Veður

Mikil rigning og all­hvass vindur

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Það verður rigning víða um land í dag.
Það verður rigning víða um land í dag. Vísir/Vilhelm

Skil eru á leið yfir landið og með þeim fylgir allhvass eða hvass vindur af suðaustri og mikil rigning sunnan- og vestantil á landinu. Það lægir seinnipartinn.

Í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands segir að mun minni rigning verði fyrir norðan og austan. Auk þess hlýni ívið í veðri. Það lægir seinnipartinn um suðvestanvert landið og dregur úr vætu.

Á morgun verður breytileg átt og úrkomulítið. Hitinn verður á milli fjögur og ellefu stig, mildast suðaustanlands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:

Breytileg átt 3-8 m/s en hvassari austlæg átt við norðurströndina. Væta með köflum, en styttir víða upp sunnan- og vestantil síðdegis. Hiti 3 til 8 stig.

Á laugardag:

Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og dálítil rigning vestantil, en annars yfirleitt þurrt. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Vaxandi suðaustan- og austanátt og rigning, 10-20 síðdegis, hvassast við suðvesturströndina, en lengst af úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 4 til 10 stig, hlýjast syðst.

Á mánudag:

Allhvöss sunnanátt og rigning, en styttir upp á Norður- og Austurlandi. Milt í veðri.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir suðlæga átt með skúrum sunnan- og vestantil. Kólnar í bili.

Á miðvikudag:

Líkur á hægri breytilegri átt með björtu veðri víðast hvar. Fremur svalt í veðri.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×