Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Rakel Sveinsdóttir skrifar 12. september 2026 10:03 Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðarins segir ótrúlega gaman að fylgjast með litlu trillunum og stóru skemmtiferðaskipunum í Hafnarfjarðarhöfn. Fátt hræðist hann meir en að tapa fyrir eiginkonunni í golfi. Vísir/Anton Brink Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég er venjulega að vakna um klukkan 6 á virkum dögum, en um helgar reyni ég að hvíla mig lengur og njóta augnabliksins – nota aldrei vekjaraklukku nema þegar við eigum flug mjög snemma.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Kaffi fyrst, svo heimsspæjarinn! Ég fæ mér kaffibolla, horfi yfir sjóinn og fylgist með lífinu á höfninni og í miðbænum. Það er svo ótrúlega gaman að fylgjast með litlu trillunum og stóru skemmtiferðaskipunum í Hafnarfjarðarhöfn. Svo þarf ég að sinna litla gleðigjafanum á heimilinu, kisunni okkar Múslí. Eftir það er kveikt á vinnutölvunni og fjörið hefst.“ Er eitthvað sem hræðir þig þvílíkt á fyndinn hátt? „Að tapa fyrir konunni í golfi… það myndi þýða endalok golfferilsins hjá mér. Ég er mikill keppnismaður!“ Guðmundur Bjarni heldur utan um skipulagið sitt með því að skrifa allt niður á lista, helst áður en hann mætir til vinnu. Á listann fara verkefni og forgangsröð þeirra. Enda í mörgu að sýsla segir hann, sjálfur sýslumaðurinn í Hafnarfirði að eiginn sögn. Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Það er nóg um að vera þessa dagana! Við erum á fullu að markaðssetja nýjan og breyttan Fjörð verslunar- og menningarmiðstöð og erum nýbúin að opna glæsilegt bókasafn á annarri hæðinni. Við erum líka á fullri ferð að selja glæsilegar íbúðir sem staðsettar eru ofan á Firði – áhugasamir geta kynnt sér þær á 220midbaer.is – ásamt því að reka Strand Hótel Apartments sem er hér á Strandgötunni. Og svo eru jólin auðvitað farin að banka upp á! Við erum byrjuð að undirbúa jólavertíðina en Jólaþorpið er ein af stærstu hátíðum ársins hér í Hafnarfirði. Algjör skyldumæting er að láta sjá sig í Jólaþorpinu – já, jólin koma snemma hjá okkur.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Já, þar sem maður er sýslumaðurinn í Hafnarfirði er margt að sýsla! Þar sem við erum bara tvö í öllum þessum verkefnum er mikilvægt að forgangsraða verkunum og koma þeim niður á blað sem þarf að klárast þann daginn. Listann reyni ég oftast að gera áður en ég mæti til vinnu. Við skiptum verkefnunum á milli okkar, ég og eldri dóttir mín Guðrún María, en dagarnir eru ófyrirsjáanlegir og við náum sjaldan að klára listann – þá eru kvöldin oft notuð.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Hef lengi farið seint að sofa og vaknað snemma, en núna leitast ég við að fara upp í rúm fyrir miðnætti – góður svefn er gulli betri.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01 Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02 Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00 Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00 „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Rebekku Jóelsdóttur, fjármálastjóra Mílu, finnst hún vera hrikalega handlagin heima fyrir. Hennar nánustu eru ekki endilega sama sinnis. Þegar daginn fer að lengja riðlast svefntíminn á kvöldin. 30. maí 2026 10:00 Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Fleiri fréttir Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01
Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02
Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00
Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00
„Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Rebekku Jóelsdóttur, fjármálastjóra Mílu, finnst hún vera hrikalega handlagin heima fyrir. Hennar nánustu eru ekki endilega sama sinnis. Þegar daginn fer að lengja riðlast svefntíminn á kvöldin. 30. maí 2026 10:00