Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 22:12 Það andar verulega köldu milli þeirra Mark Carney forsætisráðherra Kanada og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. AP Fjármálaráðherra Kanada kynnti í dag hefndartolla Kanada á ýmsar bandarískar vörur sem svar við nýjum tollum Bandaríkjastjórnar. Lagður verður tollur á bilinu 15 til 50 prósent á ýmsar bandarískar vörur og taka þeir gildi á miðnætti 8. september.
Viðræður Bandaríkjastjórnar og Kanada runnu í sandinn um helgina en samninganefndir höfðu átt í hörðum viðræðum við Bandaríkin frá því í júlí þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að leggja fimmtíu prósenta toll á innfluttar kanadískar vörur. Trump hafði tímabundið frestað gildistöku boðaðra refsitolla vegna samningaviðræðna og sagði að samningsaðilar væru á lokametrunum við að undirrita samning sem hagnaðist báðum ríkjum. Forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, stöðvaði síðan viðræðurnar á föstudaginn síðastliðinn og sagði að Bandaríkjamenn hefðu beðið um of mikið og boðið of lítið. Í kjölfarið boðaði Trump 50 prósenta toll á ýmsar kanadískar vörur. François-Philippe Champagne, fjármálaráðherra Kanada, sagði að nýtilkynntir tollar Kanada væru markvisst svar við tollum Bandaríkjastjórnar á kanadískar vörur. Tollar Kanadamanna muni gilda um ýmsar bandarískar vörur, svo sem stál, húsgögn, fatnað og heimilistæki. Auk þess greindi hann frá stuðningsáætlun ríkisins til kanadískra fyrirtækja sem kynnu að verða fyrir áhrifum tollaákvörðunar Bandaríkjastjórnar.
Bandaríkin Kanada Donald Trump Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Kanada vilja njóta allra þeirra fríðinda sem fylgir því að vera ríki Bandaríkjanna án þess að vera það. Kanadamenn segja þau skilyrði sem Bandaríkin lögðu fram vera óásættanleg. 23. ágúst 2026 15:23 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira
Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Kanada vilja njóta allra þeirra fríðinda sem fylgir því að vera ríki Bandaríkjanna án þess að vera það. Kanadamenn segja þau skilyrði sem Bandaríkin lögðu fram vera óásættanleg. 23. ágúst 2026 15:23