Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Sindri Sverrisson skrifar 14. október 2026 18:19 Bradley Barcola komst loks á blað fyrir Liverpool og gerði það með látum. Getty/Jasmin Walter Bradley Barcola þurfti að bíða nokkuð eftir fyrsta marki sínu fyrir Liverpool en það kom í kvöld þegar Frakkinn skoraði þrennu í markaveislu í Austurríki. Liverpool vann austurrísku meistarana í LASK 6-3 og hefði munurinn hæglega getað orðið meiri. Ronald Araújo skoraði sitt fyrsta mark fyrir Liverpool með skalla á 22. mínútu og Barcola náði sama áfanga aðeins tveimur mínútum síðar. Hann bætti svo við öðru marki fyrir hálfleik og var staðan 3-0 í hléi. Jeremie Frimpong skoraði svo gott skallamark áður en Robert Ljubicic náði að minnka muninn í 4-1. Barcola fullkomnaði þá þrennuna sína og Lewis Koumas kom Liverpool í 6-1 á 72. mínútu eftir að fyrr í leiknum höfðu tvö mörk verið dæmd af honum. Heimamenn gáfust þó ekki upp og Florian Flecker nýtti sér það að Liverpool-menn höfðu slakað aðeins á þegar hann skoraði tvö mörk á aðeins þremur mínútum. Niðurstaðan engu að síður öruggur sigur Liverpool sem byrjar því Meistaradeildina á tveimru sigrum en LASK er án stiga. Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC