Skoðun

Aug­lýst eftir máls­vara Suður­kjör­dæmis

Jón Bjarnason skrifar

Skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar setja sterkan svip á fjárlög ársins 2027. Þegar heildarmyndin er skoðuð frá sjónarhóli Suðurkjördæmis vekur þó sérstaka athygli hversu margar þessara aðgerða leggjast með þungum hætti á atvinnulíf og heimili í kjördæminu.

Þar ber fyrst að nefna nýtt náttúru- og innviðagjald sem ríkisstjórnin hefur boðað samhliða fjárlagavinnunni. Samkvæmt frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðherra eiga erlendir ferðamenn að greiða fyrir aðgang að Geysi, Gullfossi vestan megin og Þingvöllum. Allir þrír staðirnir eru í Suðurkjördæmi, allir í uppsveitum Árnessýslu á einu atvinnusvæði og allir í sama sveitarfélaginu. Ríkisstjórnin nefnir meðal annars svokallaða „álagsstýringu“ sem rök fyrir gjaldtökunni. Á einfaldri íslensku má segja að markmiðið sé að stýra ferðamönnum frá þessum ferðamannastöðum, og þar með frá uppsveitum og Suðurlandi.

Ferðaþjónustan á Suðurlandi og í uppsveitum hefur ekki sprottið upp af sjálfu sér. Í kringum þessa áfangastaði hafa uppsveitir byggt upp markaðsstarf með sérstökum ferðaþjónustufulltrúa í marga áratugi. Einstaklingar hafa byggt upp fyrirtæki, veitingastaði, gististaði, afþreyingu og fjölbreytt störf. Þúsundir manna eiga afkomu sína að einhverju leyti undir því að ferðamenn sæki svæðið heim.

Full ástæða er til að staldra við þegar ríkisstjórnin ætlar að innleiða gjald með jafn skömmum fyrirvara sem ætlað er að stýra fólki úr uppsveitum og þar með þeim svæðum Suðurlands sem tengja svæðið við flugvöll og höfuðborg á önnur svæði. Mér er til efs að þarna sé gætt meðalhófs og að jafnræðisreglu sé fylgt gagnvart samfélagi og fyrirtækjum í uppsveitum Árnessýslu.

Þá kemur annað högg á atvinnugrein sem er sérstaklega fyrirferðarmikil í Suðurkjördæmi. Ríkisstjórnin leggur til að aðgangseyrir að baðlónum og sambærilegri starfsemi færist úr 11% virðisaukaskatti í 24%. Skattar hafa áhrif á verð, fjárfestingar og ákvarðanir fyrirtækja og viðskiptavina. Í Suðurkjördæmi hefur orðið mikil uppbygging í jarðböðum, gistingu og tengdri ferðaþjónustu. Það skýtur því skökku við að á sama tíma og við sjáum mikla fjárfestingu í þessari grein skuli ríkisstjórnin ákveða að hækka skatta á hana, sérstaklega þegar sífellt fleiri teikn eru á lofti um að Ísland sé að verða of dýr áfangastaður fyrir ferðamenn, engin fjölgun átt sér stað undanfarin ár og samkeppnisstaða Íslands orðin þung.

Þegar hvert gjaldið á fætur öðru leggst á ferðaþjónustuna er erfitt að saka ríkisstjórnina um sérstakan hlýhug í hennar garð.

Þriðja atriðið snýr svo að nánast öllum heimilum: kílómetragjaldinu, sem á að hækka um tæplega 16% á einu ári. Slík hækkun kemur auðvitað við landsmenn alla, en áhrif hennar eru ekki þau sömu alls staðar. Kjördæmið nær frá Suðurnesjum alla leið austur í Hornafjörð og til Vestmannaeyja. Þarfir samfélaganna eru auðvitað ólíkar.

Á Suðurnesjum vega ferðaþjónustan, flugvöllurinn og mikil atvinnusókn til höfuðborgarsvæðisins þungt. Í uppsveitum Árnessýslu og í raun um allt Suðurland er ferðaþjónustan einn af burðarásum atvinnulífsins. Eftir því sem austar dregur verða vegalengdirnar lengri og bíllinn enn mikilvægari hluti af daglegu lífi fólks. Í Vestmannaeyjum bætist svo við sérstaða eyjasamfélagsins og mikilvægi öruggra samgangna.

Maður hefði haldið að einhver við ríkisstjórnarborðið hefði rekið augun í þetta. En þá er auðvitað sú staða uppi að enginn ráðherra ríkisstjórnar Íslands er þingmaður Suðurkjördæmis. Lítið hefur heyrst frá þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna í Suðurkjördæmi, en kjördæmið á skilið að eiga sér öfluga málsvara á Alþingi, ekki síst meðal þeirra sem standa að ríkisstjórn hverju sinni.

Oft er þörf en nú er nauðsyn!

Höfundur er oddviti Hrunamannahrepps.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×