Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Sindri Sverrisson skrifar 14. október 2026 20:45 Desire Doue átti ríkan þátt í sigri PSG og fagnar hér marki sínu gegn Manchester City. Getty/Ryan Pierse Evrópumeistarar PSG unnu frábæran 4-2 útisigur gegn Manchester City í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. PSG komst í 3-0 strax í fyrri hálfleiknum. Eftir að Rayan Cherki hafði viljað fá vítaspyrnu og Matvey Safonov verið nálægt því að skora sjálfsmark þegar hann sló boltann í þverslána á eigin marki þá settu gestirnir frá París í túrbógír. Désire Doué skoraði fyrsta markið á 13. mínútu og lagði svo upp skallamark Ousmane Dembélé tveimur mínútum síðar. Vitinha bætti svo við þriðja markinu eftir frábæran samleik á 32. mínútu. Þetta var í fyrsta sinn frá því í janúar 2012 sem að City er þremur mörkum undir í hálfleik á heimavelli. Erling Haaland minnkaði muninn snemma í seinni hálfleik með frábærum skalla en Maghnes Akliouche svaraði því með skrautlegu marki. Gianluigi Donnarumma varði skot hans en boltinn fór hátt upp í loft og endaði rétt fyrir innan marklínuna. Josko Gvardiol var hársbreidd frá því að skora annað mark City með skalla eftir hornspyrnu en Nuno Mendes bjargaði á marklínu, áður en Enzo Fernandez átti svo þrumuskot í samskeytin og framhjá. Haaland átti svo skalla í þverslána en tókst að skora sitt annað mark á 75. mínútu. Hann var auk þess afar nálægt því að fullkomna þrennuna á 83. mínútu þegar hann renndi sér á fyrirgjöf frá hægri en Safonov varði naumlega. PSG fékk svo vítaspyrnu undir lokin þegar Matheus Nunes braut á Nuno Mendes en Donnarumma varði vítið auðveldlega frá Ferran Torres. PSG hefur því unnið fyrstu tvo leiki sína í titilvörninni en City er með einn sigur og eitt tap. Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester City