Innlent

Raf­magns­laust í Reykja­vík og Mos­fells­bæ

Eiður Þór Árnason skrifar
Frá Grafarholti í Reykjavík þar sem tilkynnt hefur verið um rafmagnsleysi.
Frá Grafarholti í Reykjavík þar sem tilkynnt hefur verið um rafmagnsleysi. Vísir/Vilhelm

Rafmagnslaust er í Mosfellsbæ og Grafarvogi, Úlfarsárdal og á Kjalarnesi í Reykjavík. Þetta segir í tilkynningu frá Veitum sem vinna að því að greina og gera við bilunina sem kom upp í aðveitustöð við Korpu. Fréttastofu hafa einnig borist ábendingar um rafmagnstruflanir í Grafarholti.

Landsnet segir að spennir í tengivirkinu Korpu hafi leyst út með áðurnefndum afleiðinum. Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir að nánar verði rýnt í orsök bilunarinnar eftir að rafmagn er komið aftur á. 

Rafmagnstruflunin getur haft áhrif á fjarskipti og afhendingu á heitu vatni í efri byggðum þar sem vatni er dælt upp. Fréttastofu bárust ábendingar um truflanir á netsambandi um farsímakerfi á níunda tímanum. 

Rafmagnsleysið hafði meðal annars áhrif á starfsemi verslunar Krónunnar í Mosfellsbæ og fólk sem fylgdist með leik Liverpool og Ipswich í ensku úrvalsdeildinni í Egilshöll. 

Þá var leikur Aftureldingar og Víkings í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í gangi í íþróttahúsinu að Varmá þegar ljósin slokknuðu skyndilega.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×