Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 30. ágúst 2026 09:03 Draumur Valdas Dambrauskas er svo sannarlega að rætast. Getty/Aziz Karimov Litáinn Valdas Dambrauskas náði aldrei að verða fótboltamaður á háu getustigi en þegar hann nældi sér í væna fúlgu í sjónvarpsþættinum Viltu vinna milljón sá hann tækifæri á að láta draum rætast um að verða fótboltaþjálfari. Nú er hann kominn í Meistaradeild Evrópu.
Næst þegar Gummi Ben spyr þátttakanda í Spurningaspretti hvað hann hyggist gera fyrir vinningsféð sitt ætti viðkomandi kannski að íhuga að segjast ætla í Meistaradeild Evrópu. Nú er að minnsta kosti komið fordæmi. Dambrauskas, sem er 49 ára gamall, hefur nú stýrt liði Sabah frá Aserbaísjan í rúmt ár. Hann gerði liðið að tvöföldum meistara í heimalandinu, í fyrstu tilraun, og kom því svo í gegnum fjórar umferðir í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í sumar. Slógu út Víkingsbana og mæta stórliðum Þar var lokamótherjinn lið Hapoel Be‘er Sheva, sem slegið hafði Víking Reykjavík út með naumum hætti, og vann Sabah einvígið eftir framlengingu. Þar með er Dambrauskas kominn með Sabah í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og þar er fyrsti mótherjinn stórlið Manchester United, þann 10. september næstkomandi. Sabah mun einnig mæta liðum á borð við Barcelona, Arsenal, Napoli og Dortmund, svo óhætt er að segja að draumur Dambrauskas sé nú að rætast. Það hefur þó ekki gengið þrautalaust en grunninn lagði Dambrauskas fyrir 24 árum, þegar hann vann 4.000 litas, sem uppreikna mætti sem um hálfa milljón íslenskra króna í dag, með árangri sínum í spurningaþættinum Viltu vinna milljón. Valdas Dambrauskas explains how winning a Lithuanian version of 'Who Wants to Be a Millionaire?' helped start his journey to leading Sabah to the Champions League 🤯👏 pic.twitter.com/YAUYRLzYpi— Match of the Day (@BBCMOTD) August 28, 2026 Dambrauskas, sem best náði að spila í þriðju efstu deild í Litáen sem leikmaður, ákvað nefnilega að nýta peningana til þess að flytja til Englands og læra að verða þjálfari. Hann stundaði nám við London Metropolitan háskólann og fékk tækifæri í unglingaakademíum Brentford, Fulham og Manchester United, sem nú bíður Sabah í Meistaradeildinni. Hann færði sig um tíma heim til Litáen og þjálfaði þar yngri landslið og síðar félagslið, og vann þar titla áður en hann hélt til Lettlands, Búlgaríu og Króatíu og fagnaði þar einnig titlum. Dambrauskas starfaði einnig á Kýpur og í Ungverjalandi en er nú kominn til Sabah og búinn að koma liðinu, sem og sjálfum sér, í draumalandið.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Chelsea - Brighton | Welbeck fær gamla félagið í heimsókn Enski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Enski boltinn Fleiri fréttir Ísak Snær tryggði sínu liði sigur Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Chelsea - Brighton | Welbeck fær gamla félagið í heimsókn Valur - FH | Verður Evrópuþynnka hjá FH? Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Sjá meira