„Meira en tvö stig undir“ Aron Guðmundsson skrifar 24. september 2026 12:01 Frá leik FH og Hauka á síðasta tímabili í Olís deildinni Montrétturinn sem og toppsæti Olís deildarinnar er undir þegar að FH tekur á móti Haukum í nágrannaslag í Kaplakrika. Þar hafa Haukar ekki unnið síðan árið 2024 en þeir verma toppsæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins. „
Við erum að sjálfsögðu mjög vel stemmdir. Þetta eru stærstu leikirnir í deildarkeppninni og hvað þá núna þegar bæði lið eru að berjast á toppnum. Þá er þetta ennþá stærra, tvö frábær handboltalið að mætast og leikur sem bæði lið vilja að sjálfsögðu vinna,“ segir Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, í samtali við Vísi en FH og Haukar eru einu taplausu lið deildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðir hennar. Gunnar Magnússon er þjálfari Hauka Þú náttúrulega þekkir þennan ríg bara mjög vel frá þínum ferli. Er tilfinningin öðruvísi fyrir leikmenn og þjálfara að halda inn í viðureignir þessara liða? „Já. Þetta er sjöunda tímabil mitt sem þjálfari Hauka þannig að ég hef farið í nokkuð marga svona Hafnarfjarðarslagi og það er eiginlega alltaf það sama. Ég man ekki eftir öðru en að þetta hafi verið einhver dramatík og jafnir leikir. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta leitar alltaf í mikla spennu. Stundum hefur kannski verið smá munur á liðunum í deildinni en það virðist aldrei skipta máli. Nú eru liðin í fyrsta og öðru sæti. Þessir leikir eru mjög sérstakir og alvöru rígur þarna á milli. Það er bara í rauninni meira en tvö stig undir.“ Vilja brjóta þennan ís Leikur liðanna fer fram í Kaplakrika í kvöld og þar hefur Haukum gengið illa að sækja sigur upp á síðkastið. Síðasti sigur Hauka í Kaplakrika kom í mars árið 2024. „Við fengum þrjár tilraunir í fyrra til þess að landa sigri þarna og okkur tókst ekki að vinna. Það er alveg klárt mál að þetta er svona einn af þessum punktum sem við viljum bæta frá því á síðasta tímabili. Að ná í sigur í Kaplakrika. Það er auðvitað bara erfitt, erfiður útivöllur, en þetta er svona ákveðin prófraun fyrir mína menn að fara í Kaplakrika og ná í þennan sigur og brjóta þennan ís. Við höfum verið að brjóta fljóta svona ísa síðustu mánuði og þetta er svona einn af þeim sem við þurfum að ná núna, það er að ná í sigur í Kaplakrika, alveg klárt mál. Freyr Aronsson hefur verið stórkostlegur í liði Hauka í upphafi tímabils og FH-ingar verða að hafa góðar gætur á honum.Anton Brink Þið eruð með fullt hús stiga á toppi deildarinnar fyrir leik kvöldsins eftir þrjár umferðir. Þú hlýtur að vera mjög sáttur með byrjunina hjá ykkur? „Sáttur með stöðuna á liðinu en auðvitað er bara lítið búið. Mótið er rétt að byrja og við vitum að það verður enginn meistari í september. Gríðarlega mikilvæg stig í boði í kvöld, ekki bara toppsætið og montrétturinn.“ Handbragð Arons sést sífellt betur Gunnar hefur tekið eftir breytingu á leik FH frá því að Aron Pálmarsson steig inn í þjálfarateymið hjá liðinu. Aron Pálmarsson, þjálfari FHVísir/Anton Brink „Mér fannst kannski meiri breyting svona eftir áramót í fyrra, þá sá maður meira hans handbragð. Svo hefur maður bara séð áframhaldandi þróun á því. Þetta FH-lið er feikilega vel mannað lið, góð blanda af ungum og öflugum leikmönnum með reynsluboltum. Ég veit ekki hversu marga þeir áttu í þessu elítulandsliði á dögunum en það sýnir bara hversu öflugir þeir eru. Auðvitað sér maður handbragð Arons á liðinu og það er auðvitað bara gaman að fá að glíma við hann eins og hefur verið að glíma við FH-liðið síðustu ár.“ Grannaslagur FH og Hauka hefst klukkan hálf átta í kvöld og verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Olís-deild karla FH Haukar Hafnarfjörður Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira