Erlent

Mann­skæður elds­voði í flutninga­skipi í Kína

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá stórskipahöfninni í Qingdao á norðausturströnd Kína.
Frá stórskipahöfninni í Qingdao á norðausturströnd Kína. Vísir/EPA

Mikill mannskaði er sagður hafa orðið þegar eldur kviknaði í flutningaskipi sem liggur í höfn í Quindao í Kína í dag. Forseti Kína segir leitar- og björgunarstörf hafin.

Eldurinn kviknaði í flutningaskipinu Ocean Melody sem lá við festar til viðgerða í Beihai-skipasmíðastöðinni í hafnarborginni Qindao á norðausturströnd Kína. AP-fréttastofan segir að skipið sigli undir líberískum fána.

Kínverska fréttaveitan Xinhua segir mannskaðann mikinn. Xi Jinping forseti segist hafa gefið skipanir um björgun á fólki.

Li Qiang, forsætisráðherra Kína, segir að fólk sé fast um borð í skipinu.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×