KA – Þór 3-0 | Sendu erki­fjendurna í fallsæti með lífs­nauð­syn­legum sigri

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
KA-menn fögnuðu gríðarlega í sigrinum dýrmæta gegn Þór í kvöld.
KA-menn fögnuðu gríðarlega í sigrinum dýrmæta gegn Þór í kvöld. Sýn Sport

KA vann óhemju dýrmætan 3-0 sigur gegn Þór í miklum hitaleik á laugardagskvöld í 24. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld.

Sigurinn kom KA úr fallsæti og sendi jafnframt Þór niður í fallsæti, nú þegar hvort lið á aðeins þrjá leiki eftir. KA-menn eru með 23 stig, tveimur stigum fyrir ofan Þór og fimm fyrir ofan ÍBV sem á leik til góða á morgun við Val í Vestmannaeyjum.

Gríðarlegur fjöldi var á leiknum og sá þegar Jakob Snær Árnason kom KA yfir á 66. mínútu með góðu skoti. Birgir Baldvinsson tvöfaldaði forskotið skömmu síðar og Adam Ægir Pálsson innsiglaði svo 3-0 sigur.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Uppgjörið kemur hér inn innan skamms...

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira