Sport

Settur til hliðar vegna á­kæru

Valur Páll Eiríksson skrifar
Josh Jacobs var áður leikmaður Las Vegas Raiders.
Josh Jacobs var áður leikmaður Las Vegas Raiders. vísir/getty

Josh Jacobs, hlaupari Green Bay Packers í NFL-deildinni, hefur verið settur í bann af deildinni á meðan leyst er úr meintri líkamsárás hans á hendur kærustu.

Jacobs var ákærður fyrir helgi vegna meintrar líkamsárásar og eignaspjöll á heimili hans í maí. Hann sætir tveimur minniháttar (e. misdemeanor) ákærum í málinu þar sem saksóknurum þótti ólíklegt að standast sönnunarbyrði yrði alvarlegri ákæra (e. felony) lögð fram.

NFL-deildin brást hratt við og setti Jacobs í bann á meðan málið er til úrlausnar hjá dómstólum. Hann mun því ekki geta keppt eða æft með Packers liðinu um óákveðinn tíma.

Jacobs hljóp fyrir rúmlega 900 stikum á síðustu leiktíð og hefur verið á meðal öflugri hlaupara deildarinnar undanfarin ár. Green Bay verður því án lykilmanns í sókn liðsins um óákveðinn tíma þegar aðeins tvær vikur eru þar til keppni í deildinni hefst.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×