Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2026 07:52 Vólódímír Selenskí með þeim Steve Witkoff og Jared Kushner, sem hafa reynt að binda enda á Úkraínustríðið, með takmörkuðum árangri. AP/Forsetaembætti Úkraínu Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan.
Frumvarpið, sem hefur áður verið samþykkt af öldungadeildinni, felur í sér refsiaðgerðir gegn rússneskum aðilum og fyrirtækjum. Þar á meðal eru fyrirtæki í orkugeira Rússlands og hergagnaframleiðslu en það felur einnig í sér aðgerðir gegn rússneska „skuggaflotanum“ svokallaða. Það veitir Donald Trump einnig vald til að beita helstu kaupendur olíu og gass frá Rússlandi refsiaðgerðum og allt að hundrað prósenta tollum. Því er ætlað að gera Rússum mun erfiðara að fjármagna stríðsrekstur sinn. Það inniheldur einnig ákvæði um að framlengja refsiaðgerðir gegn Íran til ársins 2031. 262 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu og 159 greiddu atkvæði gegn því. Það fer því næst til Trumps til undirskriftar. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal ætlar Trump sér að skrifa undir frumvarpið og gera það að lögum. Kína og Indland meðal helstu kaupenda Kína er meðal helstu kaupenda rússneskrar olíu. Kínverjar kaupa stærstan hluta olíu frá Rússlandi og á miklum afslætti. Indverjar kaupa einnig mikið magn af olíu frá Rússlandi, eins og Brasilía, og frumvarpið gerir Trump kleift að beita þessi ríki allt að hundrað prósenta tollum. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hafði beðið bandaríska þingmenn um að samþykkja frumvarpið og fagnaði hann áfanganum í morgun. Hann segir að frumvarpið gæti reynst öflugt tól til að stöðva stríð Rússa gegn Úkraínu. Refsiaðgerðirnar sem frumvarpið gæti leitt til þyrftu þó að vera harðar og umfangsmiklar og þeim þyrfti að vera beitt samhliða viðræðum og pólitískum aðgerðum Bandaríkjamanna, Evrópubúa og annarra bandamanna Úkraínu. It is symbolic that the U.S. House of Representatives passed the Lindsey Graham Sanctioning Russia and Iran Act on the night of yet another Russian attack on Ukraine with ballistic and other missiles and drones. Once again, civilian infrastructure was targeted, with damage… pic.twitter.com/xFz458d4AN— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) September 17, 2026 Demókratar í fulltrúadeildinni voru ekki einróma um frumvarpið og stóðu margir gegn því. Þeir hafa áhyggjur af því að það veiti Trump of miklar heimildir til að beita tollum sem hann gæti beitt gegn bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu og öðrum ríkjum sem Trump sé illa við. Hann hafi lengi haft umfangsmiklar heimildir til að beita Rússa refsiaðgerðum en hafi kosið að gera það ekki. Það tók Graham langan tíma að fá Trump til að styðja frumvarpið á sínum tíma. Sjá einnig: Segist hafa grænt ljós frá Trump fyrir frekari refsiaðgerðum gegn Rússum Reuters hefur til að mynda eftir Hakeem Jeffries, leiðtoga Demókrata í fulltrúadeildinni, að frumvarpið sé svo götótt að Trump gæti vel sleppt því að beita Rússa og bandamenn þeirra tollum og beitt önnur ríki tollum í staðinn. Þá segja Demókratar að það verði Bandaríkjamenn sem á endanum borgi þessa tolla. Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar, segir að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hafi allt of lengi komist upp með það að fjármagna stríðsrekstur sinn gegn Úkraínu með peningum og auðlindum frá ríkjum sem séu tilbúin til að líta fram hjá afleiðingum stríðsins. Binda þurfi enda á það hið snarasta. With House passage of the Lindsey Graham Sanctioning Russia and Iran Act of 2026, House and Senate Republicans are placing maximum pressure on Vladimir Putin and the Russian war machine. This legislation strengthens economic sanctions against the Russian government, its financial…— Speaker Mike Johnson (@SpeakerJohnson) September 16, 2026 Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa miklum refsiaðgerðum til að reyna að þvinga þá að samningaborðinu en hefur hingað til ekki staðið við stóru orðin. Þá hafa ýmsir Repúblikanar einnig áhyggjur af því að frekari tollar muni koma niður á þeim í þingkosningunum í nóvember. Trump hefur ekki verið feiminn við að beita hin og þessi ríki heims tollum á undanförnum árum en tollar hafa reynst mjög óvinsælir meðal bandarískra kjósenda.
Bandaríkin Donald Trump Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Kína Indland Brasilía Bensín og olía Tengdar fréttir Lindsey Graham er látinn Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham lést í gærkvöldi 71 árs að aldri eftir bráð veikindi. 12. júlí 2026 07:40 Töluðu saman í klukkutíma Donald Trump sagði Vladimír Pútín að hann vildi að endir verði fljótt bundinn á stríðið í Úkraínu, svo Rússland og Bandaríkin gætu aftur átt í eðlilegum samskiptum. Pútín sagðist styðja þetta sjónarmið Trumps. 8. september 2026 17:58 Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið. 5. september 2026 23:09 Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Steve Witkoff, sérstakur erindreki Hvíta hússins, og Jared Kushner, sérstakur sendifulltrúi og tengdasonur Bandaríkjaforseta, munu heimsækja Rússland og Úkraínu um helgina. Bandaríkjaforseti segir þá koma með tillögu sem á að binda enda á stríðið. 5. september 2026 08:58 Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Fleiri fréttir Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Sjá meira
Lindsey Graham er látinn Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham lést í gærkvöldi 71 árs að aldri eftir bráð veikindi. 12. júlí 2026 07:40
Töluðu saman í klukkutíma Donald Trump sagði Vladimír Pútín að hann vildi að endir verði fljótt bundinn á stríðið í Úkraínu, svo Rússland og Bandaríkin gætu aftur átt í eðlilegum samskiptum. Pútín sagðist styðja þetta sjónarmið Trumps. 8. september 2026 17:58
Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið. 5. september 2026 23:09
Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Steve Witkoff, sérstakur erindreki Hvíta hússins, og Jared Kushner, sérstakur sendifulltrúi og tengdasonur Bandaríkjaforseta, munu heimsækja Rússland og Úkraínu um helgina. Bandaríkjaforseti segir þá koma með tillögu sem á að binda enda á stríðið. 5. september 2026 08:58