Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 13:01 Þótt aðeins sé verið að kjósa um hvort halda eigi áfram aðilarumsókn okkar þann 29. ágúst, hefur umræðan farið um víðan völl og mikilli orku varið í deilur sem auðvelt er að útkljá með einu einföldu “jái”. Einn helsti átakapunkturinn í þeirri umræðu snýr að sjávarútvegi og hvernig og að hve miklu leyti Íslendingar geti haldið forræði yfir auðlindinni. Hvort við þurfum yfir höfuð sérlausnir eða hvort við getum t.d. fengið sérlausnir í svipuðum dúr og Norðmenn fengu þegar þeir sömdu um (og felldu í þjóðaratkvæðagreiðslu), þar sem þeir fengu áfram forráð yfir norðurhluta fiskveiðilögsögu sinnar sem þeir höfðu veitt einir. Ég þykist ekki vita svarið við þessu, hörðustu nei-sinnar segja að við náum engu í gegn, en á móti berast skilaboð frá væntanlegum viðsemjendum okkar um að þetta sé fjarri því að vera meitlað í stein. Ég skil vel afstöðu stórra útgerðarfyrirtækja, eigenda Morgunblaðsins, sem óttast að missa spón úr aski sínum með reglum um jafnræði og gagnsæi sem við höfum innleitt á öðrum sviðum í gegnum EES samninginn. Það er óljóst hvort ESB-reglur kalli á breytingar á kvótaúthlutunarkerfinu – því miður, þar hefði ég viljað sjá skýrar línur, en ESB hefur ekki mikið skipt sér af hvernig einstök ríki úthluta kvóta. Hins vegar er nokkuð ljóst að það fyrirkomulag að útgerð geti selt afla til fiskvinnslu í sömu eigu, án þess að markaðsáhrif komi þar inn, mun ekki standast. Þetta hefur verið sérstaklega áberandi í verðum á uppsjávarfiski, þar sem allt að þrefalt hærra verð hefur fengist fyrir loðnu og makríl í Færeyjum en á Íslandi. Skatturinn og Samkeppniseftirlitið eiga að hafa eftirlit með slíkum gjörningum, en það fara litlum sögum af því eftirliti. Samkeppniseftirlitið hefur reyndar bent á þetta sé kerfislægt vandamál í íslenskum sjávarútvegi. Með þessu færa fyrirtækin hagnað frá útgerðinni yfir á vinnsluna, sem þýðir að hagnaður útgerðarinnar minnkar, hagnaður sem hingað til hefur, þrátt fyrir þetta, þótt ærinn hjá stærri útgerðarfyrirtækjum. Afkoma útgerðarinnar, en ekki afkoma vinnslunnar, er síðan notuð til að reikna út veiðigjald til ríkisins, sem þannig ber minna úr býtum en ella. Einnig hefur leikið grunur á að sjómenn á Íslandi hafi verið skipulega hlunnfarnir undanfarna áratugi, þar sem laun þeirra eru tengd verðmæti aflans. Verðlagsstofa skiptaverðs á að hafa eftirlit með slíkum viðskiptum, en slíkt eftirlit er flókið í framkvæmd og skortir allt gagnsæi. Þar sem orkumál heyra undir EES samninginn höfum við þurft að skilja að orkuframleiðslu, dreifingu og sölu, til að tryggja gagnsæi og jafnræði á því sviði. Góðar líkur eru á að sambærileg krafa verið gerð um aðskilnað veiða og vinnslu, sem tryggi að fiskur verði alltaf seldur á markaðsverði. Slíkt fyrirkomulag tryggir að sjómenn fá hlut af markaðsverðmæti aflans, en ekki af verðmæti sem fyrirtæki ákvarða í samningum við sjálf sig. Nokkuð sem sjómenn mættu íhuga þegar þeir ganga til kosninga þann 29. ágúst. Höfundur er framkvæmdastjóri Múltikúlti íslensku og með pungapróf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar