Tónlist

Ástar­bréf til ís­lenskra költmynda

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Alaska og Frumburður sem Stella og Robbi úr kvikmyndinni Blossa en þau bregða sér í ýmiss konar líki.
Alaska og Frumburður sem Stella og Robbi úr kvikmyndinni Blossa en þau bregða sér í ýmiss konar líki.

Lagið „Fokkamérupp“ með Alösku og Frumburði kom út á miðnætti og tónlistarmyndband við lagið er frumsýnt á Vísi í dag. Tónlistarmyndbandið er innblásið af íslenskum kvikmyndum á borð við Blossa, Íslenska drauminn og Astrópíu sem komu út í kringum aldamót og var það tekið upp á filmu til að fanga nostalgíutilfinninguna.

„Fokkamérupp“ er fjórða lagið af Helga á Prikinu, gestalistamannaplötu (e. feature album) tónlistarmannsins Orra Starrasonar, sem gengur undir listamannsnafninu Frumburður, og kemur út hjá Sticky Records. 

Platan samanstendur af sjö lögum en á hverju þeirra er nýr gestalistamaður og hverju lagi fylgir tónlistarmyndband. Platan kemur svo út í sjö hlutum á sjö vikum.

Hugmyndin með Helga á Prikinu, sem er vísun í frægasta fastagest Priksins, er að fagna borginni, næturlífinu og fólkinu sem gefur henni sinn karakter. Tónlistin spannar popp, raftónlist og rapp og fær hvert lag sinn sérstaka blæ í gegnum ólíka gestalistamenn. Á plötunni koma fram Alaska1867, Kusk & Óviti, Straff (Spacestation), Skoffín, Countess Malaise, ICY- og Una Schram.

Leikstjórinn Jóna Gréta Hilmarsdóttir leikstýrði svo tónlistarmyndbandinu sem hún lýsir sem eins konar samansafni af tilvitnunum úr íslenskum kvikmyndum og einum sjónvarpsþætti. 


Sá strax fyrir sér neonbláan kjól Stellu

„Þegar ég hlustaði á lagið fannst mér strax vera mjög skýr „90’s eða early 2000’s“-fílingur yfir því. Ég sá nánast strax fyrir mér neonbláa kjólinn hennar Stellu úr költ-kvikmyndinni Blossi/810551 (1997) eftir Júlíus Kemp og svo fór boltinn bara að rúlla,“ segir Jóna Gréta um myndbandið.

„Ég er algjör kvikmyndanördi og mér þykir óendanlega vænt um þessar óhefluðu myndir okkar sem teljast margar hverjar til klassíkur í dag og við sækjum innblástur í aftur og aftur,“ bætir hún við.

Alaska og Frumburður í svipuðum málningargöllum og í Íslenska draumnum.

Tónlistarmyndbandið er myndflétta af frægum íslenskum senum og var þar úr vöndu að ráða. Fyrst áttu það bara að vera íslenskar kvikmyndir en svo fékk Næturvaktin (2007) að fljóta með. Kvikmyndirnar sem urðu fyrir valinu eru: Blossi/810551 (1997), Íslenski draumurinn (2000), 101 Reykjavík (2000) og Ástrópía (2007).

„Við reyndum eftir bestu getu að endurgera atriðin, finna svipaða búninga og fá leyfi til að taka upp á sömu tökustöðum. Stundum fannst okkur þó viðeigandi að stokka aðeins upp í atriðunum, eins og í tilfelli atriðisins með ryksuguna og skapahárin í Blossa en í okkar myndbandi er það karlinn sem verið er að raka,“ segir Jóna Gréta.

Alaska sem Ylfa úr Næturvaktinni.

Þau hafi ákveðið að taka upp á filmu sem Jónu fannst blasa við.

„Við vildum reyna að vinna áfram með ákveðna nostalgíutilfinningu hjá áhorfendum, en líka einfaldlega vegna þess að ísskápurinn hjá mér og maka mínum Konráði Kárasyni Þormar, sem tekur upp myndbandið, var smekkfullur af filmum. Næst var það bara að hringja í Ara Eldjárn og plata þennan elskulega mann til að lána okkur filmuvélina sína fyrir smáaura,“ segir hún.

Orri bregður sér í hlutverk Úlfs úr Blossa.

Það kosti sitt að framkalla á filmu en framleiðsla hafi þó verið ódýr.

„Við unnum þetta í raun eins og um skólaverkefni væri að ræða: thrift-uðum fötin, gengum inn á tökustaði og spurðum um leyfi, unnum með lítið teymi og treystum að miklu leyti á náttúrulega lýsingu, þetta var smá svona „old-school style“ en það bauð líka upp á frelsi og leik á tökustað. Ég get því sagt með öryggi að þetta sé skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekið þátt í og ég vona að það skili sér á skjáinn.“

Íslenski draumurinn er sígildur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.