Golf

Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara

Andri Broddason skrifar
Jon Rahm og Bryson DeChambeau eru tvær af stærstu stjörnum LIV-mótaraðarinnar en þeir eiga eftir að fá milljónir greiddar.
Jon Rahm og Bryson DeChambeau eru tvær af stærstu stjörnum LIV-mótaraðarinnar en þeir eiga eftir að fá milljónir greiddar. Samsett/Getty

LIV-mótaröðin í golfi hefur lýst yfir gjaldþroti og er að biðja um vernd frá því í Bandaríkjunum. Mótaröðin skuldar kylfingum margar milljónir dollara en hún er með áætlun um að halda áfram á næsta ári með nýrri útgáfu.

Stjórnendur LIV eru að berjast í bökkum með að halda mótaröðinni á floti eftir að sádi-arabískir fjárfestar drógu fjárhagslegan stuðning sinn til baka. Mótaröðin er stórskuldug og virðist eiga í erfiðleikum með að borga til baka.

Eftir að tímabilið kláraðist nú í sumar losaði mótaröðin við 90 prósent af starfsmönnum mótaraðarinnar og byrjaði leit fyrir fjárfestingu frá öðrum stöðum. Samkvæmt Sky News er LIV-mótaröðin að ræða við samningsbundna leikmenn hvort þeir vilji fara frá mótaröðinni eða halda áfram hjá LIV í nýrri og breyttri mynd.

Mótaröðin stórskuldug

Þegar LIV lýsti yfir gjaldþroti kom í ljós að mótaröðin skuldar enn mörgum leikmönnum mótaraðarinnar pening. Þeir sem mótaröðin skuldar mest eru stjórstjörnurnar Jon Rahm og Bryson DeChambeau en mótaröðin á eftir að borga þeim milljónir dollara.

Óvíst er hvað verður um kylfingana sem eru enn samningsbundnir LIV en fyrr á þessu ári bauð PGA- mótaröðin nokkrum kylfingum samning sem gaf þeim tækifæri á að snúa aftur til mótaraðarinnar. Brooks Koepka tók þeim samning en kylfingar á borð við DeChambeau og Cameron Smith vildu ekki taka honum. Ekki er búist við að annar slíkur samningur verði í boði fyrir leikmenn LIV-mótaraðarinnar.

LIV-mótaröðin stefnir enn á að halda áfram göngu sinni og eru skipulögð mót í Bandaríkjunum, Englandi og Ástralíu svo eitthvað sé nefnt. Mótaröðin stefnir enn á að halda áfram göngu sinni þrátt fyrir breytta mynd. Við þurfum einfaldlega að bíða og sjá hver lausnin verður og hvort mótaröðin nái að halda áfram starfsemi sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×