einkum dylgjur um einstaklinga, þingflokkinn og flokksforystuna, án þess að þær væru útskýrðar betur svo nokkru næmi. Þær voru svo rækilega undir beltisstað og fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna að ég fjalla ekki frekar um brotthvarf Jóns úr Viðreisn,“ sem spáir því að búast megi við röðum af popúlískum málum sem hann komi ekki til með að ná fram einn. „Hann á fljótlega eftir að bregðast ríkisstjórninni í sífellt fleiri tilfellum og svo flokknum sínum fyrrverandi. Enda hefur hann bara lofað að styðja fjárlagatillögur ríkisstjórnarinnar (sem ég á eftir að sjá hann gera), en ekki önnur mál.“ „Forysta Viðreisnar virðist vera sjúk?!“ Ingvar Smári Birgisson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn RÚV, segir að Viðreisn hafi tekist að skilgreina sig þvert á þau gildi sem Jón leggi mikið upp úr að séu virt. „Þó að Jón Gnarr sé ekki eiginlegur frjálshyggjumaður þá er sterk frelsistaug í honum. Honum gremst að ríkisvaldið (kerfið) njóti forgangs fram yfir hagsmuni einstaklinga og leggur mikið upp úr borgaralegum réttindum, t.d. tjáningarfrelsi, og skilur manna best að fólk getur gert mistök og bætt sig,“ skrifar Ingvar og bætir við að vonandi komi sá dagur fyrr en síðar að borgaralega sinnað fólk geti sameinast um að stjórna landinu. Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar í hópinn Ísland, þvert á flokka að Jón hafi dregið mörk sín og lýst áhyggjum af því sem sé að gerast í þingflokki Viðreisnar. Sveinn nefnir mál Guðbrands Einarssonar, sem sagði af sér þingmennsku á síðasta ári, og Sigmars Guðmundssonar sem Sveinn segir að hafi misst stöðu sína sem þingflokksformaður þegar hann sneri til baka úr veikindaleyfi. „Það er ljóst að formaður Viðreisnar er að fara offari og aðstæður eru óheilbrigðar, fólk er að rotta sig saman, fólk er alvarlega veikt og að því vegið með ýmsum hætti. Forysta Viðreisnar virðist vera sjúk!?“ segir í færslu Sveins. Á pari við Flokk fólksins og enginn í þingflokknum sem hefur haft lag á Jóni Þá segir lögmaðurinn Sigurður Guðni Guðjónsson að af viðtali Jóns í Kastljósinu verði það eitt ráðið að Viðreisn sé stjórnlaust rekald á hinu pólitíska hafi. Hann hafi lýst þingflokki Viðreisnar sem heimili alkóhólista sem hann hafi ákveðið að yfirgefa. „Viðreisn virðist samkvæmt Jóni Gnarr vera á pari við Flokk fólksins í stjórn- og stefnuleysi að frátöldu því að tryggja forystunni gott viðurværi.“ Rithöfundurinn Páll Baldvin Baldvinsson segir að Jón og Tvíhöfða-félagi hans Sigurjón Kjartansson hafi byggt á sömu tækni og Abott og Castello og Martin og Lewis. „Trúðurinn og sá venjulegi, sá sem hlustaði á spaugið og svaraði með eins atkvæðis orðum og spurði. Það var uppleggið sem hratt JG á stóra sviðið. Hann er núna sóló, einstakur sem hann er. Mér leist aldrei á þingmannsferil hans en það hefur sýnilega enginn verið í þingflokknum sem hafði lag á honum.“ „Þá bað hann einhvern um að loka glugga“ Hótelstýran Margrét Rósa Einarsdóttir spyr hvort Jón hafi einfaldlega ekki bara verið latur. „Þarf maður ekki að gera eitthvað sjálfur til að breyta umhverfinu ef maður er ekki ánægður? En nú getur hann bara verið þarna og hugsað um sitt.“ Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistardoktor, segir að Jón Gnarr hafi verið allt annað en latur. Tónlistarspekúlantinn Arnar Eggert Thoroddsen er fljótur að svara Margréti Rósu. „Það má segja margt um Jón en hann er ansi langt frá því að vera latur.“ Egill Helgason segir ekki nýtt að óbreyttir þingmenn finni til valda- og áhrifaleysis. „Svo sætta þeir sig misjafnlega mikið við það. Kunn er sagan af þingmanninum sem á að hafa talað aðeins einu sinni í þingsal heilt kjörtímabil. Þá bað hann einhvern um að loka glugga,“ skrifar Egill.
Viðreisn Alþingi Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Jón Gnarr hefur sagt skilið við þingflokk Viðreisnar. Forseti Alþingis tilkynnti um breytinguna við upphaf þingfundar klukkan hálf tvö en hálftíma fyrr hafði Vísir greint frá plönum Jóns. Formaður flokksins sér á eftir Jóni sem ætlar að styðja ríkisstjórnina áfram til góðra verka. 15. október 2026 13:02 Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira
Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Jón Gnarr hefur sagt skilið við þingflokk Viðreisnar. Forseti Alþingis tilkynnti um breytinguna við upphaf þingfundar klukkan hálf tvö en hálftíma fyrr hafði Vísir greint frá plönum Jóns. Formaður flokksins sér á eftir Jóni sem ætlar að styðja ríkisstjórnina áfram til góðra verka. 15. október 2026 13:02