Raphinha með þrennu í Sevilla

Sindri Sverrisson skrifar
Raphinha skoraði þrennu í kvöld.
Raphinha skoraði þrennu í kvöld. Getty/Fran Santiago

Barcelona rakaði inn þremur stigum í Sevilla í kvöld og átti Brasilíumaðurinn Raphinha heiðurinn að því með því að skora þrennu.

Leiknum lauk með 3-1 sigri Barcelona þrátt fyrir að liðið lenti undir.

Youssouf Fofana kom heimamönnum yfir á 19. mínútu en Raphinha var búinn að jafna þremur mínútum síðar. Hann kom svo Börsungum yfir snemma í seinni hálfleik og fullkomnaði þrennuna á 69. mínútu, eftir stungusendingu frá Lamine Yamal sem einnig lagði upp annað mark leiksins.

Barcelona hefur því unnið alla sjö leiki sína til þessa í spænsku deildinni og er sex stigum á undan Real Madrid og Real Betis sem bæði eiga þó leik inni. Sevilla er í 5. sæti með 13 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira