Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar 13. október 2026 09:00 Eftir mikið uppbyggingarskeið í byggingariðnaði undanfarin ár hefur nú hægt verulega á nýbyggingum og horfur eru á að verkefnum í greininni fækki á næstu misserum. Samkvæmt septembertalningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hófust framkvæmdir við 772 íbúðir á síðustu sex mánuðum. Það eru 56% færri íbúðir en á sex mánuðunum þar á undan og 48% færri en á sama tímabili árið áður. Á sama tíma er víða mikil þörf fyrir viðhald og endurbætur á eldra húsnæði. Þarna felast tækifæri sem við ættum að nýta. Þegar dregur úr nýbyggingum skapast svigrúm til að beina auknum kröftum í viðhald og endurbætur á því húsnæði sem þegar stendur. Í stað þess að draga úr átakinu Allir vinna, eins og lagt er upp með í nýbirtu fjárlagafrumvarpi, væri réttara að hækka tímabundið endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis í 100%. Slíkt getur örvað viðhaldsframkvæmdir á meðan hægir á nýbyggingum og skilað hluta kostnaðarins til baka í formi aukinna skatttekna. Úrræði sem við þekkjum Endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði á sér langa sögu á Íslandi. Eftir fjármálahrunið var endurgreiðsluhlutfallið hækkað í 100% frá 1. mars 2009 og sama úrræði var nýtt aftur í heimsfaraldrinum árið 2020, þegar hlutfallið var tímabundið hækkað úr 60% í 100%. Markmiðið var í báðum tilvikum að örva framkvæmdir, styðja atvinnu og draga úr svartri atvinnustarfsemi. Samkvæmt gögnum Skattsins námu endurgreiðslur vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds íbúðarhúsnæðis um 12,6 milljörðum króna vegna framkvæmda frá 1. mars til ársloka 2020. Það samsvarar rúmlega 52 milljörðum króna í vinnu án virðisaukaskatts. Endurgreiðsluhlutfallið er nú 35% og í frumvarpi vegna fjárlaga fyrir árið 2027 er lagt til að það verði lækkað í 20%. Að mínu mati væri skynsamlegra að hækka það tímabundið og skapa þannig sterkari hvata til viðhalds og endurbóta á heimilum. Minni hvati til óskráðrar vinnu Lægri kostnaður getur orðið til þess að heimili ráðist í framkvæmdir sem annars yrðu látnar sitja á hakanum. Þegar verkefnum við nýbyggingar fækkar getur slík tilfærsla yfir í viðhald og endurbætur nýtt betur þá afkastagetu sem þegar er til staðar í greininni. Full endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu getur jafnframt dregið úr verðmuni á uppgefinni og óskráðri vinnu. Þar með minnkar hvati til skattundanskota og líkur aukast á að vinna sé gefin upp til skatts. Úrræðið getur því skilað hluta kostnaðarins til baka í formi aukinna skatttekna. Umhverfisvænasta byggingin er oft sú sem þegar stendur Byggingariðnaðurinn er auðlindafrekur og framleiðsla byggingarefna, flutningar og framkvæmdir hafa umtalsvert kolefnisspor. Eitt mikilvægasta framlag okkar til sjálfbærni getur falist í því að hugsa betur um þær byggingar sem þegar standa. Með því að viðhalda og endurbæta núverandi húsnæði getum við lengt líftíma bygginga, dregið úr sóun og nýtt betur þær auðlindir sem þegar hafa farið í uppbyggingu þeirra. Endurnýjun glugga, bætt einangrun og viðgerðir á þökum geta aukið orkunýtni og dregið úr þörf fyrir umfangsmeiri framkvæmdir síðar. Tímabundin aðgerð með skýrum markmiðum Ég hvet ríkisstjórnina til að hækka endurgreiðsluhlutfallið tímabundið í 100% í 18–24 mánuði, með áherslu á viðhald, endurbætur og framkvæmdir sem bæta orkunýtni og lengja líftíma húsnæðis. Slík aðgerð er ekki kostnaðarlaus og rétt er að meta áhrif hennar vandlega. En þá þarf að horfa á heildarmyndina - aukna atvinnu sem gefin er upp til skatts, betra ástand fasteigna, heilbrigðari samkeppni og minni umhverfisáhrif. Við höfum áður nýtt þetta úrræði þegar aðstæður hafa kallað á það og nú er lag að gera það aftur. Stundum felast nefnilega stærstu tækifærin í því að hugsa betur um það sem við eigum. Höfundur er forstjóri Húsasmiðjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Hús og heimili Húsnæðismál Mest lesið 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Sjá meira
Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun