Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Lovísa Arnardóttir skrifar 12. október 2026 07:39 Steinunn Þórðardóttir læknir hefur verið formaður Læknafélagsins frá árinu 2023. Vísir/Vilhelm Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, var um helgina kosin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna, World Medical Association (WMA), fyrir tímabilið 2027–2028. Steinunn greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni en hún sótti aðalfund samtakanna í liðinni viku.
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks sem leitar sér heilbrigðisþjónustu og mennsku læknastéttarinnar sjálfrar. „Það er sérlega mikilvægt að standa vörð um mannleg samskipti, samkennd og traust á tímum ofurhraðrar og nánast stjórnlausrar tækniþróunar, auk mikilla átaka og óvissu á alþjóðasviðinu. Mennskan verður alltaf hjartað í heilbrigðisþjónustu. Án hennar munu heilbrigðiskerfi heimsins eiga erfitt með að standast þær áskoranir sem fram undan eru,“ segir Steinunn. Stofnuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldar Í færslu sinni fer hún einnig yfir sögu samtakanna og svo yfirlýsingu sem samþykkt var á fundinum um helgina en þau voru stofnuð í París árið 1947 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar, af læknum frá 27 löndum, þar á meðal Íslandi. „Hlutverk samtakanna frá upphafi hefur verið að tryggja sjálfstæði læknastéttarinnar og að læknar veiti ávallt heilbrigðisþjónustu af bestu mögulegu gæðum og samkvæmt ítrustu siðareglum stéttarinnar. Í dag eiga læknafélög frá 115 löndum aðild að samtökunum, en saman eru þau fulltrúar 10 milljón lækna um heim allan,“ segir Steinunn. Árásir verði rannsakaðar af óháðum aðilum Hún segir jafnframt að á fundinum hafi verið samþykkt tímamótayfirlýsing um hlutleysi heilbrigðisþjónustu, Declaration of Rotterdam on Medical Neutrality, og að Jón Snædal, öldrunarlæknir og fyrrverandi forseti WMA (2007–2008), hafi verið lykilmaður í vinnunni að yfirlýsingunni. „Yfirlýsingin á brýnt erindi við samtímann. Þar er meðal annars krafist þess að alþjóðalög séu virt, að heilbrigðisstarfsfólki sem er í haldi eingöngu fyrir að sinna störfum sínum verði skilyrðislaust sleppt og að árásir á heilbrigðisþjónustu verði rannsakaðar af óháðum aðilum. Þá er lagt til að Sameinuðu þjóðirnar skipi sérstakan talsmann til verndar heilbrigðisþjónustu í vopnuðum átökum. Einnig er lögð rík áhersla á að læknafélög tali skýrt gegn brotum á hlutleysi heilbrigðisþjónustu, jafnvel þegar stjórnvöld í þeirra eigin löndum eiga í hlut,“ segir Steinunn að lokum.
Heilbrigðismál Holland Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Fleiri fréttir Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Sjá meira