Fótbolti

Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn

Andri Broddason skrifar
Vinicius Jr. var heitt í hamsi þegar dómarinn gaf honum rauða spjaldið.
Vinicius Jr. var heitt í hamsi þegar dómarinn gaf honum rauða spjaldið. Angel Martinez/Getty Images

Real Madrid fékk Villareal í heimsókn í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Real Madrid vann 1-0 en Vinicius Jr. átti vægast sagt umtalað atvik þegar mark hans var dæmt af og hann fékk rautt spjald fyrir að toga í hár í aðdraganda marksins.

Fyrri hálfleikur leiksins var frekar tíðindalítill og sköpuðust ekki mörg færi þar. Það ætti þó ekki að skipta máli því nóg af atvikum gerðust í seinni hálfleik.

Yan Diomande náði að koma Real Madrid í forystu leiksins á 62. mínútu en í sókninni á undan var Villareal nálægt því að vera búið að stela forystu leiksins. Thibaut Courtois varði þó vel fyrir Real Madrid og hélt marki Real Madrid hreinu.

Nokkrum mínútum síðar keyrði Jude Bellingham upp vinstri kantinn og var kominn inn í teig Villareal. Þar gaf hann boltann á Vinicius Jr. sem lagði boltann snyrtilega í markið. Leikmenn Real Madrid fögnuðu markinu vel en dómari leiksins fékk orð í eyra frá myndbandsdómurum leiksins.

Dómarinn kíkti í skjáinn þar sem í aðdraganda marksins virtist Vinicius Jr. toga í hár Nathan Saliba, miðjumanns Villareal. Markið var því tekið af og fékk Vinicius rautt spjald í staðinn fyrir hártog.

Vinicius Jr. var furðu lostinn yfir ákvörðuninni og var ekki sáttur með dómarann. Þrátt fyrir tilraun Vinicius stóð dómurinn og Real Madrid enn aðeins með eins marka forystu.

Eftir að Villareal var manni fleiri reyndi liðið að jafna metin og sótti vel. Real Madrid náði þó að verjast tilraunum Villareal og sluppu heimamenn með sigurinn í þetta skiptið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×