Upp­gjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skrá­veifu

Hjörvar Ólafsson skrifar
FH er nýkomið heim eftir sigur í Evrópukeppni.
FH er nýkomið heim eftir sigur í Evrópukeppni. Guðmundur/Vísir

Valur og FH skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í í lokaleik 17. umferðar Bestu-deildar kvenna í fótbolta á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag.

Mörkunum rigndi inn í blíðskaparveðrinu þegar um það bil stundarfjórðungur var liðinn af leiknum. Helena Maree Errington hóf markaflóðið en hún slapp ein í gegn, fór framhjá Tinnu Brá Magnúsdóttir og setti boltann í autt markið.

Staðan 1-0 fyrir FH en Sóley Edda Ingadóttir jafnaði metin fyrir Val skömmu síðar með marki beint úr hornspyrnu. Adam blessaður var hins vegar ekki lengi staddur í paradís hjá Valsliðinu þar sem Birna Kristín Björnsdóttir endurheimti forystuna fyrir FH nokkru mínútum síðar.

FH fór með 2-1 forskot inn í búningsklefa í hálfleik eftir fjörugan fyrri hálfleik. Skrúfað var fyrir lekann í varnarleik liðanna í seinni hálfleik en Lillý Rut Hlynsdóttir tryggði Val mikilvægt stig með jöfnunarmarki sínu í uppbótartíma seinni hálfleiks. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira