Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar 21. ágúst 2026 16:02 Því er iðulega haldið fram af þeim sem berjast gegn aðildarviðræðum við ESB og upptöku Evru að vegna þess hve auðlindadrifið íslenskt hagkerfi sé komi sér betur af hafa sjálfstæðan gjaldmiðil til að jafna sveiflurnar, lesist; geta látið gengið síga. Því eigum við fyrir alla muni að halda krónunni. Nema... Að vísu henti ISK ekki fyrir sjávarútveginn. Hann hafi megnið af sínum tekjum í erlendri mynt og því sé eðlilegt að hann geri upp í erlendri mynt, oftast EVRU. ISK henti heldur ekki stóriðjufyrirtækjunum. Heimsmarkaðsverð miði yfirleitt við USD og þar að auki séu fyrirtækin í eigu stærri alþjóðafyrirtækja. Því sé sjálfsagt að þau geri upp í erlendri mynt, yfirleitt USD. Þá eru það gagnaverin. Það verður að segjast eins og er að ef gagnaver væru skyldug að gera upp í ISK, þá væru ekki mörg gagnaver hérlendis. Það er því sjálfsagt að þau geri upp í þeirri mynt sem hentar best hverju sinni, undantekningarlítið í erlendri mynt. Gagnaver eru jú græn stóriðja. Þar sem orkuframleiðslufyrirtækin hafa meirihluta tekna sinna af sölu í erlendri mynt er að sjálfsögðu eðlilegt að þau geri upp í erlendri mynt líka. Hið sama gildir náttúrulega um orkuflutningsfyrirtækið Landsnet. Stærri flugfélögin eru á alþjóðlegum markaði. Því er sjálfgefið að þau geri upp í erlendri mynt. Það sama gildir um stóru skipafélögin. Þar að auki eru skipin skráð erlendis. Hugbúnaðarfyrirtækin, lyfja- og líftæknfyrirtakin eiga flest í víðtæku erlendu samstarfi, enda fer mest af afurðunum á erlenda markaði. ISK hentar þeim engan veginn, því gera þau yfirleitt upp í erlendum myntum. Fiskeldið. Það er að mestum hluta fyrir erlenda markaði. Þarf að segja meira? Afmörkunin Sem sagt. Af því að íslenska hagkerfið er svo auðlindadrifið, á ISK að vera gjaldmiðillinn fyrir alla,...nema þá sem nýta auðlindirnar!! Sá hluti sem er ósköp eðlilegur og að mestu óháður auðlindanýtingu skal nota krónu. Krónu sem er ónothæf fyrir þá sem byggja á auðlindanýtingu!! Fyrir þá sem nýta afurðir hafsins, orku landsins eða þekkingu og hugvit er krónan ónothæf!! Þetta gengur satt að segja fjandi illa upp í huga mínum. Þeir sem nota aðra uppgjörsmynt er krónu segja að það breyti í raun engu fyrir þá, svo varla getur það verið til að komast stöðugra myntumhverfi þar sem vextir eru mikið lægri. Þar sem ekki þarf öðru hvoru að hækka stýrivexti upp í rjáfur af því að þeir hafi í raun aðeins áhrif á þá sem tilneyddir nota krónuræfilinn . Þar sem þeir geti lagt fram fjárhagsgögn í gjaldmiðli sem nýtur trausts, en veldur því ekki að mótaðilinn taki til fótanna eða leggi á sérstakt álag, ÍSLANDS-álagið fræga, það er þegar fjárhagsgögnin eru lögð fram í íslenskum krónum. Réttlætingin Nýlega var viðtal við fulltrúa útgerðarinnar á Sprengisandi sem hélt því fram að uppgjörsmyntin skipti í raun engu máli og rökstuddi það með því að ef fyrirtæki hans hefði gert upp í ISK á síðasta ári hefði það skilað umtalsvert meiri hagnaði en í uppgjörsmyntinni sem fyrirtækið notaði. Að nota erlend lánskjör á lán í íslenskum krónum gefur þessa útkomu. Ætli útkoman hefði ekki orðið sú sama og er hjá venjulegum heimilum og minni fyrirtækjum, að þau væru að kikna undan fjármagnskostnaði, hefði hans fyrirtæki þurft að sæta sömu lánakjörum og bjóðast á innlendum lánamarkaði. En nei, nei uppgjörsmyntin skiptir engu!! Meðal annara orða. Hvar er hægt að fá lán í íslenskum krónum á erlendum vaxtakjörum? Áhrifin Það getur varla skipt neinu máli heldur að ef sveigjanleiki krónuræfilsins verður nýttur og gengið sigi þá yrðu aðaláhrifin á fyrirtækin sem yfirgefið hafa krónuhagkerfið þau að þyrftu að skipta færri evrum eða dollurum en áður til að fá jafnmargar krónur. Í stað þess að þurfa að skipta 100.000 evrum þyrfti aðeins um 90.910 evrur við 10% gengissig. Hjá krónuþrælunum hækkaði vöruverð og þar með vísitalan og þar af leiðandi húsnæðislánið, en launin væru óbreytt. Hjá hinum krónufrelsuðu stæðu lánin óbreytt og þeir ættu meira að segja drjúgan mismun til að spandera í Karíbahafinu! Uppgjörsmyntin? Hún skiptir engu máli!!! Sama þýðið! Það vekur sérstaka athygli að það er að mestu sami hópur sem er neikvæður nú og boðaði miklar hörmungar yrði hætt að nota heimakokkað EXCEL-skjal útgerðarinnar til álagningar veiðigjalds. Uppgjör fyrirtækjanna sýndi að ekki var nú spádómsgáfan mikil. Er von um lækningu? Greinarhöfundur hefur lengi fylgst með og dáðst að framförum í læknavísindum. Hvern sigurinn á eftir öðrum hafa læknavísindin unnið á sjúkdómun. Bætt lífslíkur og lífsgæði sjúklinga, en ekki minnist ég þess að læknavísindunum hafi enn tekist að endulífga löngu óvirka siðferðiskirtla. Það er að sjálfsögðu ekkert hægt að gera fyrir þá sem kirtillinn hefur verið skorinn úr, eða étinn af ljónum í Afríku svo eitthvað sé nefnt, en lengi hafa vonir verið um að hinum verði kleyft að lifa heilbrigðara og stresslausara lífi. Þekkjum einkennin Fyrir þá sem ekki þekkja til skal þess getið að vanti siðferðiskirtilinn er stóraukin hætta á offramleiðslu hins svokallaða græðgishormóns. Þeim, sem þjást af þessum kvilla hættir til að vera örir og yfirgengileg frekjuköst eru algeng. Ranghugmyndir eru algengar og sannleikurinn er sá sem hentar þeim best hverju sinni. Þeir lifa í þeirri trú að það sé hægt að kaupa sig frá öllu og peningar skipti meira máli en staðreyndir og sannleikurinn. Þetta hlýtur að vera skelfilegt líf. Hugum vel að siðferðiskirtlinum, fáum allar staðreyndir á borðið og segjum: JÁ til að sJÁ! Höfundur er cand. oecon og MBA. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar