Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar 6. október 2026 12:31 Í Samráðsgátt stjórnvalda liggja fyrir drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald. Þar er verið að kynna að innheimta eigi sérstakt náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins, en þeir eru Þingvellir, Gullfoss og Geysir. Nú vill svo til að þessir staðir eru allir í Bláskógabyggð og eru hluti af Gullna hringnum. Kynnt er að gjaldið sem á að innheimta verði að upphæð 4500 kr og eiga að stuðla að verðmætasköpun, öryggi og álagsstýringu í ferðaþjónustu. Það eru ekki mörg ár síðan að ferðaþjónusta á Íslandi varð að heilsársatvinnugrein. Það reyndi verulega á úthald frumkvöðla í ferðaþjónustu þegar það voru um 3-4 mánuðir á ári sem ferðamenn heimsóttu landið. Nú er öldin önnur, búið er að fjárfesta gríðarlega í þessari ungu atvinnugrein í gistingu, veitingastöðum, afþreyingu, innviðum og öðrum þáttum. Ferðaþjónustan er nú tilbúin til að vaxa og dafna enn frekar og skapa verðmæti fyrir land og þjóð og komandi kynslóðir. Það kemur því verulega á óvart að fara eigi þessa leið sem kynnt er. Á þessum þremur stöðum hefur verið staðið fyrir uppbyggingu sem gerir það að verkum að þeir geta vel tekið við fleiri ferðamönnum með sóma. Á Þingvöllum hefur þjóðgarðurinn innheimt bílastæðagjöld. Þessar tekjur hafa verið nýttar til að sinna landvörslu, byggja upp göngustíga, koma salernismálum í viðunandi horf, ásamt því að byggja upp þá innviði sem þarf til að reka þjóðgarð, sem er á heimsminjaskrá, með sóma. Þá hefur þjóðgarðurinn greitt HSU kostnað vegna viðveru bráðaliða á staðnum, allt til að auka öryggi þeirra sem heimsækja þjóðgarðinn. Tekjur þjóðgarðsins eru að stærstum hluta sértekjur sem eru nú þegar innheimtar af gestum þjóðgarðsins á einfaldan og hagkvæman hátt. Samkvæmt frumvarpi verður innheimta þjónustugjalda til rekstrar þjóðgarðsins óheimil en í staðinn er gert ráð fyrir að tekjutap verði bætt. Þrátt fyrir fögur fyrirheit eru allar líkur til að rekstur verði í uppnámi ef fram fer sem horfir, þar sem ekki er hægt að tryggja sömu fjármögnun til framtíðar. Á Gullfossi og Geysi hafa landeigendur byggt upp öll bílastæði og salerni, ríkið hefur ekki sett krónu í þessa þætti á báðum þessum stöðum. Einstaklingsframtakið hefur staðið fyrir allri uppbyggingu, kynslóð fram af kynslóð og getum við sem þjóð verið stolt af þeirri aðstöðu sem ferðamönnum er þar boðið upp á. Í þeim sveitarfélögum sem Gullni hringurinn liggur um hefur gríðarleg fjárfesting átt sér stað síðustu ár í formi gistingar, veitingastaða og mjög fjölbreyttrar afþreyingar. Þessi uppbygging hleypur á tugum milljarða. Það sem helst hefur vantað upp á í innviðauppbyggingu á svæðinu eru betri og öruggari samgöngur, því hefur ríkið ekki náð að sinna svo sómi sé af. Svo kemur fram í fjárlagafrumvarpi næsta árs að boðaður er niðurskurður til samgöngumála sem er grafalvarlegur hlutur. Með þessu svokallaða innviðagjaldi er í stuttu máli verið að boða ákveðna skattheimtu á þessum þremur stöðum og þar með á svæðinu í heild sinni. Það má öllum vera ljóst að þessi skattlagning er ekki sanngjörn og getur ekki verið í anda jafnréttis og góðra stjórnsýsluhátta. Eitt af markmiðum frumvarpsins er að dreifa ferðamönnum sem víðast um landið. Allir þeir sem hafa komið að stefnumörkun í ferðaþjónusta vita og þekkja að dreifing ferðamanna næst með því að búa til segla og fjölga áhugaverðum áfangastöðum ásamt því að búa til góða upplifun af viðkomandi svæði. Allt þetta hefur verið gert á Suðurlandi og þar með á Gullna hringnum. Það getur ekki talist góð nálgun að dreifa ferðamönnum með þeim hætti að fæla þá frá helstu náttúruperlum landsins. Önnur svæði verða þá að vera tilbúin að taka við auknum fjölda gesta. Gisting, veitingastaðir og aðrir innviðir eins og t.d. samgöngur, vetrarþjónusta og löggæsla þurfa að geta tekið við auknu álagi. Við þurfum líka að gera okkur grein fyrir því að Ísland er í mikilli samkeppni við önnur lönd um ferðamenn, fólk sem hyggur á ferðalög skipuleggur tíma sinn vel og skoðar ansi marga þætti áður en ferð er pöntuð. Ljóst er að ef frumvarpið nær fram að ganga í óbreyttri mynd þá er verið að mismuna og raska samkeppnisstöðu fyrirtækja á svæðinu umfram önnur fyrirtæki í sama geira á öðrum landssvæðum. Eins er verið að setja allar þær fjárfestingar sem átt hafa sér stað á svæðinu, á undanförnum árum, í mikla óvissu. Við í Bláskógabyggð höfum síðustu daga fundið fyrir því að aðilar sem hafa ætlað sér að fara af stað í fjárfestingum hafa stigið nokkur skref til baka og ætla að halda að sér höndum með næstu skref, viðkomandi aðilar ætla enga áhættu að taka. Allur svona samdráttur hefur bein áhrif á rekstur sveitarfélagsins í formi lægri fasteignaskatts og útsvarstekna. Með þessu frumvarpi er verið að taka alltof mikla áhættu á tímum niðursveiflu í efnahagsmálum og óvissutímum á heimsvísu. Ég held að allir hafi skilning á því að fara eigi þá leið að innheimta gjöld af ferðamönnum en hún verður þá að vera almenn og ekki beinast gegn einu svæði, það kann ekki góðri lukku að stýra. Mun eðlilegra væri t.d. að allir ferðamenn greiði hóflegt gjald við komu eða brottför eða innheimt verði gjald á alla staði í eigu ríkisins. Ég treysti því að ráðamenn þjóðarinnar endurskoði þessa hugmyndafræði sem boðuð er og nái góðri sátt um eðlilegt, skynsamlegt og sanngjarnt gjald til að byggja upp okkar innviði. Það er gott að rýna til gagns og sameinast svo í kjölfarið um skynsamlegustu niðurstöðuna, okkur öllum til heilla. Höfundur er oddviti Bláskógabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun