Handbolti

Full­komin byrjun eftir heim­komu Dags Árna

Sindri Sverrisson skrifar
Dagur Árni kann vel við sig í gulu treyjunni
Dagur Árni kann vel við sig í gulu treyjunni Mynd:KA

KA-menn unnu stórsigur í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild karla í handbolta þegar þeir heimsóttu HK-inga í Kórinn. Niðurstaðan varð 37-28 sigur gestanna frá Akureyri sem nutu þess að hafa fengið Dag Árna Heimisson aftur í sitt lið.

Dagur Árni, sem sneri heim í KA frá Val í sumar, fór á kostum í leiknum og endaði með 12 mörk úr aðeins 14 skotum. Þar af voru fimm mörk úr fimm skotum af vítalínunni.

Dagur Árni var kominn með fimm mörk í hálfleik og var staðan 15-13 KA í vil að honum loknum. Hann hóf hins vegar seinni hálfleikinn af enn meiri krafti og kom KA í 21-17 með sínu tíunda marki, þegar enn voru tuttugu mínútur eftir af leiknum.

Bruno Bernat kom þá inná til að freista þess að verja víti frá Andra Þór Helgasyni, og tókst það, og smám saman juku KA-menn svo forskotið sitt og enduðu á að byrja tímabilið á öruggum sigri.

Mikið álag var á Bjarna Ófeigi Valdimarssyni í sóknarleik KA í fyrra en hann nýtur þess nú að hafa Dag Árna sér við hlið og endaði með fimm mörk. Unglingalandsliðsmaðurinn Jens Bragi Bergþórsson skoraði svo sex mörk úr aðeins sjö skotum af línunni.

Ágúst Elí Björgvinsson stóð í marki KA stærstan hluta leiksins og varði 12 skot af 37, eða 32%, eða mun betur en kollegar hans hjá HK þar sem Brynjar Vignir Sigurjónsson varði 4 af 28 skotum og Patrekur Guðni Þorbergsson ekkert skot.

Andri Þór Helgason endaði markahæstur hjá HK með sjö mörk úr ellefu skotum, þar af þrjú úr fjórum vítum, og Aron Dagur Pálsson kom næstur með fjögur mörk.

Öll tölfræði úr leiknum er fengin af vef HB Statz sem heldur utan um alla tölfræði úr Olís-deildunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×