Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar 6. október 2026 08:33 Hrafntinna Ingólfsdóttir er í grunnskóla. Hún lýkur 10. bekk og fær 7 í stærðfræði. Sjöan merkir samkvæmt nýju námsmati að hún hafi náð tilteknu lágmarksviðmiði í stærðfræði við lok grunnskóla og geti haldið áfram námi í greininni „á næsta hæfniþrepi í framhaldsskóla“, eins og segir á vef ráðuneytisins.Um haustið sest hún á skólabekk í Kvennaskólanum í Reykjavík og fær aftur 7 í stærðfræði.En Hrafntinna er ekki ein um að vera með undrunarsvip á andlitinu, því nú merkir sjöan allt annað. Samkvæmt námsmatsviðmiðum Kvennaskólans merkir 7 að nemandi hafi náð 65–74 prósentum þeirra markmiða sem metin eru. Náist 95–100 prósent er einkunnin 10.Við erum að tala um sama nemanda. Sömu námsgrein. Sama tölustaf. Aðeins nokkrir mánuðir á milli.En sjö er ekki lengur sjö.Kvarði frá einum upp í tíu – eða hvað?Stjórnvöld hafa ákveðið að kasta bókstafaeinkunnum grunnskólans út í hafsauga og taka aftur upp tölur. Það hljómar einfalt og allir þekkja gamla einkunnaskalann frá 1 upp í 10. En þegar nánar er að gáð eru stjórnvöld ekki að innleiða að nýju þennan gamla, sígilda mælikvarða.Kerfið var í ágúst kynnt sem einkunnakvarði frá 1–10. Tæpum tveimur mánuðum síðar skýrði ráðuneytið hins vegar frá því að í lokamati grunnskóla yrðu aðeins notaðar einkunnirnar 4–10.Ráðuneytið telur ekki forsvaranlegt að gefa barni einkunnina 1, 2 eða 3 eftir heilt skólaár.Er ástæðan önnur en sú að slíkar tölur séu taldar niðurlægjandi fyrir barnið og geti valdið því vanlíðan? Sé svo má vel skilja sjónarmiðið. En þá vaknar önnur spurning: Breytist námsleg staða barnsins eitthvað við það að lægsta talan sem leyfilegt er að skrifa á vitnisburðinn sé 4 í stað 1?Hafi nemandi ekki náð hæfniviðmiðum fær hann 4 að lágmarki og skriflega umsögn um stöðu sína. Lokaeinkunnir grunnskólanemenda verða því í reynd gefnar á kvarðanum 4–10.Á hinum enda kvarðans er 10. Einkunnirnar 8–10 eiga að lýsa stigvaxandi dýpt, öryggi, sjálfstæði og færni í að beita þekkingu. Einkunnirnar 9 og 10 eiga að lýsa „framúrskarandi tökum“.Hvað þarf til að fá tíu?Tökum einfalt dæmi. Kennari leggur tíu stærðfræðidæmi fyrir Hrafntinnu og samnemendur hennar og hún leysir þau öll rétt. Slíkt próf er lagt fyrir mánaðarlega allt skólaárið og Hrafntinna fær alltaf 10.En tíurnar tryggja henni ekki 10 í lokaeinkunn. Þar á að meta víðtækari hæfni: dýpt, sjálfstæði, öryggi og hvernig nemandinn beitir þekkingu sinni. Hrafntinna getur því fengið 10 á öllum skyndiprófum vetrarins en 7 eða 8 í lokaeinkunn.Hvað þarf hún þá nákvæmlega að gera til að fá 10?Ráðuneytið segir að 9 og 10 lýsi framúrskarandi tökum. En hvað skilur 9 frá 10? Hvaða atriði í frammistöðu nemandans réttlæta einkunnina 10 fremur en 9?Ég hef ekki fundið skýrt svar við þeirri spurningu í þeim leiðbeiningum sem birtar hafa verið.Stærðfræði er þó að mörgu leyti auðvelda dæmið. Tökum íslenska ritgerð. Tveir kennarar geta verið sammála um stafsetningu og málfræði en metið stíl, frumleika, efnistök og röksemdafærslu með ólíkum hætti. Annar sér framúrskarandi tök og gefur 10. Hinn telur ritgerðina mjög góða og gefur 8 eða 9.Hvor hefur rétt fyrir sér?Því huglægara sem námsmatið er, þeim mun mikilvægara er að skýr og sameiginleg viðmið greini einkunnirnar að. Ekki síst þegar eitt yfirlýst markmið breytinganna er að gera námsmat skýrara og samræmdara milli skóla. Annar veruleiki á næsta skólastigi Þegar Hrafntinna kemur í framhaldsskóla tekur við annar veruleiki. Aðalnámskrá framhaldsskóla gerir ráð fyrir einkunnaskalanum 1–10 og þar er 5 að jafnaði lágmarkseinkunn til að standast.Í Kvennaskólanum gefa 95–100 prósent markmiða einkunnina 10, 85–94 gefa 9, 75–84 gefa 8 og 65–74 gefa 7. Í Menntaskólanum í Reykjavík eru lokaeinkunnir sömuleiðis gefnar í heilum tölum frá 1 til 10 og 5 er lágmarkseinkunn.Einkunnirnar 1, 2 og 3, sem ekki verða gefnar sem lokaeinkunnir í grunnskóla, eru þar fullgildar einkunnir – þótt þær séu falleinkunnir.Vitaskuld er ekki hægt að gera sömu námskröfur til fimmtán ára grunnskólanema og átján ára framhaldsskólanema. En er ósanngjarnt að gera þá kröfu til menntayfirvalda að sami tölustafur þýði nokkurn veginn það sama á báðum skólastigum?Kröfurnar breytast en þarf mælistikan að gera það?Danir eru ekki á þeirri skoðun. Þeir nota sama sjö þrepa einkunnaskalann, −3, 00, 02, 4, 7, 10 og 12, í grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum. Þegar kerfið var hannað var eitt grundvallarskilyrðanna beinlínis að sami einkunnaskali væri notaður í öllu menntakerfinu.Mínus þrír og upp í tólf.Hæsta einkunnin, 12, er fyrir framúrskarandi frammistöðu sem uppfyllir námsmarkmiðin að fullu, með engum eða aðeins óverulegum ágöllum. Á vef danska menntamálaráðuneytisins er sérstaklega tekið fram að 12 eigi ekki að vera undantekningareinkunn. Uppfylli nemandinn viðmiðin á hann að fá 12.Svíar nota A–F kvarðann bæði í grunnskóla og framhaldsskóla. Kerfið er jafnframt hæfnimiðað. Það er því vel hægt að sameina hæfnimiðað námsmat og samræmdan einkunnaskala.Hæfniviðmiðin breytast vitaskuld eftir aldri og skólastigi.Mælistikan er óbreytt.Einn fyrir viðleitniEf barna- og menntamálaráðuneytið fengi það verkefni að hanna skýrt og samræmt einkunnakerfi fyrir íslenska skóla og skilaði þessari niðurstöðu, væri ómögulegt annað en að gefa því falleinkunn.Í besta falli 1 fyrir viðleitni.En þá erum við auðvitað komin niður í einkunn sem ráðuneytið sjálft telur ekki forsvaranlegt að gefa.Í býsna góðum málumEinhver orðaði þá hugsun ágætlega í umræðunni að teljist það meðal brýnustu verkefna íslenska menntakerfisins að skipta bókstöfum út fyrir tölustafi, þá hljóti skólakerfið að vera í býsna góðum málum.Þarna leynist sannleikskorn í kaldhæðninni. Íslenskt skólakerfi glímir við öllu stærri og alvarlegri viðfangsefni, ekki síst þegar kemur að námsárangri og læsi.Breyting á einkunnakerfi getur vissulega átt rétt á sér. En ef ráðist er í hana ætti að minnsta kosti að vera hægt að gera þá kröfu að nýja kerfið sé einfaldara, skýrara og samræmdara en það sem fyrir var.Er það ósanngjörn krafa?Stjórnvöld ákveða að taka upp tölur sem allir þekkja. Kerfið var upphaflega kynnt sem 1–10 en síðar kom fram hjá ráðuneytinu að í lokamati grunnskóla verði aðeins notaðar einkunnirnar 4–10. Hver tala á að lýsa ákveðinni hæfni nemandans, allt frá því að hæfniviðmiðum hafi ekki verið náð upp í framúrskarandi tök. Síðan fer nemandinn yfir á næsta skólastig þar sem sami 1–10 kvarðinn er notaður með annarri merkingu.Vandinn var því tæpast sá að bókstafirnir A, B, C og D væru óskiljanlegir. Vandinn kann að vera að ákveðið var að skipta þeim út fyrir tölur sem þegar höfðu merkingu – án þess að sú merking fengi að fylgja með.Hrafntinna fær 7 í maí og 7 aftur í september.Í fyrra skiptið segir sjö eitt. Í síðara skiptið eitthvað annað.Einkunnakerfi á að segja nemandanum hvar hann stendur. Hann á ekki að þurfa að spyrja hvað einkunnin þýðir.Ath. Hrafntinna Ingólfsdóttir er skálduð persóna. Einkunnakerfin sem lýst er í greininni eru það ekki.Höfundur er fyrrverandi kennari og skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun