„Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar 29. september 2026 15:30 Það eru mörg teikn á lofti um aukna andstöðu við þjóðarmorðingjana í Ísrael. Á nýafstöðnu Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna kom fjöldi þjóðarleiðtoga í pontu og fordæmdu árásir Ísraels á Gaza og á Palestínumenn á Vesturbakkanum. Abdullah konungur Jórdaníu spurði: „ Hversu lengi ætlum við að láta okkur nægja fordæmingu eftir fordæmingu án þess að gripið sé til áþreifanlegra aðgerða?“ Hann ræddi einnig sk. friðarferli: „Reyndar myndu margir halda því fram að þessi ferli hafi þjónað sem afvegaleiðing … á meðan tók Ísrael meira land, stækkaði ólöglegar landnemabyggðir, reif niður heimili og hrakti íbúa heilu þorpanna á brott.“ Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar sagði: „Grimmd sem hikar ekki lengur við að sjá rifbein sveltandi barns eða sjúkrahús sem eru rústir einar.“ Hann nefndi engin nöfn en sagði: Við vitum öll hverjir þeir eru og hverjar aðferðir þeirra eru.“ og þeir fara ekki að lögum og reglum: „vitandi fullvel, að enginn mun þora að draga þá til ábyrgðar.“ Macron Frakklandsforseti sagði: „Lítið á hvað er að gerast á Vesturbakkanum, þar sem brot eru framin daglega. Í nafni hvers? Hamas hefur aldrei verið virkt á Vesturbakkanum. Það sem þar er byggt [landránsbyggðirnar], dag eftir dag, gerir verkefnið óframkvæmanlegt: að virðing sé borin fyrir lögmætum rétti palestínsku þjóðarinnar til að vera til.“ Luiz Inácio Lula Da Silva forseti Braselíu sagði: „Kynslóðir Palestínumanna munu bera sársaukann og áfallið sem þjóðarmorð á konum og börnum, framið af ríkisstjórn Netanyahu á Gaza, skilur eftir sig.“ Micheál Martin forsætisráðherra Írland sagði: “Þegar allur sannleikurinn um það sem hefur gerst – og það sem enn á sér stað – á Gasasvæðinu kemur loks í ljós, þegar gögnunum hefur verið safnað saman, vitnisburðirnir heyrðir og hinar raunverulegu hryllingsmyndir loks afhjúpaðar í heild sinni, mun það valda heiminum skömm.“ Þorgerður Katrín utanríkisráðherra flutti einnig ræðu og vísaði til orða Netanyahus um siðferðislega hugleysingja er hann gagnrýndi þá sem yfirgáfu salinn þegar hann hugðist halda ræðu. Í ræðunni sagði Þorgerður „siðferðislega hugleysingja vera þá sem neita að semja um frið, og komi í veg fyrir að mannúðaraðstoð berist til þeirra sem þurfi og virði alþjóðalög að vettugi.“ Ræða Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra hefur flogið víða um netheimna og hlotið mikið lof en jafnframt verið gagnrýnd fyrir að ganga ekki lengra, að segja ekki hreint út að eigi Ísrael ekki sæti meðal siðmenntaðra þjóða. Þorgerður Katrín sagði í viðtali á RÚV: „Það er búið að skrifa undir friðarplan, Sameinuðu þjóðirnar eru búnar að samþykkja ákveðna áætlun en samt er það þannig að það er verið að drepa börn og verið er að koma í veg fyrir að mannúðaraðstoð komi inn á svæðið.“ Þetta er hárrétt hjá Þorgerði Katrínu - en það vantar framhaldið eða botninn í umræðuna - það vantar skýr orð um hver staðan er í ljósi þess að Ísrael mun aldrei hlusta á orð, það eru eingöngu alvöru aðgerðir sem geta þokað málum áfram og til að stöðva barnadrápin sem utanríkisráðherra hryllir við eins og öllu fólki með siðferðiskennd. Íslensk utanríkisstefna fylgir stefnu sem kallast „tveggja ríkja lausnin“ - stefna sem Sameinuðu þjóðirnar fylgja og flest aðildarríki samtakanna. Í ræðum ýmissa leiðtoga kemur fram að hernám Ísraels á Vesturbakkanum og Gaza komi í veg fyrir þessa lausn. En það að aðhafast ekkert, að ráðast ekki á öllum sviðum viðskipta, vísinda, menningar gegn Ísrael, að sniðganga og einangra ríkið, er verið að gefa þeim grænt ljós á áframhaldandi landstuld og þjóðarmorð - og þar með er allt tal um „tveggja ríkja lausn“ algjörlega innantómt. Ísraelsk yfirvöld neita alfarið að samþykkja ríki Palestínumanna og með stöðugri útþennslu ólöglegra landránsnýlendna er skipulega unnið að innlimun Vesturbakkans í Ísrael. Og það er talað opinberlega um innlimun Gazastrandarinnar. Að auki hertaka þeir nú stóra hluta Líbanons og Sýrlands sem þeir munu ekki skila nema þeir verða neyddir til þess. Ræðurnar sem vitnað er til í þessari grein eru mikilvægar og réttmætar - en þær sniðganga það sem verður að gera fyrr frekar en síðar - það verður enginn árangur fyrr en verkin verða látin tala í stað orða. Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun