Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar 28. ágúst 2026 16:01 Umræðan í aðdraganda kosninganna hefur litast af upphrópunum og rangfærslum á báða bóga, þannig að mjög erfitt hefur verið að henda reiður á því hvað er rétt og rangt. Mjög ólíkleg bandalög hafa myndast, t.d. Sólveig Anna að tala fyrir nei-kvæða með Halldór Benjamín og minnast þar á leigubremsu sama dag og fréttir af methagnaði leigufélags sem Halldór stýrir eru í hámæli. Þá virðast þeir sem stýra landinu í dag telja að betra væri að njóta góðs af regluverki og kröfum ESB til að tryggja stöðugleika, meðan þeir sem eru í stjórnarandstöðu hamast á því hvað Ísland sé frábært og við getum reddað þessu sjálf. Eitthvað segir mér að í umræðum á þingi gætu hlutverk eitthvað snúist við. Þá er einnig sérkennilegt að þeir sömu og tala niður möguleg áhrif Íslands innan ESB, tala hvað mest um hvað við stöndum flestum þjóðum framar á flestum sviðum. Á þeim grunni myndi ég telja að við gætum haft mun háværari rödd innan ESB, og áhrif á mótun þeirra laga og reglna sem þaðan koma, en mannfjöldi og stærð gefa til kynna. Það er nú einu sinni svo að mikið af þeim reglum mótast á fundum sérfræðinga, en ekki aðeins á hinu pólitíska sviði ESB þar sem atkvæðagreiðslur fara fram. Því tel ég að áhrif okkar gætu orðið mun meiri en fulltrúafjöldi í Evrópuþingi segir til um. Hafandi starfað innan EFTA samstarfsins og fengið þar ágæta innsýn í það hvernig kaupin gerast í Brussel, tel ég að hagsmunum Íslands kunni að vera betur borgið innan ESB að uppfylltum vissum skilyrðum. Þau skilyrði þurfa að vera uppfyllt í samningi okkar við ESB, s.s. varðandi sjávarútveg og landbúnað. Þar eru tækifæri bæði vegna legu Íslands í tengslum við landbúnað og varðandi reynslu Íslands og stöðu innan sjávarútvegs. Fordæmi eru fyrir undanþágum fyrir eyjar innan ríkja sambandsins, s.s. Kanaríeyjar, Madeira og Azoreyjar. Svo er það er nú einu sinni svo að Íslendingar eiga mörg af öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum Evrópu nú þegar. Hvað ætti því að breytast við inngöngu í ESB hvað það varðar? Guðmundur í Brim greindi frá því í umræðuþætti um ESB aðildarviðræður um daginn að bara hans fyrirtæki veiði meiri fisk en Þýskaland. Ættu Þjóðverjar kannski frekar að óttast enn frekari möguleika Íslendinga innan sjávarútvegs í Evrópu með inngöngu í ESB? Varðandi landbúnað er það svo að ýmsar undanþágur eru veittar vegna landbúnaðar á harðbýlum svæðum og landfræðilega einangruðum, þá hagsmuni þarf að standa vörð um í samningaviðræðunum. Þá hefur mikið verið hamrað á því að við glötum fullveldi okkar og sjálfstæði með því að ganga í ESB og að lífsgæði okkar verði eins og í verst stöddu löndunum þar. Innan ESB eru hins vegar 27 sjáfstæð ríki sem eru jafn misjöfn og þau eru mörg, en hafa ákveðið að eiga náið samstarf þar sem þau telja það líklegra til að tryggja hagsmuni sína. Eru Frakkland, Þýskaland, Svíþjóð og Finnland ekki sjálfstæði ríki? Er Lúxemborg ekki sjálfstætt ríki með hvað best lífskjör í heiminum? Af hverju ætti annað að gilda um Ísland? Ég hef ekki enn nefnt gjaldmiðilsmálin, enda er Evran engin töfralausn sem tekin verður upp á skömmum tíma. Til þess að taka hana upp þarf að uppfylla Maastricht-skilyrðin sem myndu gera kröfur um að ná tökum á eigin ríkisfjármálum og verðbólgu sem ætti alltaf að teljast jákvætt. Á þeirri vegferð mætti t.d. skoða að binda krónuna fyrst við gengi Evru, áður en til mögulegra upptöku kæmi. Mikið hefur verið rætt um kosti og galla krónunnar, en kostnaðurinn við að halda henni úti er gríðarlegur og örmynt verður alltaf háð miklum sveiflum. Þær sveiflur hafa stundum reynst okkur vel til að takast á við áföll, en það vill gleymast að stærð þeirra áfalla má líka stundum rekja til einmitt þessarar sömu krónu. Hins vegar held ég að krónan hafi mun fleiri slæm áhrif og alger skortur á fyrirsjáanleika gerir venjulegum fjölskyldum mjög erfitt fyrir að skipuleggja fjármál sín til lengri tíma litið. Viðvarandi verðbólga gerir mann hálf ónæman fyrir kostnaði hlutanna og það að greiða og greiða af húsnæðisláni sem alltaf hækkar er ekki líklegt til að ala á aga einstaklinga í fjármálum. Þá eru margir þættir sem virðast vera einhvers konar hringekja, s.s. að hækkun á húsaleigu hækkar verðbólgu einna mest um þessar mundir en margir húsaleigusamningar eru einmitt bundnir við vísitölu. Þetta má auðvitað laga hér innanlands, en einhvern veginn hefur ekki en verið tekið á þessu síðan krónan var sett á flot árið 2001. Einnig hefur áróður frá aðilum sem ég á ákaflega lítið sameiginlegt með styrkt mig í þessari afstöðu, eins og Guðni fyrrverandi forseti sagði: Það er frábært að eiga hana en vont að skulda hana. Það eru því augljóslega ríkir hagsmunir vissra aðila að halda í núverandi kerfi, og margir þeirra gera nú þegar upp í evrum. Þá er ótalin sú breytta heimsmynd sem við búum við, ógnir víða að og nauðsynlegt að eiga enn traustari bandamenn. ESB er fyrst og fremst afsprengi heimstyrjaldanna, þar sem Evrópuríki ákváðu að samtvinna hagsmuni sína til að koma í veg fyrir frekari styrjaldir. Það er göfug hugsun sem á enn við i dag. Hvað eru þeir sem ætla að segja nei hræddir við? Það er ekki verið að taka neina endanlega ákvörðun um neitt – við erum bara að kjósa um að klára samningaviðræður við ESB. Ég tel að við séum í mun betri samningsstöðu nú en eftir hrun, þegar við vorum ekki hátt skrifuð hjá mörgum í Evrópu. Að viðræðum loknum tökum við ákvörðun um það hvort við teljum hagsmunum okkar betur borgið innan ESB eða utan. Það verður engin innganga nema með annarri kosningu. Óttist menn að valdhafar á þeim tíma sem samningur liggur fyrir, gangi á bak orða sinna og boði ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu, mun samt að öllum líkindum þurfa að gera breytingar á stjórnarskrá sem kallar á Alþingiskosningar til að þær öðlist gildi. Þar fengjum við því aftur tækifæri til að stöðva málið. Þar fyrir utan væri pólitískur afleikur að þvinga í gegn aðild ef ljóst er að vilji þjóðarinnar stendur ekki til þess. Ég hef ekki gert upp hug minn hvað varðar inngöngu í ESB, en vil alls ekki kasta á glæ þessu tækifæri sem gefst til að klára umræðuna í eitt skipti fyrir öll og kjósa svo um samning. Segjum já á morgun og treystum á okkar öfluga þjóð geti náð hagstæðum samningum sem tryggja okkar hag enn betur til framtíðar. Höfundur er viðskiptalögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar