Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar 16. október 2026 09:32 Í liðinni viku mælti ég fyrir þingsályktunartillögu sem felur félags- og húsnæðismálaráðherra að endurskoða viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna. Tillöguna lagði ég fyrst fram í apríl 2026, þegar ég sneri sjálf aftur til vinnu að loknu fæðingarorlofi. Tillagan náði ekki fram að ganga en hana lagði ég fram að nýju við þingsetningu í byrjun september á þessu ári. Viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna var síðast endurskoðað árið 2008, þegar þáverandi félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, lagði fram frumvarp sem stytti viðmiðunartímabilið úr tveimur árum í eitt. Síðan eru liðin 18 ár. Séríslensk regla Í dag miðast greiðslur foreldra úr fæðingarorlofssjóði við launagreiðslur á tólf mánaða samfelldu tímabili sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns eða þann almanaksmánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Það er að segja – viðmiðið hefst 18 mánuðum áður en barn kemur í hendur foreldra sinna. Fyrir sjálfstætt starfandi getur tímabilið náð enn lengra aftur – það er, miða skal við tekjuárið á undan fæðingarári barns eða því ári er barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Þetta þýðir að fyrir barn sem fæðist í desember 2026 er viðmiðið árið 2025: nærri tvö ár geta þannig liðið frá upphafi tímabilsins sem er til viðmiðunar og þar til barn fæðist - og allt árið 2026 telst ekki með! Hvað getur gerst á 18 mánuðum? Ýmislegt getur gerst á 18 mánuðum eða á tveimur árum – sérstaklega hjá ungu fólki á barneignaaldri. Laun þeirra geta hækkað; þau geta verið að útskrifast úr námi; þau geta eignast fleiri en eitt barn, flust heim að loknu námi eða starfi erlendis – og þess vegna er mikilvægt að taka tillit til aðstæðna ungs fólks, ungra foreldra, þegar reikna á út hvaða greiðslur þeir eiga rétt á úr Fæðingarorlofssjóði. Við vitum öll að því fylgir aukinn kostnaður að eignast börn, bæði ný útgjöld en einnig töluvert tekjutap. Það er alveg nægileg fjárhagsleg áskorun fyrir margar ungar fjölskyldur að eignast börn. Regluverkið ætti ekki að búa til auka hindranir. Við viljum varla horfa upp á það að pör seinki barneignum til að tryggja framfærslu fjölskyldunnar eftir fæðingu barns, eða taki ákvörðun um það hvenær barn númer tvö fái bætast við fjölskylduna fyrst og fremst út frá því hvernig fæðingarorlofsgreiðslurnar eru reiknaðar. Við þurfum ekki að finna upp hjólið Við skerum okkur frá hinum Norðurlöndunum þegar kemur að viðmiðunartímabili fæðingarorlofsgreiðslna. Fyrir launafólk er íslenska viðmiðið fjarlægara þeim tekjum sem fólk hefur við upphaf orlofs en almennt gerist í Danmörku, Noregi og Finnlandi. Jafnframt getur langur tími liðið frá viðmiðunartímabilinu hjá sjálfstætt starfandi þar til kemur að töku orlofs. Í Danmörku og Noregi byggir útreikningur fæðingarorlofsgreiðslna almennt á síðustu þremur mánuðum fyrir töku orlofs. Í Svíþjóð byggjast tekjutengdar greiðslur á væntum árstekjum. Í Finnlandi er viðmiðunartímabilið hvað lengst: 12 mánuðir en þó með aðeins einum almanaksmánuði milli þess og upphafs greiðslna. Víðast hvar eru gerðar undanþágur miðað við aðstæður foreldra: til að mynda ef þunguð kona fer í veikindaleyfi á viðmiðunartímabilinu, ef launahækkun á sér stað áður en orlofstaka hefst, ef foreldri er ráðið í nýtt starf og ráðningin hefur staðið skemur en viðmiðunartímabilið kveður á um og jafnvel ef foreldri hefur nýlega stofnað fyrirtæki. Hér á landi líða hins vegar sex mánuðir frá því að viðmiðunartímabili lýkur þar til foreldrarnir fá barn í hendurnar. Jafnframt er miðað við fæðingarmánuð barns en ekki upphaf orlofstöku – sem getur haft áhrif til lækkunar til dæmis fyrir feður sem oft taka orlof á eftir móður. Ef faðir tekur orlof þegar barn er 6 mánaða gamalt þá er heilt ár liðið frá viðmiðunartímabilinu; ef barn er 12 mánaða gamalt þegar faðir tekur orlof þá eru 18 mánuðir liðnir frá viðmiðunartímabilinu (og 30 mánuðir frá upphafi þess). Breytinga er þörf Ákveðnar undantekningar eru gerðar hér – til dæmis ef fyrra fæðingarorlof lendir inni á viðmiðunartímabili fyrir næsta barn þá lítur Fæðingarorlofssjóður fram hjá því og notar viðmiðunartímabil úr fyrra orlofi til að reikna út næstu greiðslur. Fæðingarorlofssjóður tekur þannig ekki 80% af þeim 80% sem foreldri á rétt á í fæðingarorlofi. Hins vegar ef foreldri dreifir orlofinu yfir á fleiri mánuði byrjar fólk að finna fyrir skerðingum. Þessu þarf að breyta að mínu mati og kemur núverandi framkvæmd helst niður á mæðrum sem eru líklegri en feður til að dreifa orlofi sínu. Feður finna þó einnig fyrir þessum reglum þar sem oftast líður enn lengri tími frá viðmiðunartímabili orlofs þar til þeir ljúka orlofstöku. Ef stutt er á milli barna geta foreldrar jafnframt lent í því að viðmiðið sem notast er við sé margra ára gamalt og endurspeglar þar með engan veginn rauntekjur þeirra. Hvað hefur áunnist? Jákvæðar breytingar hafa átt sér stað á síðastliðnum árum og áratugum á fæðingarorlofskerfinu. Með setningu laga nr. 97/1980 varð réttur til greiðslna í fæðingarorlofi almennur fyrir mæður á vinnumarkaði og réttur til að snúa aftur til starfs viðurkenndur. Mæður fengu þá samtals þrjá mánuðií fæðingarorlof. Móðir gat óskað eftir því að faðir tæki síðasta mánuðinn en það var afar sjaldgæft á þeim tíma að feður tækju orlof. Árið 1990 var fæðingarorlofið lengt í sex mánuði og árið fengu feður sjálfstæðan rétt til tveggja vikna fæðingarorlofs til viðbótar. Fæðingarorlof var síðan lengt í áföngum með vaxandi sjálfstæðum rétti feðra til ársins 2021 þegar fæðingarorlofið var loks lengt úr 10 mánuðum í 12. Kvennalistinn og verkalýðshreyfingin eiga stóran hlut í þeim árangri sem hefur náðst – og í því að í mörgum tilvikum er horft til Íslands sem fyrirmyndar þegar kemur að skipulagningu fæðingarorlofs. Hækkanir á greiðslum fæðingarorlofs hafa einnig átt sér stað á síðustu árum og í dag er Ísland það land sem er með hvað hæstar fæðingarorlofsgreiðslur í heiminum. Það skiptir það máli þegar kemur að jafnrétti en líka afkomuöryggi fjölskyldna. Hvað hefur áunnist á þessu kjörtímabili? Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tryggði snemma á þessu kjörtímabili að við hækkun á þaki fæðingarorlofsgreiðslna skipti ekki máli hvenær árs barn fæddist - allir í orlofi sem áttu rétt á hækkunum á þeim tíma sem þær tóku gildi fengu hækkanirnar. Þannig verða foreldrar barns ekki lengur af hundrað þúsund krónum á mánuði fyrir skatt ef barn þeirra fæðist röngum megin við áramót. Lágmarksgreiðslur fæðingarorlofs voru jafnframt hækkaðar í byrjun kjörtímabils og fæðingarstyrkur námsmanna. Fæðingarorlof fjölburaforeldra og mæðra sem veikjast á meðgöngu var lengt og fæðingarorlofslögin löguð til að tryggja að réttindi varðandi fæðingarorlof séu tryggð þeim sem flytja til landsins og eiga börn eftir að hafa starfað innan EES-svæðisins á viðmiðunartímabilinu. Næsta skref Margt hefur áunnist en stöðugt þarf að halda áfram að bæta kerfið svo það virki fyrir fólkið sem reiðir sig á það. Heil 18 ár eru liðin frá síðustu heildarendurskoðun á viðmiðunartímabili fæðingarorlofsgreiðslna sem lögfest var í tíð Jóhönnu Sigurðardóttur sem félags- og tryggingarmálaráðherra. Að mínu mati er kominn tími á næstu endurskoðun – og ég vonast eftir því að hægt sé að sammælast um slíkar breytingar þvert á flokka, í breiðri sátt við verkalýðshreyfinguna, kvenréttindasamtök, fjölskyldur og foreldra. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragna Sigurðardóttir Samfylkingin Fæðingarorlof Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Skoðun Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun