Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. september 2026 20:00 Jónína Brynjólfsdóttir er oddviti Framsóknar. Aðsend Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt.
Starfshópur Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra lagði til þrjár breytingar á kosningalögum. Með þeim myndi Suðvesturkjördæmi fá fjóra þingmenn til viðbótar en Norðausturkjördæmi missa þrjá og Norðvesturkjördæmi einn. Þessar tillögur féllu ekki í kramið hjá Jónínu Brynjólfsdóttur, forseta sveitarstjórnar Múlaþings, sem ræddi málið í Reykjavík síðdegis í dag. „Það runnu hressilega á mig tvær grímur þegar ég fór að skoða þetta nánar í dag og ég held að þessar tillögur tali svolítið út frá einu sjónarmiði. Það er auðvitað þannig misvægi er viðhaldið í kjördæmum vísvitandi. Þetta er ekki eitthvað nýtt, þetta höfum við búið við alla tíð,“ segir Jónína. Hún telur að bæði sveitarstjórnarfólk og þingmenn landsbyggðarinnar séu langþreytt á að ekki sé hlustað á þeirra hlið í málum sem þau varðar. Þá gerir hún sér ekki grein fyrir því hvaða breytingar urðu til þess að ákveðið var að skoða þessar breytingar. Bæði Reykjavíkurkjördæmin og Kraginn svokallaði séu um þúsund ferkílómetrar og samsvari það einu prósenti af landinu. Norðausturkjördæmi sé 37 sinnum stærra en svæðið sem myndi fá fjörutíu þingmenn. Komi ekki sínu á framfæri með engum þingmanni Með breytingunum myndu þingmenn Norðausturkjördæmis fara úr tíu í sjö. Það geti þýtt að Austurland fái ekki kjörinn fulltrúa sem er búsettur á þeirra svæði innan kjördæmisins og þekkir þeirra sjónarmið. „Af þessum tíu eru tveir frá Austurlandi og það eru þrjú prósent af þingmönnum. Á Austurlandi búa þrjú prósent þjóðarinnar og við erum með þrjú prósent þingmanna. Við erum mjög háð því að eiga samtal við allt sem gerist í Reykjavík. Allt gerist í Reykjavík,“ segir Jónína. En af hverju á þá atkvæði þitt á Austurlandi að vega meira en atkvæði kjósenda í Kópavogi? „Til þess að reyna að koma þeim málefnum á framfæri sem Austurland þarf að koma á framfæri. Við gerum það vitaskuld ekki ef við eigum varla þingmann eða bara ekki þingmann, sem eru alveg líkur á að gerist ef hér verður fækkað niður í sjö þingmenn,“ segir Jónína. „Þá erum við ekki lengur með þrjú prósent af röddum Alþingis lengur, þá myndum við missa okkar rödd á þingi.“ Jónína tekur atkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu sem dæmi en niðurstaða kosninganna var afgerandi á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins. „Það sem við á landsbyggðinni horfum til og hvað skiptir okkur máli er ekkert endilega sammæli um á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hún. Einn maður, eitt atkvæði Ef við horfum á kosningakerfið sjálft, ung manneskja sem flytur frá Egilsstöðum í Kópavog fær bara allt í einu minna vægi með sama atkvæði. Er það eitthvað sanngjarnt? „Af hverju þarf það að vera sanngjarnt?“ spyr Jónína á móti. „Það sem ég er að segja er að það eru aðrir hlutir sem við eigum að horfa til til þess að meta það hvernig við getum tryggt að allir eigi aðgang að Alþingi Íslendinga og því sem þar fer fram og þeim ákvörðunum sem eru teknar þar.“ Hún telur að það þurfi að horfa á hlutina í stærra samhengi þar sem skýrslan sé einungis miðuð út frá því að jafna atkvæðavægi. Ekki hafi verið skoðað nógu mikið að meta út frá flatarmáli kjördæmanna. „Þessi byggðasjónarmið sem við teljum að skipti máli, það er ákvörðun að halda byggð í landinu. Það þarf að verja og berjast fyrir því,“ segir hún. „Það er miklu auðveldara fyrir ykkur að tengja við það að það sé einn maður, eitt atkvæði og það sé sanngjarnt. En þegar við upplifum að við eigum ekki sæti við borðið og okkar rödd heyrist ekki, þá finnst okkur það líka ósanngjarnt.“
Norðausturkjördæmi Múlaþing Kjördæmaskipan Reykjavík síðdegis Bylgjan Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Sjá meira