Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar 7. september 2026 12:03 Oft er talað um mikilvægi þess að þekkja gildin sín, standa vörð um þau og fylgja þeim eftir. Það á jafnt við um einstaklinga, fyrirtæki, félög, þjóðir og ríki. Þetta er oft sagt þegar það kreppir að og sú er staðan núna því ný skýrsla Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (Stjórnarráðið, 4.9.2026) dregur upp alvarlega mynd af stöðu loftslagsmála í heiminum. Næstu ár ættu að vera ár nægjusemi, forsjálni og afreka í málefnum jarðar. Íslendingar þurftu svo sannarlega að sýna forsjálni vegna Covid-19 árið 2020 og nægjusemi líka, þeir drógu saman seglin á mörgum sviðum og náttúran andaði léttar. Forsjálni er aftur komið á dagskrá, spurningin núna er hvort hlýnun verður 1,6°C, 1,8°C eða meiri. Við þurfum að búa okkur undir næstu ógn. Viðbrögð kalla á forsjálni Sjaldan afrekar ein stund margra daga forsómun – er málsháttur sem merkir einfaldlega það sama og hann segir: Sjaldan vinnst það upp á skammri stund sem lengi hefur verið vanrækt. Orðið afrek vekur athygli. Afrek kallar á forsjálni, að undirbúa jarðveginn af kostgæfni. Málshátturinn ofangreindi er í mótsögn við meint leiðarljós Íslendinga: „Þetta reddast“. Sérstaklega vegna þess að við vitum núna að þetta reddast ekki nema með breyttum lífsháttum. Við vitum það vegna þess að við höfum þekkingu á þeirri staðreynd að 1,5 gráðu hlýnun á jörðinni er þegar orðin óumflýjanleg. Við höldum samt áfram í vonina um að það sé hægt að lágmarka skaðann. Þetta reddast hugarfar Auðvitað getur margt reddast á síðustu stundu og vonandi verður það alltaf þannig. Skjótt skipast veður í lofti er óhjákvæmilega eitthvað sem mun alltaf eiga við hér á landi og þá þarf að bjarga hlutunum strax. Ekki þó með því að grafa undan framtíðinni. Vissulega reddast hlutir af tilviljun og vegna þess að einhver er fljótur að hugsa og bregðast skjótt við. Ekki er þó vænlegt að temja sér „þetta reddast“ hugarfar eða treysta á það – því oftast reddast hlutirnir einungis vegna þess að við höfum búið okkur vel undir þá. Við eigum í raun þétt gagnasöfn af þýðingarmiklum upplýsingum um framtíðina og lífsskilyrðin næstu ár. Framtíðin er í höndum okkar og því miður jafnvel allt lífríkið. Við getum ekki reddað veltihringrás Atlantshafsins með fingrasmelli. Hvað liggur á bak við afrek? Afrek kosta yfirleitt einbeitni og alúð, þjálfun og metnað, forsjálni og hugrekki. Afrek eru ekki unnin af tilviljun þau eru afrakstur þess að strita að markmiði, hugsjón, verki, björgunarstarfi. Bak við eina stund af afreksverki getur legið áralöng þrautseigja og þolinmæði. Vísindafólk á sviði loftslags- og umhverfismála hefur með rannsóknum sínum og niðurstöðum unnið afrek sem nýtist í baráttunni gegn óheillaþróun mannlegrar breytni gagnvart auðlindum jarðar. Við vitum hvað þarf til að nema staðar. Við stöndum frammi fyrir óafturkræfum breytingum í loftslags- og vistkerfum og við finnum knýjandi þörf til að taka höndum saman í þessu verkefni. Geta næstu misseri orðið tími nægjusemi, forsjálni og afreka í málefnum jarðarinnar? Vissulega, eitt ár nægir ekki, við þurfum mörg ár til að vinna það afrek að stöðva sóunina sem við stöndum fyrir. Ekki missa vonina Veðurstofa Íslands hefur bent á að veruleg veiking eða hrun AMOC, veltihringrásar Atlantshafsins, geti leitt til staðbundinnar kólnunar á Íslandi, meðalhiti á Íslandi gæti lækkað um allt að níu gráður, og á sama tíma til frekari hlýnunar á meginlandi Evrópu. Ekki er vitað hversu mikla veikingu hringrásin þolir áður en hún stöðvast. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, sagði nýlega í fréttum, mikilvægt að niðurstaða skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna leiði ekki til þess að fólk missi vonina um að hægt sé að draga úr hnattrænni hlýnun og gefist upp á verkefninu. Hann sér tækifæri til að bregðast við, það er gott. Við verðum með öðrum orðum að hlusta og bregðast við. Forsjálni er fyrirhyggja, gætni og útsjónarsemi, að vera framsýn. Við vitum nú þegar hvað gerist ef haldið er áfram á þessari braut en þegar farið er yfir ákveðinn vendipunkt þá er ekki aftur snúið, þá er ekki lengur hægt að redda málunum. Fáir tímar verða forsjálum ónýtir og aðgætinn forðast öfgar. Við þekkjum gildin okkar, veljum því forsjálni í stað „þetta reddast“ og áhættuhegðunar. Næstu ár ættu að vera ár nægjusemi, forsjálni og afreka í málefnum jarðar og lífríkis. Höfundur er heimspekingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Hersveinn Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar