Lét gamminn geisa og fær að heyra það Aron Guðmundsson skrifar 14. október 2026 08:02 Lisandro Martinez í leiknum í gær Vísir/Getty Sparkspekingar hafa látið Lisandro Martinez, leikmann Manchester United, heyra það eftir að hann lét stór orð falla í viðtali í kjölfar 2-0 taps liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ummæli Martinez hafi verið skammarleg.
Martinez lét yfirmenn sína hjá Manchester United heyra það eftir leik í gær og gagnrýndi hversu lítið liðið hefði verið styrkt milli tímabila með nýjum leikmönnum. Argentínumaðurinn sagðist búast við meiru, sér í lagi frá Jason Wilcox sem starfar sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Manchester United. Lisandro Martínez did NOT hold back after United's loss to Atletico 😬👀 https://t.co/OGo25Pzd30— Prime Video Sport UK (@primevideosport) October 13, 2026 Byrjunin á tímabilinu hjá Manchester United hefur ekki verið góð og er mikil pressa komin á leikmenn og ekki síður knattspyrnustjórann Michael Carrick. Þó svo einhverjir kunni að hafa fagnað hreinskilni Martinez hefur hann fengið að heyra það hjá sparkspekingum. „Þetta gerir engum gagn. Nú mun þetta viðtal vera fréttamatur næstu daga. Það mun allt snúast um þetta,“ sagði Jamie Carragher á CBS Sports í gær. Jamie Carragher, sparkspekingurVísir/Getty Stuðningsmenn Manchester United muni taka þessu fagnandi því vinsældir stjórnenda hjá félaginu séu yfirhöfuð ekki miklar. „Agalegt að hann skuli tjá sig með þessum hætti. Hann talar um að síðasta tímabil hafi verið frábært hjá liðinu. Bara alls ekki. Það var knattspyrnustjóri rekinn á síðasta tímabili hjá Manchester United. Rekinn.“ Martinez og aðrir leikmenn félagsins eigi að líta í eigin barm, „Hann er góður leikmaður, vann HM á sínum tíma, en hann hefur átt hræðilega byrjun á tímabilinu. Hræðilega, mjög slaka.“ Wayne Rooney, fyrrverandi leikmaður Manchester United, var heldur ekki hrifinn af viðtali Martinez. Hann hafi sýnt öðrum leikmönnum liðsins vanvirðingu. „Ég tel hann hafa gengið of langt þarna. Það er knattspyrnustjórans að svara svona en svona mál eiga að vera innanbúðarmál.“
Enski boltinn Manchester United Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Sjá meira