Lík fannst á leikvangi Charlton Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. ágúst 2026 16:03 The Valley er heimavöllur Charlton Athletic. Leila Coker/Getty Images Maður á fertugsaldri fannst látinn á leikvangi Charlton Athletic, nokkrum dögum eftir fyrsta leik liðsins á tímabilinu í ensku Championship deildinni. Lögreglurannsókn er hafin.
Óvíst er hvernig andlátið bar að en Charlton staðfesti í tilkynningu að 33 ára gamall maður hefði fundist látinn á leikvangi félagsins í gær, þriðjudagsmorgun. Charlton hafði fagnað 2-1 sigri gegn Derby County á laugardag. Charlton tók fram í tilkynningu félagsins að ekkert benti til þess að félagið hefði brugðist skyldum sínum. Út frá staðsetningu líksins rannsakar lögreglan nú hvort maðurinn hafi fallið úr hæð. Undir 21 árs lið Charlton átti að spila á sama leikvangi síðdegis í gær en leikurinn var færður á æfingasvæði félagsins. Næsti leikur aðalliðs Charlton er á útivelli gegn West Ham en liðið tekur svo á móti Tottenham á heimavelli í enska deildabikarnum þann 26. ágúst. Charlton er mikið Íslendingafélag en fjórir íslenskir leikmenn hafa spilað fyrir liðið. Hermann Hreiðarsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Rúrik Gíslason og Jóhann Berg Guðmundsson voru þar á mála.
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Sjá meira