SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar 6. október 2026 19:01 Ég hef fylgst með umræðunni um SÁÁ undanfarið og satt að segja hefur hún setið svolítið í mér. Eftir að hafa lesið pistil Kristínar I. Pálsdóttur, talskonu Rótarinnar, „Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ?“ fór ég enn meira að velta þessu fyrir mér. Ekki sem sérfræðingur. Ekki sem heilbrigðisstarfsmaður. Heldur sem aðstandandi í nær þrjátíu ár og hef þess vegna fylgst með fíkn, meðferð og bata úr mikilli nálægð. Ég ætla heldur ekki að halda því fram að ég viti hvað hefur nákvæmlega gerst innan SÁÁ. Ég veit ekki hver hefur rétt fyrir sér í öllum þessum átökum og ég hef ekki allar upplýsingarnar. En kannski þarf maður heldur ekki að vita allt um innri deilur samtakanna til þess að mega spyrja spurninga. Og ein spurning hefur sérstaklega sótt á mig: Af hverju er afeitrun fólks með fíknisjúkdóm í jafn ríkum mæli háð félagasamtökum en ekki heilbrigðiskerfinu sjálfu? Ég hef ekkert á móti SÁÁ. Þvert á móti. Ég ber virðingu fyrir því starfi sem þar hefur verið unnið í áratugi. Ég veit að ótal einstaklingar hafa fengið þar hjálp og fjölskyldur hafa fengið ástvini sína aftur. AA og 12 spora starfið hefur líka hjálpað mörgum og gerir enn. En það þýðir ekki að við megum ekki spyrja hvort kerfið sem byggt var upp fyrir áratugum sé enn nákvæmlega það kerfi sem við viljum hafa í dag. Þekking okkar á fíkn hefur breyst. Við vitum meira um áföll, geðrænan vanda, félagslegar aðstæður og allt það sem getur legið að baki eða samhliða fíkn. Fólk er ólíkt og það sem hjálpar einum þarf ekki að hjálpa öðrum. Ég held þess vegna að við þurfum fleiri leiðir en eina. Afeitrunin Þegar manneskja sem er langt leidd í neyslu segir loksins: „Ég þarf hjálp,“ þá þekkja margir aðstandendur hvað það augnablik getur verið viðkvæmt. Viljinn getur verið til staðar í dag en horfinn á morgun. Þá skiptir máli að dyrnar séu opnar. Þarna finnst mér deilurnar innan SÁÁ hafa afhjúpað veikleika í kerfinu sem við þurfum að ræða. Alls skrifuðu 63 starfsmenn SÁÁ undir yfirlýsingu þar sem þeir lýstu yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna. Lykilfólk hefur hætt störfum og starfsemi Vogs hefur raskast. Ég ætla ekki að dæma hver ber ábyrgð á þeim deilum. En sem aðstandandi horfi ég á þetta og hugsa: Getur samfélagið okkar leyft sér að hafa afeitrunarþjónustu þannig upp byggða að innri átök innan félagasamtaka geti haft áhrif á hversu mörgum veikum einstaklingum er hægt að taka á móti? Þar liggur mín stærsta spurning. Mín skoðun er sú að afeitrun eigi að vera á ábyrgð heilbrigðiskerfisins. Það þýðir alls ekki að ég vilji loka Vogi eða taka starfsemina af SÁÁ. Mér finnst það raunar óþarfi. Vogur getur áfram verið Vogur. Þar er mikil reynsla og þekking sem væri fráleitt að kasta frá sér. En ríkið á að mínu mati að bera skýra ábyrgð á því að afeitrun sé til staðar þegar hennar er þörf. Rétt eins og við ætlumst til þess að önnur nauðsynleg heilbrigðisþjónusta sé til staðar. Kannski er það einmitt eitthvað gott sem getur komið út úr þessum erfiðu deilum. Kannski er kominn tími til að við stöldrum við og spyrjum hvort skipulagið sem við höfum búið við í áratugi sé enn það besta fyrir fólkið sem þarf á þjónustunni að halda. Ég hef ekki svarið við því hvernig allt kerfið á að líta út. Ég er bara aðstandandi sem hefur fylgst með fíknisjúkdómnum úr meiri nálægð en ég hefði nokkurn tíma kosið mér. En eitt veit ég. Þegar sonur einhvers, dóttir, maki, systir, bróðir, mamma eða pabbi réttir út höndina og segir: „Ég þarf hjálp.“ þá á fjölskyldan ekki að þurfa að velta fyrir sér hver situr í stjórn SÁÁ, hver sagði af sér, hver er ósammála hverjum eða hvernig staðan er innan félagsins. Manneskjan á bara að geta treyst því að höndin sem tekur á móti henni sé örugg. Það er lágmarkskrafan. Höfundur er aðstandandi og áhugamanneskja um fíknimeðferð og málefni fólks með fíknisjúkdóma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun