Formúla 1

Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton getur verið sigursælasti ökumaður Monza-kappakstursbrautarinnar frá upphafi.
Lewis Hamilton getur verið sigursælasti ökumaður Monza-kappakstursbrautarinnar frá upphafi. Anni Graf - Formula 1/Getty Images

Um helgina fer fram ítalski kappaksturinn í Formúlu 1 og mun hann vera þýðingarmikill fyrir Lewis Hamilton, ökumann Ferrari. Með sigri bætir hann met Michaels Schumacher sem sigursælasti ökumaður brautarinnar.

Ítalski kappaksturinn er þýðingarmikill fyrir Ferrari þar sem brautin er þeirra heimavöllur. Ferrari bíllinn verður með séruppfærslu á vél bílsins sem á að henta löngum beinum köflum brautarinnar.

Um helgina mun Ferrari-bíllinn skarta nýju útliti til heiðurs Ferrari-goðsagnarinnar Michael Schumacher þar sem 20 ár eru síðan hann vann sinn fyrsta sigur með liðinu. Ferrari-bíllinn og föt ökumanna Ferrari munu skarta sjö stjörnum í tilefni sjö heimsmeistaratitla sem Schumacher vann á sínum ferli.

Það mun ekki vera neitt nýtt fyrir Lewis Hamilton þar sem hann er einnig með sjö heimsmeistaratitla. Það eru þó ekki einu líkindi Schumacher og Lewis Hamilton en þeir hafa báðir unnið fimm kappakstra á Monza-brautinni þar sem ítalski kappaksturinn fer fram. Með sigri getur því Lewis Hamilton orðið sigursælasti ökumaður á Monza frá upphafi.

Ítalinn Kimi Antonelli, sem er í fyrsta sæti heimsmeistaramótsins, er að skipta um vél og mun byrja kappaksturinn aftastur. Það gefur Ferrari-liðinu aukið tækifæri til þess að vinna kærkominn heimakappakstur.

Fátt er samanburðarhæft við að Ferrari-ökumaður vinni ítalska kappaksturinn. Lewis Hamilton varð vitni að því þegar Charles Leclerc vann ítalska kappaksturinn árið 2019 sem ökumaður Ferrari. Fagnaðarlætin á brautinni voru eitthvað sem hann hafði aldrei séð áður.

„Að vinna hér myndi verða óaðfinnanlegt. Einnig hef ég hugsað út í það að ef ég vinn verð ég líklegast eini svarti ökumaður sögunnar til þess að vinna ítalska kappaksturinn með Ferrari.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×