Innlent

Hafnar því að hafa reynt að bola sér inn á sjúkra­stofu

Eiður Þór Árnason skrifar
Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í janúar þar sem hann lét formlega af ráðherraembætti. Inga tók við af honum sem mennta- og barnamálaráðherra. 
Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í janúar þar sem hann lét formlega af ráðherraembætti. Inga tók við af honum sem mennta- og barnamálaráðherra.  Vísir/Vilhelm

Formaður Flokks fólksins hafnar því alfarið að hún hafi reynt að „bola“ sér inn á sjúkrastofu þar sem þáverandi mennta- og barnamálaráðherra lá eftir hjartaaðgerð í desember. Upplifun hans sé gjörólík upplifun hennar og annarra í Flokki fólksins.

„Ég hringdi einu sinni í konuna hans til þess að spyrja hvernig Guðmundur hefði það og hvort hann gæti tekið á móti gestum og ég upplifi þetta ekki í neinu samhengi við það sem þarna kemur fram.“

Þetta sagði Inga Sæland í kvöldfréttum RÚV um yfirlýsingar Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra flokksins. Þau eru ósammála um hvort það hafi verið hans ákvörðun að segja af sér ráðherraembætti í janúar. 

„Það var ég sem skipaði hann í þetta embætti og það var hann sem sagði því af sér. Það er líka staðreynd.“ Inga hafnar því að hafa gert honum að hætta sem ráðherra en Guðmundur segist hafa viljað halda áfram eftir að hann náði sér eftir aðgerðina.

„Það er ekkert um sannleika að ræða, það er bara um upplifun. Ég er ekki að upplifa þessa hluti eins og Guðmundur Ingi Kristinsson gerir, engan veginn. Og ég er bara ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans núna á þessum tímapunkti,“ sagði Inga í kvöldfréttum RÚV. Það sé ljóst að hann sé ósáttur við að gegna ekki lengur ráðherrastöðu.

Inga segir afsögn Guðmundar úr flokknum sem hann tilkynnti í apríl hafa komið sér í opna skjöldu. „Hann upplifir hlutina öðruvísi en ég og hann nálgast hlutina öðruvísi en ég.“  Hún sakni Guðmundar og vilji sjá hann aftur bera merki Flokks fólksins.

Guðmundur hefur greint frá því að Inga hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð í desember. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans til að segja honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Það gerði Guðmundur tólf dögum síðar og tilkynnti svo afsögn úr flokknum í apríl. Inga tók svo við af honum sem mennta- og barnamálaráðherra. 

Viljað komast inn á sjúkrastofuna á þriðja degi jóla

Guðmundur segir að samtal Ingu við eiginkonu hans hafi orðið þess valdandi að hann ákvað að yfirgefa Flokk fólksins.

„Það var samtal um að hún vildi koma inn á sjúkrastofuna og hitta mig vegna þess að henni fannst ég hafa verið allt of lengi frá, níu daga og þetta gengi ekki upp. Ég yrði bara að hætta sem ráðherra,“ segir Guðmundur í samtali við RÚV. 

Þetta hafi verið á þriðja degi jóla í fyrra og konan hans hafi neitað því að hleypa Ingu inn á sjúkrastofuna. Erindið mætti bíða þar til hann hefði verið útskrifaður. 

Kvaðst sjálfur hafa tekið ákvörðun um afsögn

Guðmundur veitti takmarkaðar skýringar á afsögn sinni úr flokknum þegar greint var frá henni í apríl og vísaði í ótilgreindan persónulegan trúnaðarbrest sem varðaði persónuleg samskipti innan flokksins. Þegar hann tilkynnti brotthvarf úr ráðherrastól þann 8. janúar gaf hann til kynna að það hefði verið hans ákvörðun. 

„Að vandlega ígrunduðu máli hef ég ákveðið að segja af mér embætti mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Eins og fram hefur komið gekkst ég undir opna hjartaaðgerð fyrir jól og fram undan er nú bataferli,“ sagði Guðmundur í yfirlýsingu á þeim tíma.  

Inga Sæland hefur ekki gefið Vísi kost á viðtali í dag.  

Fréttin er í vinnslu.


Tengdar fréttir

Hætti í flokknum eftir sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna

Fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra segir að formaður Flokks fólksins hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans til að segja honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Það gerði hann skömmu síðar og sagði sig í kjölfarið úr flokknum.

Guðmundur Ingi segir af sér

Guðmundur Ingi Kristinsson hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Hann mun halda áfram sem þingmaður Flokks fólksins. 

Guðmundur Ingi á sjúkrahúsi

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu embættisfærslur mennta- og barnamálaráðherra við upphaf þingfundar í morgun og lýstu áhyggjum af því hvernig hann hafi beitt sér í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Forseti þingsins benti á að málið varði ekki störf þingsins eða fundarstjórn forseta en upplýsti að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, væri á sjúkrahúsi og geti sökum þessa ekki verið viðstaddur umræður á Alþingi. Hann er ekki sagður alvarlega veikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×