Formúla 1

Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér

Andri Broddason skrifar
Isack Hadjar náði að fagna á verðlaunapallinum en þurfti svo að gefa verðlaunin frá sér. Nú hefur hann aftur verið dæmdur í þriðja sæti kappakstursins.
Isack Hadjar náði að fagna á verðlaunapallinum en þurfti svo að gefa verðlaunin frá sér. Nú hefur hann aftur verið dæmdur í þriðja sæti kappakstursins. Alessio Morgese/Getty Images

Isack Hadjar fær aftur þriðja sætið í Mónakó eftir að áfrýjunardómstóll Alþjóðlega akstursíþróttasambandsins hafnaði áfrýjun Alpine. Pierre Gasly var verðlaunað þriðja sæti kappakstursins eftir að Alpine áfrýjaði refsingum sem hann fékk.

Isack Hadjar, ökumaður Red Bull, fékk þann heiður að standa á verðlaunapalli í Mónakó-kappakstrinum í ár. Hann fékk að gera það eftir að ökumenn fyrir framan hann fengu refsingu fyrir að keyra of hratt inni á þjónustusvæðinu. Gastly kom þriðji í mark í kappakstrinum en endaðu í sjöunda sæti vegna refsinga.

Óvenju margar slíkar refsingar voru gefnar í Mónakó og byrjuðu liðin að rannsaka hvort að hraðinn hafi verið mældur vitlaust. Nokkur lið urðu fyrir refsingunum en Alpine var eina liðið sem áfrýjaði dómnum og þeim á að fá hana í gegn.

Pierre Gasly fékk því verðlaunin fyrir að lenda í þriðja sæti viku eftir kappaksturinn. Nú hafa næstum þrír mánuðir liðið síðan kappaksturinn var haldinn en Áfrýjunardómstóll Alþjóðaakstursíþróttasambandsins felldi áfrýjun Alpine um helgina og refsingin sem Gasly fékk var aftur gild.

Isack Hadjar mun því fá stigin fyrir að enda í þriðja sæti í Mónakó-kappakstrinum. Pierre Gasly þarf því að skila verðlaunagripnum sem hann fékk frá Hadjar viku eftir keppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×