Atvinnulíf

Úr­elt við­horf: Hraðari breytingar á við­horfi starfs­fólks en stjórnun

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sigvaldi Egill Lárusson, ráðgjafi hjá Hugsýn, segir viðverustjóra dæmi um quick-fix á langtímavandamáli sem nokkuð fyrirséð er að muni ekki ná að uppræta rót veikindavandans. Horfa þurfi til úreltra viðhorfa í stjórnun, því nýtt fólk á vinnumarkað hugsi allt öðruvísi en þeir sem eldri eru.
Sigvaldi Egill Lárusson, ráðgjafi hjá Hugsýn, segir viðverustjóra dæmi um quick-fix á langtímavandamáli sem nokkuð fyrirséð er að muni ekki ná að uppræta rót veikindavandans. Horfa þurfi til úreltra viðhorfa í stjórnun, því nýtt fólk á vinnumarkað hugsi allt öðruvísi en þeir sem eldri eru. Vísir/Anton Brink

Það er fyrir löngu orðið opinbert leyndarmál að veikindi mælast hærri hjá hinu opinbera miðað við einkageirann. Og vandinn vex.

Ýmsar ráðstafanir hafa verið gerðar hér og þar. Í flestum tilfellum með einhverjum árangri.

Eða hvað?

Því að mati Sigvalda Egils Lárussonar, ráðgjafa hjá Hugsýn, eru lausnir eins og viðverustjórnun líklegar til að deyja út.

Þótt vandinn haldi áfram að vaxa.

„Fólk veit alveg að það á að mæta í vinnuna, aukið eftirlit er ekki lausnin“ segir Sigvaldi.

„Viðverustjórnun er dæmigert Quick-fix þar sem ætlunin er að reyna að leysa úr langtímavanda með skammtímalausn.“

Til lengri tíma skili það meiri árangri að breyta viðhorfi í stjórnun.

Staðreyndin er einfaldlega sú að viðhorf í stjórnun og stjórnunarhættir hafa ekki þróast á sama hraða og breytt viðhorf vinnuaflsins.“

Í Atvinnulífinu í gær og í dag er fjallað um úrelt kerfi og úrelt viðhorf í tengslum við veikindi og heilsu.

Nýtt fólk, gamlar aðferðir

Sigvaldi segir miður að fylgjast með þeirri umræðu og þróun ár eftir ár að veikindi séu að aukast og jafnvel farið yfir 10% hlutfallið eins og dæmi eru um í einstaka einingum.

Sigvaldi segir fyrirséð að vandinn muni vaxa nema úrelt viðhorf víki.

Því það eru nýjar kynslóðir að koma inn á vinnumarkaðinn og þær hugsa einfaldlega allt öðruvísi en fyrri kynslóðir.“

Það sem hafi í raun verið vitað í áratugi verði enn sýnilegra nú: Fólk verður að upplifa tilgang.

„Fólk vill finna tilgang með störfum sínum, hafa raunveruleg áhrif, skilja stærra samhengið og svo verður einfaldlega að vera gaman í vinnunni. Misræmið á bara eftir að aukast ef stjórnendur halda áfram að stýra stofnunum með gömlum aðferðum. Þetta er ekki eitthvað sem leysist af sjálfu sér.“

Sem betur fer þarf þó ekki að finna neitt nýtt hjól fyrir stjórnendur í þessu. Enda segir Sigvaldi lausnina vel þekkta og studda margítrekuðum rannsóknum. Sigvaldi vísar meðal annars til alþjóðlegra rannsókna Gallup á helgun í starfi.

„Munurinn á milli þeirra vinnustaða og teyma sem búa yfir mikilli helgun samanborið við þau sem hafa litla helgun er sláandi: 

Það mælist 81 prósenta munur á fjarvistum, 64 prósenta munur á vinnuslysum, auk þess sem teymi með mikla helgun skila 23 prósentum meiri árangri og 18 prósentum meiri framleiðni. Þetta eru gríðarlegir mælanlegir þættir.“

Sigvaldi bendir á að samkvæmt rannsóknum mælast fjarvistir 81% færri hjá vinnustöðum þar sem helgun er mikil og starfsfólk upplifir að það hafi tilgang. Það jákvæða við mannauðslindina sé líka það að hún sé eina auðlindin sem vex eftir því sem hún er notuð og efld.Vísir/Anton Brink

Tækifæri en ekki kvöð

Sigvaldi ítrekar að til lengri tíma litið hafi hann ekki trú á þessum „quick-fix“ lausnum sem mjög margir opinberir aðilar hafa gripið til.

Tækifæri til vaxtar felist í mannauðnum.

„Ef við hugsum um mannauðinn sem náttúruauðlind eða auðlind þá er hún eina auðlindin sem vex við notkun. Það er að segja þegar hún er notuð þá er það efla starfsfólkið. Þú ert að auka færni. Það er frjórri hugsun meiri nýsköpun, aukið sjálfstraust. 

Ólíkt öðrum auðlindum þá virkar mannauðsauðlindin þannig að hún vex við notkun.“

Það sé líka úrelt viðhorf að horfa til viðveru og ekki í takt við það viðhorf sem nýtt fólk inn á vinnumarkaðinn er með.

„Einu sinni var frammistaða mæld með vinnustundum. Það þótti dugnaður að vinna langa vinnudaga. Þetta er algjörlega úrelt viðhorf í dag. Fólk vill vera með skýra hugmynd um til hvers er ætlast af því og vera síðan treyst fyrir þeim verkefnum sem því ber að sinna.“

Að mæla viðveru sé því skref nær fortíðinni frekar en viðhorfi framtíðarinnar. Þarna sé stjórnunarstíllinn ekki í takt við það sem koma skal.

Sigvaldi nefnir þó að það sé víðar en hjá hinu opinbera sem þessi stjórnunarstíll er of einkennandi.

„Margir halda að fólk sé alveg með á hreinu til hvers er ætlast til af því. En rannsóknir sýna okkur hins vegar að alltof margt fólk upplifir sig ekki vera með það á hreinu. Sem þýðir að auðvitað er erfitt að upplifa tilganginn sinn í vinnu, ef þú ert ekki alveg með á hreinu til hvers er í raun verið að ætlast til af þér.“

En þessi helgun og að upplifa tilganginn og svo framvegis – er þetta ekki bara enn eitt dæmið um klisjukennda umræðu?

„Nei, ég tel svo alls ekki vera,“ svarar Sigvaldi um hæl.

„Því þessi helgun, þessi mælikvarði að fólk einfaldlega mæti betur, vinni betur, líði betur og svo framvegis, hefur verið rannsakaður og staðfestur með gögnum í svo langan tíma. Að ná breytingunni í viðhorfi og stjórnarháttum er frekar það sem hamlar.“

En hvað geta vinnustaðir þá gert, ekki síst hið opinbera þar sem veikindin mælast hæst og miklir fjármunir eru í húfi?

„Tækifærin eru reyndar til staðar. Til dæmis standa ríkisstofnanir nú frammi fyrir því að skila inn þriggja ára stefnumótun og innleiða stefnumiðaða stjórnarhætti á grundvelli laga um opinber fjármál,“ segir Sigvaldi og bætir við:

„Fjármála- og efnahagsráðuneytið setti fyrr á árinu upp sérstakt mælaborð til að fylgjast með skilum stofnana, auk þess sem Ríkisendurskoðun hefur gert athugasemdir við stöðuna hjá ýmsum stofnunum.“

Að mati Sigvalda er þarna kjörið tækifæri fyrir hið opinbera til að snúa blaðinu við. Þó með þeim fororðum að viðhorfið þurfi þá að vera rétt og í takt við breytta tíma.

„Tækifærið sem blasir við er æpandi,“ segir Sigvaldi.

„Stofnanir mega alls ekki nálgast þetta sem enn eina leiðinlegu kvöðina til þess eins að tikka í boxið hjá ráðuneytinu fyrir skilafrestinn 15. nóvember. Ef menn horfa á þetta með stærri tilgang að leiðarljósi geta stjórnendur nýtt þessa innleiðingu til að bæta samstillingu, skýra ábyrgð og innleiða virkt árangursmat. 

Þannig er lagður raunverulegur grundvöllur að helgun í starfi – og þar með tekið á rót veikindavandans í stað þess að plástra hann með viðverustjórum.“


Tengdar fréttir

Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“

„Ef starfsemi VIRK, sem hófst 2009, er undanskilin þá erum við með yfir 40 ára gamalt kerfi sem hefur ekki náð að þróast í takt við breytta tíma og því gott að taka samtalið,“ segir Valgeir Sigurðsson, einn stofnenda Vinnuverndar.

„Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“

„Ástæðan fyrir því að við viljum vekja máls á þessum sjónarmiðum er sú orðræða og fyrirsagnarnotkun sem við höfum verið að sjá undanfarið þessum málum tengt,“ segir Helena Jónsdóttir sálfræðingur og einn eigenda Mental ráðgjafar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×