„Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 19. ágúst 2026 12:30 Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Vísir/Sara „Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum.
Hverjar eru hugmyndir okkar um fullveldi og framsal á því? Telja Íslendingar sig vera hluta af Evrópu og hvað það þýðir eiginlega þegar til kastanna kemur? Munu þessar tilfinningar ráða því hvernig Íslendingar kjósa í lok mánaðar? „Stjórnmál eru mjög flókið samspil hagsmuna [...] en einnig tilfinninga sem eiga sér engar skynsamlegar skýringar,“ útskýrir Guðmundur, sem hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Guðmundur ræðir við Rafn Ágúst Ragnarsson fréttamann um þessi mál og fleiri í nýjasta þætti Vísis af viðræðum, sem er ný þáttaröð Vísis er fjallar um atkvæðagreiðsluna 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann tekur undir að þó að rökin séu til staðar byggist sannfæringin gjarnan á tilfinningum. Þá rekur hann einnig sögu Íslands í utanríkismálum. Guðmundur segir það gegnumgangandi í þátttöku Íslendinga í alþjóðasamvinnu – svo sem EFTA 1970 eða NATO 1949 – hafi almenningur líklegast fellt slík mál í atkvæðagreiðslu. „Það væri betra að vera barinn þræll en feitur þjónn, eins og Laxness sagði,“ segir Guðmundur og vísar þar í Íslandsklukku nóbelskáldsins er hann lýsir hugarfari Íslands gagnvart Dönum á 19. öld. Íslendingar hafi þá átt erfitt með að ímynda sér að slíta sambandinu við Dani fyrir fullt og allt enda fáir innviðir til staðar í bændasamfélaginu og ekki mikið um atvinnulíf. „Við erum ekki eyland og höfum aldrei verið. Til dæmis er gott dæmi að við tölum um Jón Sigurðsson sem einhvern forystumann í sjálfstæðisbaráttu. Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði.“ Þáttinn má finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Hlaðvarp Vísis Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Evrópusambandið Vísir að viðræðum Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Sjá meira