Erlent

Veð­mál á sigur Navalnaju hrúgast inn

Kjartan Kjartansson skrifar
Ef eitthvað er að marka hreyfingar á veðmálasíðum gæti Júlía Navalnaja orðið næsti friðarverðlaunahafi Nóbels í dag.
Ef eitthvað er að marka hreyfingar á veðmálasíðum gæti Júlía Navalnaja orðið næsti friðarverðlaunahafi Nóbels í dag. Vísir/EPA

Líkurnar á því að Júlía Navalnaja, ekkja rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans Alexei Navalní, hljóti friðarverðlaun Nóbels ruku skyndilega upp á vinsælli veðmálasíðu í nótt. Það sama gerðist fyrir ári kvöldið áður en tilkynnt var að  leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela hlyti verðlaunin.

Navalnaja þykir nú sigurstranglegust samkvæmt Polymarket, veðmálasíðunni umdeildu. Líkur þar eru ekki ákveðnar af veðmangara heldur veðja notendur síðunnar gegn hver öðrum.

Á örfáum mínútum fóru líkur Navalnaja úr fimm prósentum í þriðjungslíkur í nótt. Hæst fóru líkurnar í 67 prósent en í morgun voru þær aftur komnar niður í rúmar þriðjungs líkur samkvæmt norsku fréttaveitunni NTB.

Kvöldið áður en Nóbelsnefndin tilkynnti að María Corina Machado, leiðtogi venesúelsku stjórnarandstöðunnar, hlyti friðarverðlaunin í fyrra skutust sigurlíkur hennar á Polymarket upp úr 3,74 prósentum í 72,9 prósent. Notandi með nýstofnaðan aðgang að síðunni vann þá rúmlega sex milljónir króna.

Tilkynnt verður um friðarverðlaunahafa Nóbels klukkan níu að íslenskum tíma í dag.

Navalní lést í rússnesku fangelsi árið 2024. Ekkja hans hefur fullyrt að eitrað hafi verið fyrir honum í fangelsinu. Rússneskur dómstóll gaf út handtökuskipun á hendur Navalnaju árið 2024 en stjórnvöld í Kreml skilgreina stjórnmálasamtök Navalní sem öfgasamtök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×