Atvinnulíf

Úr­elt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjár­magn“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, hélt erindi á ráðstefnunni Heilsan til framtíðar sem vakti athygli. Enda benti Sigurbjörg þar á að erlendis nýta löndin í kringum okkur apótekin sem fyrsta viðkomustað, áður en fólk fer á heilsugæslu. 
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, hélt erindi á ráðstefnunni Heilsan til framtíðar sem vakti athygli. Enda benti Sigurbjörg þar á að erlendis nýta löndin í kringum okkur apótekin sem fyrsta viðkomustað, áður en fólk fer á heilsugæslu.  Vísir/Anton Brink

Það er ekkert nýtt fyrir okkur almúgann að fylgjast með hagsmunapoti heilbrigðiskerfisins í fréttum fjölmiðla: Landspítalinn talar fyrir sínu; þarf meira fjármagn. Læknar verja sitt; eru mikilvægastir og vita mest. Hjúkrunarfræðingar verja sitt; geta meira og þurfa meira.

Eru þá óupptaldir aðrir aðilar innan kerfisins; allir vilja meira, þurfa meira, geta meira.

En getur verið að við séum föst í úreltum kerfum á Íslandi?

Jafnvel umfram aðrar þjóðir?



Svo virðist vera og án efa væri hægt að tína mörg dæmi til um það. Á ráðstefnu Lyfju, Heilsan til framtíðar, í síðustu viku hélt Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, erindi sem vakti athygli.

Enda opinberaði það dæmi um hvernig aðrar þjóðir hafa þróað og breytt sínum kerfum. Á meðan litla Ísland heldur enn í það sem eitt sinn var.

„Við erum ekki að gagnrýna að kerfið hafi einhvern tímann verið vitlaust sett upp – það virkaði á sínum tíma en virkar einfaldlega ekki lengur. Álagið í heilbrigðiskerfinu er stöðugt að aukast og allir segjast vera að drukkna,“ segir Sigurbjörg sem skýrir út með dæmum á eftir hvers vegna hún telur þekkingu lyfjafræðinga verulega vannýtta á Íslandi.

„Lönd eins og Bretland og Kanada eru ljósárum á undan okkur. Þar hefur apótekum markvisst verið breytt í beina heilbrigðisþjónustu. 

Í Bretlandi er til að mynda unnið eftir módelinu Pharmacy First. 

Ef einstaklingur fær til dæmis þvagfærasýkingu eða streptókokka getur hann leitað beint í apótek, farið í viðtal og greiningu og fengið viðeigandi meðferð og lyfjaávísun án þess að bóka tíma hjá heilsugæslulækni.“

Í Atvinnulífinu í þessari viku fjöllum við um úrelt kerfi og úrelt viðhorf tengd heilsu og heilbrigði.

Apótekið fyrst, síðan heilsugæslan

Það er ekkert séríslenskt við að þjóðin sé að eldast og álagið á heilbrigðiskerfið að aukast. 

Það sem er hins vegar öðruvísi en áður var er að í dag byggir heilbrigðiskerfið upp á mörgum ólíkum fagstéttum. Oft hámenntuðu fólki sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu.

Að sögn Sigurbjargar erum við hins vegar ekki að nýta þekkingu mannauðsins rétt. Sérþekking lyfjafræðinga er þar dæmi.

„Því staðreyndin er sú að ef við myndum nýta þekkingu fagfólks í apótekum sem fyrsta viðkomustað almennings myndi það auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu,“ segir Sigurbjörg.

Frá febrúar 2024 til september 2026 afgreiddu lyfjafræðingar í breskum apótekum 14 milljónir þjónustu- og ráðgjafatilvika.

Yfirfært yfir á Íslandi myndi þetta jafngilda því að lyfjafræðingar myndu afgreiða í apótekum 140.000 erindi sem annars myndu flæða inn á heilsugæslur eða Læknavaktina.

„Þetta eru gríðarlegar tölur sem gætu breytt aðgengi fyrir fólk og tryggt jafnframt að alvarlegri tilfelli komist fyrr í viðeigandi meðferð.“

Sigurbjörg nefnir sem dæmi að erlendis geti fólk fengið aðstoð frá lyfjafræðingum í apótekum við til dæmis þvagfærasýkingu eða streptókokka, án þess að fara á heilsugæsluna. Norðurlöndin eru komin langt á undan Íslandi og það sama á við um lönd eins og Bretland og Kanada.Vísir/Anton Brink

Dæmi um breytt apótek

Þótt Sigurbjörg nefni Bretland sem dæmi á framþróunin einnig við um önnur lönd.

„Norðurlöndin eru til dæmis komin mörgum skrefum á undan okkur.“

Sjálf segist hún ekki tala fyrir því að Ísland eigi að taka upp þetta kerfi eða hitt. Fyrst og fremst sé hún að benda á að ekki sé verið að nýta þau tækifæri sem fyrir eru til að létta á heilbrigðiskerfinu.

Innviðir séu til dæmis ekki nýttir.

„Öll íslensk apótek eru útbúin viðtalsherbergjum, þetta er lögboðin krafa. Fólk veit ekki af þessum herbergjum, því hefur einfaldlega aldrei verið boðið þangað inn. Flestir tengja lyfjafræðinga við að starfa á bak við, upptekna við að afgreiða lyfseðla. Ég hef meira að segja heyrt lyfjafræðinga segja að þeir hafi ekki áhuga á að vinna í apóteki því þeim finnst þeir ekki fá að nýta menntun sína og þekkingu nægilega vel. Það er auðvitað umhugsunarvert.“

Sigurbjörg nefnir nokkur dæmi um verkefni sem lyfjafræðingar gætu hæglega afgreitt ef kerfið hér væri í samræmi við það sem þekkist erlendis.

1. Meðferð og ávísun við algengum, afmörkuðum kvillum: Svo sem þvagfærasýkingum eða streptókokkum, þar sem rannsóknir sýna að hægt er að leysa málin á öruggan hátt samkvæmt skýrum klínískum verklagsreglum.

2. Kennsla og tæknileg aðstoð við lyfjanotkun: Til dæmis innöndunarlyf. Ef lyfjafræðingur kennir sjúklingi á tækið aukast líkurnar á réttri notkun upp í yfir 70%.

3. Stuðningur við upphaf lyfjameðferðar: Þegar einstaklingur greinist með langvinna sjúkdóma, svo sem hjartasjúkdóma eða sykursýki, ætti lyfjafræðingurinn að taka samtalið um hvernig á að taka lyfin, fylgjast með aukaverkunum og aðlaga meðferðina að lífi sjúklingsins. Læknirinn greinir en lyfjafræðingurinn fylgir lyfjunum eftir.

4. Niðurtröppun lyfja: Apótekin gætu verið kjörinn vettvangur til að hjálpa fólki að trappa niður lyf sem ekki er lengur þörf á, í samstarfi við meðferðaraðila.

Við erum mögulega að nota lyf sem einu sinni gögnuðust fólki og svo er bara að endurnýja, endurnýja, endurnýja. 

Svo eldumst við og þurfum kannski ekki lengur á lyfjunum að halda eða efnaskiptin breytast. 

En við á Íslandi erum rosalega léleg í að endurskoða lyfjameðferð og bara taka stöðuna. Jafnvel apótekslyfjafræðingar upplifa að fólk kemur til sín og vill láta endurskoða lyfin sín.“

Sigurbjörg segir lyfjafræðinga til dæmis geta aðstoðað við að trappa fólk niður á lyfjum. Á Íslandi séum við almennt ekki góð í að endurmeta lyfjastöðu og því sé algengt að fólk sé að endurnýja sömu lyfin ár eftir ár, þótt þau séu jafnvel ekki að gagnast þeim lengur.Vísir/Anton Brink

Úrelt kerfi

En hvernig gengur þetta fyrir sig rekstrarlega? Eiga apótekin þá að greiða fyrir það að lyfjafræðingar séu með fólki í viðtals- og ráðgjafatímum?

„Eins og þetta er gert erlendis gerir ríkið ákveðna samninga um að grunnþjónusta sé veitt í apótekunum. Í Kanada eru til dæmis skilyrði um að fólk eigi að komast í tíma samdægurs. Um þetta þarf auðvitað að semja.“

En hvers vegna eru önnur lönd að breyta sínum kerfum á meðan Ísland situr enn á gömlum stað?

Sigurbjörg telur skýringuna að hluta til ótta.

„Ein af þeim áhyggjum sem hafa komið fram varðandi breytta verkaskiptingu er hættan á aukinni sýklalyfjanotkun. Rannsóknir frá Bretlandi benda hins vegar til þess að hægt sé að fela lyfjafræðingum aukið hlutverk í meðferð afmarkaðra kvilla án þess að það leiði sjálfkrafa til aukinnar sýklalyfjanotkunar. Þar skipta skýrar klínískar verklagsreglur og faglegt mat lykilmáli.“

Þetta hljómar reyndar sem enn ein birtingarmyndin af því hvernig faghópar og stofnanir innan heilbrigðiskerfisins eru alltaf fyrst og fremst að hugsa um sinn eigin hag – eða hvað?

Sigurbjörg kinkar kolli, umræðan sé eldfim.

En segir þó:

„Ef samvinna milli stétta væri meiri værum við komin miklu, miklu lengra í að auka skilvirkni í heilbrigðisþjónustu. Við þurfum að hverfa frá hefðbundinni stigskiptingu í heilbrigðiskerfinu og byggja þjónustuna í auknum mæli á þverfaglegri samvinnu. Sjúklingurinn á að vera í miðpunkti og sérþekking hverrar heilbrigðisstéttar að nýtast þar sem hennar er mest þörf,“ en bætir við:

Því miður virðumst við samt almennt hrædd við átök og erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn.“

Sigurbjörg segir að ef samvinna stétta innan heilbrigðiskerfisins væri meiri, værum við komin miklu, miklu lengra í að auka á skilvirkni heilbrigðiskerfisins, þar sem sjúklingurinn væri miðpunkturinn. Því miður erum við hins vegar föst í því að allir hópar eru að verja sín svæði og sitt fjármagn.Vísir/Anton Brink

En hvernig getum við brotið okkur úr þessum gömlu viðjum?

„Það þarf pólitískt hugrekki. Í Halifax í Kanada spurði ég forstjóra lyfjastofnunarinnar hvernig þeir hefðu náð þessu í gegn þrátt fyrir mótspyrnu annarra fagstétta. Svarið var einfalt: Heilbrigðiskerfið var að drukkna og hagsmunir sjúklinga urðu að ganga framar hagsmunum faghópa,“ segir Sigurbjörg og auðheyrt er að hún hefur sjálf trú á að núverandi heilbrigðisráðherra muni meira horfa til gagna en gamalla kerfa.

Við höfum ekki efni á að vannýta sérfræðiþekkingu heilbrigðisstarfsfólks á sama tíma og álagið á kerfið eykst. 

Lyfjafræðingar geta lagt mun meira af mörkum til heilbrigðisþjónustunnar en núverandi skipulag gerir ráð fyrir. Við þurfum að skapa þeim tækifæri til þess. Þetta snýst fyrst og fremst um að nýta betur þann mannauð sem við höfum og bæta þjónustuna við almenning.“


Tengdar fréttir

Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“

„Ef starfsemi VIRK, sem hófst 2009, er undanskilin þá erum við með yfir 40 ára gamalt kerfi sem hefur ekki náð að þróast í takt við breytta tíma og því gott að taka samtalið,“ segir Valgeir Sigurðsson, einn stofnenda Vinnuverndar.

Ekkert blabla: Ís­lenska vinnu­markaðsmódelið deyjandi

„Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar.

Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðs­lega fokking erfitt og það má vera það“

„Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×