Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar 2. október 2026 13:30 Í einni sögunni um Bangsímon fara hann og Gríslingur á veiðar. Þeir finna spor í snjónum og rekja þau í kringum trjálund. Eftir hvern hring eru sporin fleiri og vinirnir sannfærðari um að þeir séu á slóð hættulegrar skepnu, jafnvel tveggja eða þriggja. Loks bendir drengurinn, sem hefur fylgst með þeim ofan úr tré, á að þeir hafi gengið í hringi og rakið sín eigin spor. Félagsvísindamenn kalla þetta Woozle-áhrifin, eftir dýrinu sem aldrei var til. Fullyrðing öðlast vægi af því hve oft hún er endurtekin og hve oft er vitnað í hana. Það skiptir þá engu hvort einhver hafi nokkurn tíma mælt hana. „Aukið aðgengi eykur neyslu“ er íslenska Woozle-dýrið. Það stendur í umsögnum, ályktunum og þingræðum, og það stækkar við hverja endurtekningu. Sporin hafa hins vegar sjaldan verið borin saman við mælingarnar. Nú hafa mælingarnar talað. Lýðheilsuvísar Embættis landlæknis voru uppfærðir 15. september. Samkvæmt þeim mælist áhættudrykkja fullorðinna 20,4%, sem er það lægsta frá því mælingar hófust. Ölvunardrykkja í 10. bekk fór úr 4,6% í 3,0% á einu ári. Allt gerðist þetta eftir fimm ár af netverslun. Þetta sannar ekki að netverslun dragi úr drykkju, því margt annað hefur áhrif. En spáin var sú að línurnar færu upp en þær fóru niður. Sönnunarbyrðin hvílir á þeim sem spáðu aukningu. Kannski er kominn tími til að einhver klifri upp í tréð og líti niður. Höfundur er annar eigenda Sante. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Sigurðsson Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Í einni sögunni um Bangsímon fara hann og Gríslingur á veiðar. Þeir finna spor í snjónum og rekja þau í kringum trjálund. Eftir hvern hring eru sporin fleiri og vinirnir sannfærðari um að þeir séu á slóð hættulegrar skepnu, jafnvel tveggja eða þriggja. Loks bendir drengurinn, sem hefur fylgst með þeim ofan úr tré, á að þeir hafi gengið í hringi og rakið sín eigin spor. Félagsvísindamenn kalla þetta Woozle-áhrifin, eftir dýrinu sem aldrei var til. Fullyrðing öðlast vægi af því hve oft hún er endurtekin og hve oft er vitnað í hana. Það skiptir þá engu hvort einhver hafi nokkurn tíma mælt hana. „Aukið aðgengi eykur neyslu“ er íslenska Woozle-dýrið. Það stendur í umsögnum, ályktunum og þingræðum, og það stækkar við hverja endurtekningu. Sporin hafa hins vegar sjaldan verið borin saman við mælingarnar. Nú hafa mælingarnar talað. Lýðheilsuvísar Embættis landlæknis voru uppfærðir 15. september. Samkvæmt þeim mælist áhættudrykkja fullorðinna 20,4%, sem er það lægsta frá því mælingar hófust. Ölvunardrykkja í 10. bekk fór úr 4,6% í 3,0% á einu ári. Allt gerðist þetta eftir fimm ár af netverslun. Þetta sannar ekki að netverslun dragi úr drykkju, því margt annað hefur áhrif. En spáin var sú að línurnar færu upp en þær fóru niður. Sönnunarbyrðin hvílir á þeim sem spáðu aukningu. Kannski er kominn tími til að einhver klifri upp í tréð og líti niður. Höfundur er annar eigenda Sante.
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun