Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Valur Páll Eiríksson skrifar 17. október 2026 09:03 Gauti Guðmundsson varð eðlilega fyrir miklum vonbrigðum þegar hann missti af sæti á ÓL. Eftir að hafa íhugað að hætta er hann kominn aftur á fullt og stefnir hátt á HM. Vísir/Sigurjón Gauti Guðmundsson, skíðakappi og margfaldur Íslandsmeistari, íhugaði að hætta þegar ljóst varð að sæti hans á Vetrarólympíuleikunum varð að engu. Hann hefur nú sett sér ný markmið og stefnir hátt á HM.
Gauti er kominn á fullt í Alpafjöllum fyrir komandi tímabil. Eftir að hafa eytt tveimur árum í það verkefni fyrir augum að komast á Vetrarólympíuleika var hann þó ekki viss um að hann myndi halda atvinnumannaferlinum áfram. Klippa: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ „Það var svona aðeins óljóst eftir að ég komst ekki á Ólympíuleikana núna í febrúar eftir mikla vinnu, tvö ár af miklu álagi. Þá kemur aðeins kafli þar sem maður veit ekki hvað maður er að gera. En svo ákvað ég það í sumar að ég væri klár að keyra á þetta aftur og þá bara keyrðum við þetta í gang og fórum út í fyrstu ferð,“ segir Gauti í samtali við íþróttadeild Sýnar. Gauti í brekkunniAðsend Það hljóta að vera samt svona blendnar tilfinningar. Þú ferð væntanlega langt niður en samt að samgleðjast félaga á sama tíma? „Það er erfitt en á sama tíma örugglega gott fyrir mann líka. Sjá að þetta snýst ekkert alltaf endilega um eina stóra markmiðið heldur bara hvað maður lærir á leiðinni. Besti vinur minn fór á leikana, stóð sig fáránlega vel þannig að það er ekkert hægt að vera sár út í það. Maður bara tekur það sem maður lærir og heldur áfram sko.” Hver er þankagangurinn þegar að síðan kemur að því að þú breytir um skoðun og ákveður að keyra á þetta? „Já, það er svona bara þetta tækifæri sem að maður er að fá. Ég er 24 ára, er búinn að vera að gera þetta síðan ég var lítill, búinn að vera í rauninni svona hálfpartinn atvinnumaður í fjögur ár núna. Ég mun aldrei fá þetta tækifæri aftur þannig að það er bara tími til þess að gefa allt í og hérna, vona það besta sko,“ segir Gauti. Gauti er kominn aftur í fjallið.Aðsend Gömul saga og ný Atvinnumenn í einstaklingsgreinum mæta þá öðrum og ef til frekari áskorunum en þeir sem stunda hópíþróttir. Þekktar eru áskoranir afreksíþróttafólks við að fjármagna feril sinn og þurfa að vinna með íþróttinni. Lífi atvinnumanns á skíðum fylgja allskyns áskoranir. „Já, það eru alls konar áskoranir. Maður er að fjármagna þetta að mestu leyti sjálfur. Það koma styrkir frá ÍSÍ og Skíðasambandinu líka. En mestmegnis er maður að fjármagna þetta sjálfur þannig að það er mikil vinna á bak við það. Sjá til þess að það sé hægt að kaupa ný skíði og bóka flug og svo,“ segir Gauti sem sendir pósta víða leitandi að fjármögnun. „Það er í rauninni bara þannig. Maður sendir pósta og gerir stundum kannski samning fyrir ár að fá eitthvað mánaðarlega. Stundum bara eingreiðslu og stundum nær maður að fá frían búnað eða eitthvað svoleiðis. Þannig að þetta er bara alls konar. Maður bara reddar sér eins og maður getur,“ segir Gauti. Gauti æfir mikið hér heima á sumrin, þó ekki í brekkunni, samhliða sumarvinnu sem fjármagnar skíðaveturinn.Aðsend Háleit markmið fyrir HM Svo nú þegar Gauti fer aftur á fullt fylgja því ný markmið. „Það eru komin ný markmið. Það er að komast undir 150. sæti á heimslista og fá þá start í heimsbikar. Og síðan er það heimsmeistaramótið í Crans-Montana í Sviss í febrúar. Og þá ætla ég að reyna að keppa í þremur greinum. Svigi, stórsvigi og risasvigi. Og ná þar helst undir 30. sæti,“ segir Gauti. Þú ert ekkert farinn að líta til næstu Ólympíuleika eða hvað? „2030? Það er langt í það. Það fer svolítið eftir því hvernig þessi vetur fer. Ef ég kemst undir 150 og fæ að starta í heimsbikar þá lítur það mjög vel út en við tökum eitt ár í einu, sjáum hvað gerist.“
Skíðaíþróttir Íslendingar erlendis Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Finnur til með Arnari Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Sport Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Fótbolti Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Fótbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valur - KA | Nær KA að sleppa frá falli? Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Keflavík - KR | Geta gulltryggt annað sætið Everton - Chelsea | Heimamenn ekki tapað í síðustu tíu leikjum Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Finnur til með Arnari Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Dagskráin í dag: Stórlið í Doc Zone og æsileg barátta Þórs og KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ „Þetta er keppni í því að vinna“ Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Kane lendir um helgina Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Sjá meira