Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar 30. september 2026 16:31 „Það er vitanlegt að sá kostnaður sem landsmenn hafa af sjúkdómum er ákaflega mikill. Og það verður ekki komið skipulagi á þá hluti eða fullkomnum lækningum meðal almennings, öðruvísi en með því að koma á einhverjum tryggingum [….] og þá auðvitað með því að lögbjóða þær.“ Svo mælti Héðinn Valdimarsson alþingismaður og framsögumaður frumvarps um alþýðutryggingar í umræðum á Alþingi í desember árið 1935. Í dag er 90 ára afmæli almannatryggingar á Íslandi fagnað með opinni ráðstefnu í Hörpu. Ég óska landsmönnum öllum til hamingju með það og megi okkur auðnast að standa vörð um þetta fjöregg þjóðarinnar. Framsýni Héðins Á þessum tíma voru Íslendingar enn að fást við afleiðingar kreppunnar miklu. Stórum hluta landsframleiðslunnar var að verulegu leyti haldið gangandi með opinberum styrkjum og skuldasöfnun ríkisins var mikil, bæði innanlands og erlendis. Í þingræðum var bent á að varhugavert væri að lögbjóða alþýðutryggingar á slíkum erfiðleikatímum. Héðinn sagði aftur á móti að í því fælist mótsetning. Það væri „aldrei jafnnauðsynlegt og einmitt þá, þegar alþýða manna lifir í sem mestu öryggisleysi, að reyna á einhvern hátt að skapa betra fyrirkomulag og meira öryggi meðal almennings“. Héðinn sagði meininguna með þessu að hver og einn ætti ekki að borga nákvæmlega það sem fyrir hann kæmi, heldur ætti kostnaður fólks vegna sjúkdóma að dreifast út yfir allan fjöldann. Þeir sem mestar hefðu tekjurnar væru í stöðu til að greiða fyrir þá sem verr væru settir. Eins skyldi taka með í reikninginn að aðstæður þess sem væri vel efnaður gætu breyst á skömmum tíma, því skjótt skipast veður í lofti eins og hann sagði. Skýr markmið Þótt umræðan um hugmyndafræði, efni og inntak alþýðutrygginga ætti eftir að þroskast, var grunnhugsunin skýr og er í öllum grundvallaratriðum óbreytt í almannatryggingakerfinu enn þann dag í dag. Að sporna við fátækt, stuðla að jöfnuði og verja fólk fyrir miklum útgjöldum vegna sjúkdóma, slysa, örorku eða ellihrumleika. Þetta er hið norræna velferðarmódel sem hefur reynst okkur vel og sem við verðum að standa vörð um, áfram sem hingað til. Almannatryggingakerfið byggist á samfélagslegri sátt, samfélagslegri ábyrgð og sameiginlegri vitund fólks um að við berum ábyrgð hvert á öðru. Við þurfum að fara vel með þetta kerfi og ekki taka því sem sjálfsögðu. Almannatryggingakerfið er fjöregg okkar allra og mikilvægt að allir séu meðvitaðir um það. Samfélagslegt virði Almannatryggingakerfið er kostnaðarsamt kerfi þar sem hver króna skiptir máli. Öllu skiptir að fjármagnið sé nýtt af sanngirni, skynsemi og ábyrgð. Meginmarkmiðið er að fá sem mest samfélagslegt virði fyrir þá fjármuni sem eru til ráðstöfunar þannig að þeir nýtist sem best í þágu þeirra sem á þurfa að halda. Tryggingastofnun ríkisins var sett á fót 1936, samhliða setningu heildarlaga um alþýðutryggingar og fór með öll verkefni sem undir lögin heyrðu. Þar með voru atvinnuleysistryggingar en það breyttist árið 1997 með setningu laga um vinnumarkaðsaðgerðir og stofnun Vinnumálastofnunar. Árið 2008 voru Sjúkratryggingar Íslands stofnaðar og þar með færðust verkefni sem varða kostnað vegna heilbrigðisþjónustu, greiðsluþátttöku sjúklinga og síðast en ekki síst samningar um kaup á heilbrigðisþjónustu af þjónustuveitendum frá Tryggingastofnuninni til Sjúkratrygginga Íslands. Það eru sterk tengsl milli verkefna stofnananna þriggja, þ.e. Tryggingastofnunar Íslands, Vinnumálastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands. Góð heilsa er gulli betri Þegar ég horfi á samspilið þarna á milli frá sjónarhóli mínum sem heilbrigðisráðherra eru nokkur atriði sem blasa við. Í fyrsta lagi nefni ég hið fornkveðna, að góð heilsa er gulli betri. Og góð lýðheilsa þjóðar eru stórkostleg verðmæti fyrir samfélagið allt. Ég nefni þetta hér, því það er alveg ljóst að þeim mun betur sem samfélaginu, stjórnvöldum og stofnunum og öllum sem til þess eru bærir tekst að stuðla að almennu heilbrigði, því sterkara stendur samfélagið að vígi. Þannig dregur úr þörf fyrir stuðning almannatryggingakerfisins og margvíslegum útgjöldum sem hljótast af sjúkdómum, slysum, örorku og óvinnufærni. Það minnkar álag á heilbrigðiskerfið því færri þurfa á því að halda og eins er mikið verðmæti fólgið í því að fólk lifi lengur við góða heilsu og geti búið sjálfstæðu lífi á eigin heimili fram á efstu ár. Að sporna gegn lífsstílssjúkdómum og stuðla að heilsusamlegum lífsháttum fólks, með fræðslu, virkum forvörnum, skýrri stefnu og markvissum aðgerðum er gríðarlega mikilvægt. Íslenska heilbrigðiskerfið stendur almennt vel í alþjóðlegum samanburði og gæði þjónustunnar og árangur er á mörgum sviðum með því besta sem þekkist. Kerfið byggir á opinberri fjármögnun og greiðu aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Eins og svo víða annars staðar eru þó ýmsar áskoranir í kerfinu, ekki síst varðandi mönnun þess og óhóflega langa bið eftir þjónustu á ákveðnum sviðum. Sjúkratryggingar Íslands sjá um framkvæmd sjúkratrygginga sem felst í því að greiða eða taka þátt í kostnaði almennings vegna heilbrigðisþjónustu, lyfja og hjálpartækja og úrskurða um réttindi sjúkratryggðra. Hún er jafnframt umfangsmikill kaupandi heilbrigðisþjónustu í gegnum samninga við veitendur heilbrigðisþjónustu aðra en opinberu heilbrigðisstofnanirnar. Stöndum vörð Þetta eru stór og mikilvæg verkefni þar sem markmiðið er að tryggja öllum aðgengi að heilbrigðisþjónustu sem uppfyllir kröfur um öryggi og gæði og sinna eftirliti með því að svo sé. Eitt er víst að eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu verður aldrei mætt að fullu. Stóra áskorunin er að veita rétta þjónustu í samræmi við gagnreynda þekkingu, að þjóna sjúklingum sem best en sporna gegn sóun. Fjármagni til heilbrigðisþjónustu eru og verða alltaf takmörk sett og því er það alltaf keppikeflið á öllum tímum að nýta það sem best fyrir samfélagið. Við fögnum því að 90 ár eru liðin frá því að lög um alþýðutryggingar voru samþykkt á Alþingi og Tryggingastofnun ríkisins sett á fót. Með lögunum var lagður traustur grunnur að því velferðarkerfi sem við búum við í dag, byggt á almennum réttindum, félagslegu jafnræði og sameiginlegri ábyrgð. Ég þakka öllum þeim sem komið hafa að málum fyrr og síðar og sinna þessu vandasama verki. Við skulum standa vörð um þetta kerfi og hugmyndafræðina að baki. Þetta er fjöregg þjóðarinnar. Höfundur er heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Heilbrigðiseftirlit Tryggingar Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
„
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun